SlúðurGuðlaugur girnist formannsstólinn Innan Sjálfstæðisflokksins er talað um það í lágum hljóðum að Bjarni Benediktsson formaður muni ekki stíga úr stól formanns fyrr en eftir fjögur ár. Þetta er þó háð því að kosningarnar í haust fari ekki illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ef svo færi þá mun Bjarni mjög líklega hætta strax. Helsta vandamál Bjarna er tengt veru hans í Ásmundarsal á Þorláksmessu, þar...
SlúðurSveik fyrsta kosningaloforðið Haraldur Benediktsson, bændahöfðingi og fallinn oddviti í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að afturkalla fyrri ákvörðun sína um að sætta sig ekki við að verða í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins ef til kæmi. Nú blasir sá nakti veruleiki við að hann var beittur því ofbeldi af kjósendum að verða eftirbátur Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð. Haraldur lá undir feldi dögum saman og komst...
SlúðurBaktjaldamakk Þorgerðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, liggur undir ámæli fyrir baktjaldamakk og undirróður til að koma Benedikt Jóhannessyni, stofnanda Viðreisnar, út úr áhrifastöðu í flokknum. Meðferðin á Benedikt þykir til marks um að ekki hafi pólitísk viska eða framsýni ráðið för. Benedikt þykir að vísu vera frekar ferkantaður í samstarfi en stálheiðarlegur og maðurinn að baki flokknum, sálin í hreyfingunni. Nú...
SlúðurAuðmjúkur Brynjar Brynjar Níelsson alþingismaður fór flatt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og lýsti því strax yfir að hann væri þar með hættur. Kjósendur hefðu talað. En nú er Brynjar kominn með kalda fætur og óskar náðarsamlegast eftir því að fá að hætta við að hætta við. Af fullkominni auðmýkt vill hann nú taka sætið sem áður fól í sér niðurlægingu. Annar auðmjúkur tapari...
SlúðurBensi mágur og Guðmundur Franklín Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, er landlaus maður eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins og arftaki hans, ýtti honum í mestu vinsemd úr áhrifastöðum í flokknum. Nú er hermt að Benedikt sé að svipast um eftir áhrifum í öðrum flokki. Það nærtækasta yrði að taka sæti í Lýðræðisflokki Guðmundar Franklíns Jónssonar sem er með ýmis opin sæti í flestum kjördæmum....
SlúðurDrottningarviðtal við Róbert Einhverjir stöldruðu við drottningarviðtal við Róbert Wesmann í Fréttablaðinu í gær. Þar var farið ítarlega ofan í drauma og væntingar um það stórveldi sem Róbert ætlar að reisa með fyrirtækjum sínum og margir fuglar eru í skógi. En það er enginn fuglasöngur í kringum forstjórann sjálfan sem stendur í málaferlum við Halldór Kristmannsson, áður sinn nánasta samstarfsmann. Halldór hefur upplýst...
SlúðurSpæjara Samherja sparkað Lítið hefur borið á Jóni Óttari Ólafsson, spæjara Samherja, undanfarið. Fullyrt er að Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri hafi látið hann fjúka og þar með látið hann taka fallið. Lögreglumaðurinn fyrrverandi gat sér orð fyrir óhefðbundnar aðferðir eins og þær að sitja um Helga Seljan, fréttamann Kveiks, og ógna honum með skilaboðum úr óskráðum síma í umboði Þorsteins Más Nú hafa...
SlúðurSkæruliðinn Þorbjörn Afsökunarbeiðni Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, í dag vekur athygli. Afsökunarbeiðnin snýr þó aðallega að því að stjórnendur Samherja hafi ekki staðið vaktina og fyrirbyggt „mistök“ í Namibíu. Fyrr utan mútumál og skattsvik þá eru hlutur svonefndrar skæruliðasveitar félagsins afar svartur blettur á hvítfibba Þorsteins og félaga. Skæruliðadeildin stóð meðal annars að því að ógna Helga Seljan fréttamanni og reyna...
SlúðurHaraldur hikar og hikstar Haraldur Benediktsson, alþingismaður og bændahöfðingi, fór illa út úr einvíginu við ráðherrann Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um efsta sætið í Norðvesturkjördæmi. Kolbrún rúllaði þessu upp og vann stórsigur. Haraldur hélt aftur á móti öðru sætinu. Vandinn er hins vegar sá að Haraldur lýsti því yfir í prófkjörsbaráttunni að hann myndi ekki sætta sig við annað sætið og brýndi stuðningsmenn sína...
SlúðurBaltasar er viðkvæmt blóm Leikstjórinn snjalli, Baltasar Kormákur, fær hrikalega útreið hjá Jóni Viðari Jónssyni, einum gleggsta og beittasta gagnrýnanda þjóðarinnar. Viðfangsefnið er Katla, sjónvarpssería Baltasars, sem Jóni Viðari þykir mislukkuð frá upphafi til enda og skrifar: „Ef Baltasar væri nú bara að segja spennandi sögu með tilheyrandi eðlilegum og sjálfsögðum klisjum, en nei, onei, nú virðist Balti telja sig vera orðinn sálfræðileikstjóri, svona...
SlúðurHaraldur mun fara í fýlu Haraldur Benediktsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, stendur í hörðum slag um oddvitasæti sitt í Norðvesturkjördæmi. Þórdís Kolbrún Reykjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra sækir að honum og vill verða leiðtogi. Haraldur hefur upplýst við bb.is að hann muni ekki taka annað sætið fari svo í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina. Haraldur boðar strax að hann muni fara í fýlu. „Feli flokksmenn öðrum það hlutverk er það...
SlúðurUppnám á Ísafirði vegna Margrétar Sú einstaka staða er uppi á Ísafirði að Sif Huld Albertsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði, hefur tilkynnt um afsögn sína vegna eineltis af hendi Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs. Ísafjarðarbær hefur fallist á sjónarmið bæjarfulltrúans fráfarandi og beðið Sif afsökunar. Eftir sem áður situr Margrét í embætti sínu, einhverjum til undrunar. Sif hefur boðað að hún muni sækja bætur á hendur...