SlúðurIlldeilur Rúnars Á föstudaginn í síðustu viku var tilkynnt um val á leikmönnum í karlalandslið Íslands sem mætir Ísrael í mikilvægum leik þann 21. mars. Mörgum kom á óvart að markmaðurinn snjalli, Rúnar Alex Rúnarsson, hafi ekki verið valinn hópinn. Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, gaf þá útskýringu að Rúnar hafi ekki spilað nógu marga leiki með félagsliði sínu undanfarið. Það á reyndar...
SlúðurÞórdís sýnir klærnar Uppnám er nú innan Sjáfstæðisflokksins eftir að ákveðið var af stjórn Landsbankans að ríkisvæða tryggingafélagið TM með því að Landsbankinn keypti félagið. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra var ekki með í ráðum. Hún brást við í framhaldi þess að þetta var opinberað um helgina og fordæmdi áform bankans. Þórdís Kolbrún sýndi klærnar og upplýsti á Facebook í gær að ekki...
SlúðurBakslag Baldurs Baráttan um embætti forseta Íslands er óðum að taka á sig mynd. Hartnær 20 manns telja sig vera vel til þess fallna að sitja á Bessastöðum. Á meðal þeirra sigurstranglesustu þar er Baldur Þórhallsson prófessor sem leynt og ljóst hefur kannað jarðveginn fyrir sig og ekki síður maka sinn, Felix Bergsson útvarpsmann. Báðir þykja frambærilegir. Nú virðist þó sem bakslag...
SlúðurMarta ekki á Bessastaði Eitthvert furðulegasta fyrirbæri Moggans er sjónvarpsþátturinn Spursmál sem stýrt er af Stefáni Stefánssyni. Í gær var stóra málið í þættinum hver yrði svo heppinn að verða forseti Íslands. Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands og slúðurdrottning Íslands, var kölluð í settið hjá samstarfsmanninum til að kryfja málið til mergjar. Sakleysislegt yfirbragð Moggafólksins og æskuþokki var sláandi þar sem það einfaldaði málin...
SlúðurGísli Marteinn ógnar kímnigáfu Brynjar Níelsson , lögfræðingur og starfsmaður ríkisins, hefur ekki mikið álit á Gísla Marteini Baldurssyni sjónvarpsmanni sem húmorista. Hann gerði áhyggjur sínar að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og taldi að þjóðin öll kynni að gjalda fyrir þann uppskrúfaða aulahúmor sem gjarnan ríður húsum í þætti Gísla, Vikunni. Hann segist ætla að reyna að stöðva þessa þróun ásamt félögum sínum úr...
SlúðurHeiða fordæmd Aðkoma Heiðu Bjargar Himisdóttur, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, að kjarasamningum er fordæmd í dag af fulltrúum rúmlega 30 sveitarstjórna sem rita sameiginlega grein í Moggann í dag. Það sem fer fyrir brjóst skjólstæðinga Heiðu er að hún samdi um ókeypis skólamáltíðir fyrir hönd allra sveitarfélaga á landinu. Þetta þykir fulltrúunum vera óboðlegt en fagna því á sama tíma að langtímasamningur...
SlúðurSigga vill vinnu Lítið hefur farið fyrir Sigríði Ásthildi Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, eftir að hún hvarf af þingi í kjölfar afsagna sinnar sem dómsmálaráðherra eftir hneykslið við skipun landsréttardómara. Sigríður, sem er menntuð sem lögfræðingur, lagði inn réttindi sín eftir að hún fór á þing. Hún leysti út eftir að þingsætinu sleppti. Ekki virðist vera mikið um verkefni ef litið er til...
SlúðurFábjánar á eftir Heru Stórsöngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir er hvergi bangin og stefnir hiklaust í aðalkeppni Euorvision þrátt fyrir að þá ólgu sem er í báðum fylkingum vegna keppninnar. Það er sama hvort litið er til þeirra sem fylgja Ísraelsmönnum eða þeirra sem vilja standa með Palestínumönnum. Flestir þurfa að taka afstöðu og skilgreina flytjendur með annari hvorri þjóðinni. Sjálf lætur Hera Björk sér...
SlúðurOpinberun Jóns Gnarr Á meðal þeirra sem hafa gert sig líklegan til framboðs um embætti forseta Íslands er Jón Gnarr, leikari, rithöfundur og skemmtikraftur. Jón svarar gjarnan í véfréttastíl þegar hann er spurður um áform sín. Nú herma staðfestar heimildir að hann muni taka sér tíma til páska til að hugsa málið. Jón er þekktur fyrir leiftursóknir. Þegar hann á sínum tíma bauð...
SlúðurAgnes gerð óvirk Undarleg staða er uppi innan Þjóðkirkjunnar á lokametrunum á ferli Agnesar Sigurðardóttur biskups. Nýr biskup mun taka við í sumar þegar Agnes hverfur úr embætti. Nýverið samþykkti kirkjuþing að biskup færi ekki lengur með fjármál Þjóðkirkjunnar og annaðist hér eftir aðeins þau málefni sem snúa að boðun kirkjunnar. Vígslubiskupar munu taka við þeim málum sem Agnes hefur verið gerð óvirk...
SlúðurFlett ofan af Hrafni Undarleg uppákoma varð í Sjónvarpi allra landsmanna í gærkvöld þegar Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur birtist á skjánum til að boða landsmönnum nýjustu horfur í veðri. Veðurfræðíngurinn hóf tölu sína yfirvegaður og bauð að vanda gott kvöld. Þegar hann leit á kortin varð hann kjaftstopp um stund og gerðist flausturslegur. „Sorrý“ við gerum þetta aftur sagði hann svo og hvarf úr mynd...
SlúðurSkælbrosandi Sólveig Samningar Breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins til fjögurra ára eru stórsigur fyrir Sigríði Margréti Oddsdóttur, framkvæmdastjóra SA, og hófsamari hluta verkalýðshreyfingarinnar sem leiddur hefur verið af Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness. Sérstaka athygli vekur að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tók fullan og einlgan þátt í samningsgerðinni. Sólveig hefur fram að þessu verið herská og veifað verkfallsvopninu við minnsta tilefni. Við...