SlúðurSælands-sextettinn Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, má svo sannarlega una glöð við sitt eftir að hafa tekið með sér fimm galvaska þingmenn á Alþingi. Flestir sáu fyrir sér eyðimerkurgöngu eftir að hún rak helming þingflokksins, Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifsson, eftir uppistandið á Klausturbarnum. Hinir brottreknu gengu til liðs við drykkjufélaga sína en þurftu báðir að mæta þeim örlögum sínum...
Slúður„Vafasamur heiður“ Þorgerðar Alþingi er loks komið saman eftir langa og stranga mæðu. Aldursforseti þingsins er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem svo sannarlega hefur markað sín spor í stjórnmálasögu Íslands. Það sem ræður upphefð hennar er ekki lífaldurinn heldur sá tími sem hún hefur starfað á Alþingi. Höskuldur Kári Schram, fréttamaður Ríkisútvarpsins, átti afar sérkennilega innkomu í sjónvarpsfréttum þegar hann lýsti stöðu...
SlúðurHitnaði undir Loga Golfheimurinn bókstaflega logaði í vikunni vegna meints svindls við bókanir á golfvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður og félagar hans höfðu dottið niður á lausn sem gaf þeim forgang á bókanir á golfvelli. Eftir að allt fór í bál og brand steig fram maður sem axlaði ábyrgð á málinu. „Jæja… ég bjóst aldrei við því að verða fyrir...
Slúður„Svartur fössari” á hlutabréfamarkaði … nema hjá Sýn Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir rauðir í morgunsárið á hinum svokallaða Black Friday og útlit fyrir að markaðir vestanhafs myndi einnig opna á „útsölu“. Kauphöllin á Íslandi var engin undantekning og viðskipti hófust með skörpum lækkunum og þá sérstaklega í flugfélögum. Á því var þó ein undantekning en fjarskiptafyrirtækið Sýn hækkaði fljótlega í hundruðum milljóna króna viðskiptum um ríflega 3...
SlúðurKolbeinn sáttur á Siglufirði Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi alþingismaður Vinstri grænna, hefur söðlað algjörlega um eftir að hann hætti við að bjóða sig fram til þings aftur í kjölfar ásakana um að hann hefði farið út fyrir mörk í samskiptum við konur. Hann er fluttur til Siglufjarðar og sinnir meðal annars blaðamennsku fyrir Skessuhorn. Kappinn er þaulreyndur blaðamaður og fengur fyrir héraðsblaðið að fá...
SlúðurBlautur draumur og tvístígandi Stefán Nokkur upplausn ríkir innan Ríkisútvarpsins vegna atgervisflótta úr fréttaskýringaþættinum Kveik og af fréttastofu. Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri hefur upplýst að hún sé á förum og fréttastofan því í raun orðin að höfuðlausum her. Enginn botnar í þeirri ákvörðun Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra að hafa ekki auglýst strax eftir nýjum manni í stöðuna. Það er rakið til kjarkleysis og að hann bíði eftir...
SlúðurÓli Björn og sonur ekkjunnar Mikið er um það talað að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sé á förum frá blaðinu um áramót þegar hann verður 74 ára. Guðbjörg Matthíasdóttir, ekkja Sigurðar Einarssonar útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, er aðaleigandi Moggans og það mun kom í hennar hlut að skipa arftaka Davíðs. Hún hefur mörg undanfarin ár veitt gamla stjórnmálaforingjanum skjól og lifibrauð í amstri lífsins. Þannig hefur...
SlúðurUpplausn í Eilífðarnefnd Birgis Tveggja mánaða þref innan Eilífðarnefndarinnar, sem áttu að skila tillögu um lausn á kjörgagnahneykslinu í Norðvesturkjördæmi hefur ekki skilað neinu öðru en þríklofinni nefnd. Einn hluti vill uppkosningu, annar vill að fyrsta talning ráði og sá þriðji að seinni talning ráði. Birgi Ármannssyni, formanni nefnarinnar, hefur gjörsamlega mistekist að ná fram samhljómi um leiðina út úr klúðri Inga Tryggvasonar og...
SlúðurGuðlaugur ræður ráðherravali Titringur innan ráðherraliðs ríkisstjórnarinnar vex með hverjum deginum sem líður. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á það erfiða verkefni fyrir höndum að velja í ráðherrastól Kristjáns Þórs Júlíussonar sem glataði sínu pólitíska lífi og sveif á brott á englavængjum Samherja. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er þyrnir í augum Bjarna sem myndi væntanlega færa hann skör neðar í virðingarstiganum ef sá möguleiki...
SlúðurDagur svarar í véfréttastíl Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er með þaulsætnari borgarstjórum. Hann heldur sínu fólki enn í óvissu og kvíða um það hvort hann sé á förum. Í hátíðarviðtali í Fréttablaðinu er hann spurður þeirrar sömu spurningar en svarar sem fyrr í véfréttastíl. Vandinn hjá meirihlutanum er sá að það er enginn í sjónmáli sem getur fyllt upp í skarð hans. Brotthvarf Dags...
SlúðurFáir treysta Agnesi Ólga er innan prestastéttarinnar vegna stjórnunarhátta Agnesar M. Sigurðardóttur biskups. Nýr þjóðarpúls Gallup um traust landsmanna til Þjóðkirkjunnar, mælir lágt og hefur valdið vonbrigðum. Hermt er að biskup sé viðskotaillur þessa dagana og þá ekki síst vegna þess að sumir prestar túlka þetta sem svo að lítið traust á Þjóðkirkjunni haldist í hendur við lítið traust á Agnesi biskupi og...
SlúðurDavíð á Tinder Morgunblaðið hefur farið áður ótroðnar slóðir að undanförnu. Blaðið reið á vaðið með að upplýsa á dögunum að Davíð Sigurgeirsson, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur, hefði skráð sig á Tinder í leit að ást. Davíð Oddsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Moggans, gerði svo enn betur í gær þegar fjölmiðill hans upplýsti að fjölmiðlakonan Guðrún Dís Emilsdóttir og Kristján Þór Magnússon...