SlúðurBláeygri Þórdísi bjargað Innan Sjálfstæðisflokksins er ringulreið vegna samningsins um kaup Landsbanka Íslands á Tryggingamiðstöðinni sem átti sér stað á vakt og ábyrgð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra. Þórdís hefur ákaft svarið af sér að hafa móttekið skilaboð um að ferlið væri komið í gang. Fæstir trúa því að hún hafi verið svo bláeyg. Almennt er talið að sofandaháttur og kæruleysi hafi valdið...
SlúðurKamilla vill guðlast Kamilla Einarsdóttir, rithöfundur og bókavörður, hefur mikla samúð með háðfuglinum Berglindi Festival sem hefur verið gagnrýnd og jafnvel fordæmd fyrir það guðlast að dröslast um með kross um Smáralind í sjónvarpþættinum Vikunni. Kamilla leggur til í viðtali við Heimildina að sem flestir taki sig saman um að styða Berglindi með því að ástunda meint guðlast. „Mér finnst að allir eigi...
SlúðurHáspenna vegna Katrínar Stuðningsmenn Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar fögnuðu gríðarlega í vikunni þegar mælingar sýndu yfirburði þeirra til að verða húsráðendur á Bessastöðum. Baldur reyndist vera með rúmlega helmingi meira fylgi en Halla Tómasdóttir sem rétt eins og Ástþór Magnússon er ekki að bjóða sig fram í fyrsta sinn. Umrædd könnun gæti þó orðið skammvinnur gleðigjafi því miklir óvissuþættir eru enn í...
SlúðurUpprisa Loga Logi Bergmann Eiðsson hefur átt erfitt uppdráttar síðan Vítalía Lazereva bar hann sökum um að hafa brotið gegn blygðunarsemi sinni á hótelherbergi á Borgarfirði. Hann missti vinnuna hjá Mogganum og Símanum og var á hrakhólum þar til Heiðrún Lind Marteinsdóttir réði hann til tímabundinna starfa hjá Samtökum í sjávarútvegi. Seinna dró Vítalía í land með ásakanir sínar á hendur Loga...
SlúðurUndrun vegna Áslaugar Margir stuðningsmenn íþróttafélagsins Fylkis ráku upp stóru augu í gær þegar auglýsing fyrir Bestu deildirnar í knattspyrnu var frumsýnd. Þar var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sýnd sem aðalstuðningsmaður félagsins. Gengu skilaboð milli fólks í Árbænum sem hafði ekki hugmynd að hún væri úr hverfinu, hvað þá stuðningsmaður Fylkis. Þykir valið á Áslaugu ennþá skrýtnara í ljósi þessi...
SlúðurStjörnuhrap Þórdísar Lengi var litið til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem rísandi stjörnu í Sjálfstæðisflokki. Sagt var að fráfarandi formaður Bjarni Benediktsson hefði teppalagt leið hennar til æðstu forystu.Úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins heyrist að nú séu teknar að renna tvær grímur á fólk. Framganga hennar sem fjármálaráðherra þykir síst til þess fallin að auka traust og tiltrú. Hennar fyrsta verk í embætti var...
SlúðurGísli Marteinn óæskilegur Undirbúningur vegna þátttöku Íslands í Eurovision í Malmö er í fullum gangi með Heru Björk Þórhallsdóttur, söngkonuna stórsnjöllu, í öndvegi. Fyrir liggur að sá orðhvati Felix Bergsson aðstoðarforsetaframbjóðandi er ekki lengur með í för sem liðsstjóri. Þá er uppi á teningnum annað og verra. Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður hefur lýst keppninni af snilld og einlægni mörg undanfarin ár. Hann þykir...
SlúðurBaldur og vonda fólkið Nokkur hamagangur er á stuðningssíðu Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar þar sem spurningum til þeirra er gjarnan eytt og óæskilegir spyrjendur útilokaðir frá síðunni. Stjórnendur síðunnar hafa upplýst að síðan sé bergmálshellir aðdáenda parsins sem vill komast til Bessastaða. Samkvæmt því er engum öðrum en stuðningsmönnum heimilt að vera fullgildir og með málfrelsi á síðunni og vonda fólkinu úthýst Páll...
SlúðurOrðljótur Felix Forsetaframbjóðendur og viðhengi þeirra eru nú með strokleðrið á þeim hluta fortíðar sinnar sem telja má vera þeim til vansa. Felix Bergsson, maki Baldurs Þórhallssonar, hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir að láta tilfinningar taka yfir hugsun þegar hann fjallar um átakamál á samfélagsmiðlum. Eftir að parið tilkynnt um forsetahjónaframboð sitt kom á daginn að vafasöm og hörkuleg ummæli...
SlúðurHarmar brotthvarf Tómasar Offramboð er um framboð til embættis forseta Íslands þar sem hátt í 40 manns hafa lýst vilja eða áhuga á að takast á við það verkefni að sameina þjóð sína. Sú ringulreið sem er brostin á hefur aukist með hverjum deginum.Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir stökk á vagninn, áhugasöm um að halda á lofti merki Íslands. Á sama tíma hætti björgunarsveitarmaðurinn...
SlúðurFyrirgefðu, Jón Ásgeir Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason hefur marga fjöruna sopið á ferli sínum sem fjölmiðlamaður. Hann starfaði lengi vel innan einkageirans og átti um tíma sinn eigin fjölmiðil, Nútímann. Hann fékk nóg af einkarekstrinum og er flúinn í náðarfaðm Ríkisútvarpsins þar sem hann sinnir samfélagsmiðlum og markar sín spor. Atli hefur í seinni tíð iðrast vegna frétta og yfirlýsinga í árdaga ferils...
SlúðurÁhrifafólk vill Dag Stöðugt fjölgar í hópi þeirra sem sækjast eftir því að verða sporgöngumenn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, sem hverfur úr embætti í ágústmánuði. Guðni nýtur fádæma vinsælda og margir harma brotthvarf hans. Athafnakonan Halla Tómasdóttir hefur nú tekið sér far með Bessastaðalestinni og reynir öðru sinni við embætti forseta Íslands. Hún er sigurstangleg á meðan ekki kemur framboð sem er...