SlúðurSvandís og kvótakóngarnir Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, er í vanda vegna strandveiðanna. Gríðarlegur fjöldi báta stundar veiðarnar, allt í kringum landið. Enda til mikils að vinna þar sem fiskverð er í hæstu hæðum. Mikil óánægja er á meðal sjómanna á tilteknum svæðum þar sem um er að ræða heildarkvóta og allir bátarnir verða að hætta samtímis þegar kvótinn er búinn. Sjómenn á norðausturlandi...
SlúðurSnilld Þorsteins Más Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er einkar snjall þar sem kemur að því að sameina fyrirtæki undir Samherja og tengd fyrirtæki. Það er fyrir löngu skráð á spjöld sögunnar þegar hann komst yfir flaggskip Vestfirðinga, Guðbjörgu ÍS. „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði,“ lofaði hann við yfirtökuna. Framhaldið þekkja flestir. Skipinu var flaggað út og útgerð þess...
SlúðurVítalía snýr aftur Hart hefur verið sótt að Vítalíu Lazereva undanfarið. Klámarkarlarnir úr heita pottinum í Skorradal hafa hótað að kæra hana og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar. Þá hefur Arnar lýst því yfir að Vítalía hafi sagt ósatt um tilburði Loga Bergmann fjölmiðlamanns á hóteli í Borgarfirði. Vítalía staðhæfði að hann hefði misboðið sér fyrir tilstilli Arnars og seinna mætt á...
Slúður„Nær honum ekki upp …“ Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, á góða spretti í fyrirsögnum á vef sínum. Mogginn hefur á undanförnum misserum átt í harðri baráttu við vefmiðilinn Vísi um aðsókn og orðið undir. Til að rétta sinn hlut af hafa Davíð log félagar gripið til þess að vera með sem æsilegastar fyrirsagnir af ýmsu tagi og þá gjarnan af erótískum toga. Ein af þeim...
SlúðurVigdís vill meira Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, er á höttunum eftir nýju starfi. Vigdís hrökklaðist úr borgarstjórn í hruni Miðflokksins. Hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tími hennar í borgarstjórn var markaður ryskingum við embættismenn og aðra borgarfulltrúa. Klögumálin gengu á milli og sannkölluð óeining ríkti í ráðhúsinu. Þar er nú komin á nokkur ró. Vigdís er lögfræðingur og menntuð sem...
SlúðurBrad Pitt myndaði Sigríði Lóu Ameríski leikarinn Brad Pitt opnaði sig nýlega um þá erfiðleika sína að þekkja ekki andlit. Með þessu hefur hann fengið á sig það orð að vera hrokafullur og fólki sárnar við hann. Hyggst leikarinn leita sér hjálpar við þessum vanda sínum og fá greiningu. Mogginn segir frá þessu í dag en getur ekki heimilda.Sjálfur hefur leikarinn lent í því að...
SlúðurGuðjón stígur fram Guðjón Karl Reynisson, stjórnarformaður hjá Festi, stígur fram í fjölmiðlum í dag og leitast við að útskýra brottrekstur Eggerts Þórs Kristóferssonar úr starfi farsæls forstjóra félagsins. Skýringarnar eru þó einstaklega þunnar og í raun engar aðrar en þær að stjórnin hafi þráð breytingar. „Stjórnin taldi þó að kominn væri tími á breytingar og við tilkynntum fráfarandi forstjóra það,“ segir hann...
SlúðurSölvi upp á yfirborðið Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður hefur átt í vök að verjast allt síðan tvær konur kærðu hann fyrir kynferðisofbeldi á sínum tíma. Langt er um liðið síðan ásakanirnir komu fram og lögmaður kvennanna lýsti því yfir að fjölmiðlamaðurinn yrði lögsóttur. Nú liggur fyrir að annarri kærunni hefur verið vísað frá en hin er að veltast um í kerfi löggunnar. Sölvi hefur nánast...
SlúðurErfitt hjá Katrínu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra glímir við mikla erfiðleika þessa dagana. Kjósendur eru á harðahlaupum í burtu og flokkur hennar í frjálsu falli. Engum getur dulist að ástæðan er baneitrað samband flokksins við Sjálfstæðisflokkinn og sú undanlátssemi sem þykir einkenna VG í ríkisstjórnarsamstarfinu. Salan á bréfunum í Íslandsbanka og afhelgun Héraðsvatna með hliðsjón af hugsanlegri virkjun eru á meðal mála sem hugsjónamenn...
SlúðurLogið upp á Loga? Mál Vitalíu Lazereva á hendur meintum klámkörlum í sumarbústað í Skorradal og á hóteli í Borgarfirði hefur tekið á sig furðulegar og flóknar myndir. Ekki er deilt um það að í sumarbústað Þórðar Más Jóhannssonar í Skorradal var hún í heitum potti með fjórum nöktum körlum. Hún segist hafa verið áreitt gróflega þar og hefur lýst því að höfuðpaurinn og...
SlúðurOfurlaun Rósu Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, þarf ekki að hafa áhyggjur af mánaðarmótunum. Nýr meirihluti hennar og Framsóknarmanna úthlutaði enni launum sem nema mánaðarlega 2,2 milljónum króna. Þettra er í takti við þá góðvild sem ríkir gagnvart Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í nágrannasveitarfélaginu Garðabæ, sem fær örlítið ríflegri laun. Laun þeirra nema fjórföldum verkamannalaunum. Margir undrast það launaskrið sem orðið hefur í...
SlúðurAgnes pönkast á prestum Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, er á meðal þeirra umdeildari sem gegnt hafa þeirri stöðu. Hún þykir harðskeytt í umgengni við þá sem ekki eru í náðinni hjá henni og nýtur þar öflugs stuðnings Péturs Markan, ritara biskups, sem stundum er kallaður stallari Agnesar. Fræg er meðferð hennar á séra Skírni Garðarssyni sem hún pönkaðist á og hrakti úr embætti sínu...