SlúðurAtli Fannar í ræktina Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason, sem starfað hefur við vefstjórn hjá Ríkisútvarpinu en áður með vefsíðuna Nútímann er nú að hasla sér völl á nýjum vettvangi, fjarri skjóli ríkisins. Atli Fannar er þekktur úr þættinum Vikan með Gísla Marteini. Hann ætlar nú að opna heilsuræktarstöðina Afrek í Skógarhlíð. „Ætlum að leyfa fólki að fylgjast með framvindunni,“ segir hann á Instagram. Stöðin...
SlúðurStríðsglaður forseti Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, er einn stríðsglaðasti forseti sem um getur í sögu samtakanna. Drífa hefur undanfarið beint spjótum sínum sérstaklega að flugfélaginu Play. Flugfreyjur þess félags hafa stofnað sitt eigið stéttarfélag sem hvílir í náðarfaðmi Play. Það þykir athyglisvert að Drífa er ekki eins grimm við stóra flugfélagið, Icelandair, sem er orðið frægt af endemum fyrir að slást...
SlúðurLeyndarmálin og Kristjón Ritstjórinn knái, Kristjón Kormákur Guðjónsson, er kominn á fullt skrið með vef sinn, 24.is. Kristjón var í drottningarviðtali við DV, sinn gamla miðil. Þar lýsti hann stefnu nýja fjölmiðilsins og þeim áformum að gefa út blað á landsvísu. Hann fullyrti að fjölmiðillinn væri aðeins í eigu starfsmanna. Þá sagði hann blaðamanni DV að hann byggi yfir innherjaupplýsingum um önnur fjölmiðlafyrirtæki....
SlúðurElín Hirst er mentor Sjónvarpsstjarnan og sagnaþulurinn Elín Hirst er komin undir fullum seglum inn á ritstjórn Fréttablaðsins eftir að hafa farið í pólitík og á þing og hrakist aftur út undan ráðandi öflum í Sjálfstæðisflokknum. Nú skrifar hún eðalfréttir í Fréttablaðið undir ritstjórn síns gamla undirmanns, Sigmundar Ernis Rúnarssonar, og leiðbeinir jafnframt þeim sem minna mega sín. Flestir eru á því að mentorinn...
SlúðurFurðufrétt um Loga Logi Einarsson, formaður Samfylkingar, mun sitja áfram „í bili“ segir í frétt Morgunblaðsins sem skrifuð er af þeim umdeilda Andrési Magnússyni, fulltrúa ritstjóra. Ef fréttin er lesin þá kemur ekkert fram um að áform séu um að Logi sé á förum en viðbrögð hans um að hann sé vissulega formaður í augnablikinu eru túlkuð sem vísbending um mögulegt brotthvarf. Andrés...
SlúðurBarn með sjálfsvígshugsanir læst inni í Gula herberginu -Skólinn klagaður til ráðuneytis Skólabarn í Reykjavík var lokað eitt í herbergi og kennarar og starfsmenn fylgdust með því í gegnum glugga. Við innilokunina varð barnið mjög hrætt. Ekki tókst að róa það fyrr en móðir þess kom á vettvang og tókst að róa það. Síðan þetta gerðist, 22. september, hefur barnið ekki mætt í skólann. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag....
SlúðurArnaldur tekur U-beygju Arnaldur Indriðason, rithöfundur og konungur glæpasagnanna, nýtur fádæma vinsælda fyrir glæpasögur sínar sem hafa selst eins og mjólk undanfarin ár. Fjölmargir kunna utanað nöfn aðalsöguhetja Arnalds þótt bækur hans teljist ekki til stórvirkja í bókmenntalegum skilningi. En nú hefur rithöfundurinn brugðið út af þeim vana sínum að gefa út glæpasögu 1. nóvember. Að þessu sinni er það skáldsaga með sagnfræðilegu...
SlúðurErna er hljóp í felur og birtist skyndilega Varaþingmaðurinn nýkjörni, Erna Bjarnadóttir, sem kjósendur Miðflokksins í Suðurkjördæmi völdu til að leysa Birgi Þórarinsson alþingismann af hólmi lætur ekki ná í sig. Svo er að sjá sem hún hafi hlaupið í felur þegar leiðtogi hennar ákvað að hefja liðhlaup sitt yfir í Sjálfstæpisflokksins. Við það tækifæri sagði Birgir að varaþingmaðurinn Erna myndi fylgja sér yfir í land tækifæranna, Sjálfstæðisflokksins....
SlúðurÍsak vill ekki fara heim Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er einn sá allra efnilegasti sem fram hefur komið í knattspyrnuheiminum á síðari tímum. Eftir að hann skoraði eina mark Íslands í leiknum gegn Armeníu og varð sá yngsti í sögunni sem það hefur gert, er hann þjóðhetja. Ísak, sem er þriðja kynslóð afreksmanna í boltanum, er sonur Jóhannesar Guðjónssonar og barnabarn goðsagnarinnar Guðjóns Þórðarsonar, fyrrverandi...
SlúðurBirgir úthrópaður fyrir svik Birgir Þórarinsson, nýorðinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á sér fáa málsvara eftir að hann fór undir fölsku flaggi í gegnum kosningabaráttuna og stakk svo af frá Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokksins. Liðhlaupið er fordæmt af flestum, nema þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Birgir hefur borið fyrir sig Klausturmálið þar sem ölvaðir þingmenn flokksins formæltu andstæðingum jafnt sem samherjum. Birgir gagnrýndi félaga sína en hélt samt áfram...
SlúðurKarl Gauti gæti snúið aftur Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi alþingismaður Miðflokksins, vill að fyrri tölur í Norðvesturkjördæmi standi og hann fái þannig þingsæti sitt aftur. Hann bendir á að frá því fyrri talningu lauk hafi kjörnefndarmaður verið einn með kjörgögnin og enginn annar til frásagnar þar. Stöðugt fleiri hallast að því að einungis séu tveir möguleikar í stöðunni. Annar er sá að kosið verði aftur...
SlúðurBrynjar braut loforð sitt Brynjar Níelsson, fráfarandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er einn mesti strigakjaftur sem setið hefur á þingi. Í því felst að hann er í senn kjaftfor og skemmtilegur á köflum. Margir eru þegar teknir að sakna hans þótt formlega sé hann ekki farinn eftir að hafa orðið úti í ringulreiðinni með jöfnunarsætin og kyrrstöðutap Sjálfstæðisflokksins. Sjálfur er hann sex mánuðum frá því að...