SlúðurAri vill Bylgjuna Athafmaðurinn Ari Edwald er á góðri leið með að tryggja sér eignarhald á vefnum Vísi og útvarpsstöðvum fjölmiðlarisans Sýnar. Ari missti vinnuna hjá Mjólkursamsölunni eftir að pottamál Vítalíu Lazereva kom upp. Eftir kærumál á báða bóga hefur málið verið fellt niður og ásakanir á hendur honum og félögum hans hafa ekki reynst haldbærar. Sýn er að ganga í gegnum mikilar...
SlúðurBreiðfylking Baldurs Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, hefur fengið mikinn byr í seglin þótt formlega séð hafi hann ekki gefið kost á sér í slaginn um embætti forseti Íslands. Gunnar Helgason rithöfundur stofnaði Facebook-síðu, Baldur á Bessastaði, til stuðnings Baldri sem um 12 þúsund manns láta sér líka. Í framhaldinu var birt skoðanakönnun sem sýnir yfirburði Baldurs ef hann gefi kost á...
SlúðurKatrín loðin Nöfnum hugsanlegra frambjóðenda til embættis forseta Íslands er þyrlað upp þessa dagana. Sumir fjölmiðlar hafa varla undan að nefna til sögunnar nýja frambjóðendur og afturkalla þá síðan daginn eftir. Þannig var Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og mótmælandi, kölluð til sögunnar eftir að Hallgrímur Helgason rithöfundur tilnefndi hana. Hún lýsti í framhaldinu yfir áhugaleysi. Bróðir Hallgríms, Gunnar Helgason leikari og rithöfundur, vildi...
SlúðurPálmi ævareiður Pálmi Gestsson leikari er ekiki sáttur við þann hluta þjóðarinnar sem haldinn er útlendingahatri. Hann vakti athygli á því hatri sem gaus upp á samfélagsmiðlum í garð Bashar Murad sem keppti til úrslita í Söngvakeppninni en laut í lægra haldi fyrir stórsöngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur. „Að sjá eins grímulausan rasisma og mannhatur eins og sumt fólk sýndi á samfélagsmiðlum í...
SlúðurHáski Sigmundar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er í sjálfheldu á hóteli í Kulusuk á Grænlandi. Kappinn kemst hvorki lönd né strönd vegna óveðurs sem geysar á svæðinu. Sigmundur er á ferðalagi á Ausur-Grænlandi í óljósum erindum ásamt fólki úr Vestnorræna ráðinu. Morgunblaðið gerir mikið úr því að hann og félagar hans hafi ekki komist frá Kulusuk til Tasilaq þar sem til...
SlúðurKatrín að hressast Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, var nokkuð brött á VG í gær þar sem hún vék orðum að hrikalegri stöðu flokksins sem rambar á hengiflugi þess að detta út af þingi og mælist með einungis 4,7 prósent fylgi og engan mann á þingi. Stærsta vandamál flokksins er dauðadansinn við Sjálfstæðisflokkinn sem hefur leitt til fylgishrunsins. Katrín lagði ekki beinlínis...
SlúðurAlma undir feldi Mikill stuðningur er að skapast við hugsanlegt framboð Ölmu Möller landlæknis eftir að hún gaf upp aðspurð í fjölmiðlum að hún væri að „íhuga að íhuga“ framboð til forseta. Fólk henni nærri segir að síminn stoppi ekki hjá landlækni og hvatningar komi víða að. Nafn hennar var raunar oft nefnt í tengslum við Bessastaði löngu áður en Guðni Th. Jóhannesson,...
SlúðurVesalings Bjarni Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, fær enn meiri byr í seglin samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu sem sýnir fylgi Samfylkingar halda áfram að vaxa, Morgunblaðinu og Sjálfstæðisflokki Bjarna Benediktssonar til mikillar skelfingar. Gríðarlegt upphlaupð varð þegar Kristrún benti á hið augljósa og sagði að ekki færi saman að halda uppi velferðarsamfélagi og vera með opin landamæri. Hún tók þar undir með Guðrúnu...
SlúðurHannes eltir snjóbolta Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor á eftirlaunum, hefur í ýmsu að snúast þessa dagana. Hann er duglegur að þvælast á milli Íslands og Brasilíu þar sem hann lendir í ýmsum ævintýrum. Lítil orðsending á Facebook-síðu kappans vakti nokkra athygli, eins og Mannlíf greindi frá. Þar lýsti Hannes eftir upplýsingum um það hver hefði kastað snjóbolta í bifreið þingmannsins Diljár Mistar Einarsdóttur....
SlúðurHorft til Dags og Höllu Dauflegt er um að litast í hópi forsetaframbjóðenda þar sem enginn sem þykir frambærilegur í embættið hefur enn gefið kost á sér. Áhugaleysi almennings á væntanlegum kosningum er enda nær algjört. Margir vonast til að Guðni Th. Jóhannesson, núverandi forseti Íslands, vendi sínu kvæði í kross og hætti við að stíga til hliðar. Einhverjir vilja að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hætti...
SlúðurSigurganga Loga Logi Bergmann Eiðsson, fyrrverandi sjónvarpsmaður, hefur ekki átt afturkvæmt í fjölmiðla eftir að Vítalia Lazereva, bar hann þeim sökum að hafa, ásamt ástmanni sínum Arnari Grant, brotið gegn blygðunarsemi hennar á hótelherbergi í Borgarfirði. Logi missti vinnuna á Mogganum og þau verkefni sem hann hafði í Sjónvarpi Símans. Vítalía dró seinna í land með ásakanir sínar en Logi sat eftir...
SlúðurSkuggi ákæru yfir Þórði Athafnamaðurinn Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Gnúps, er ekki aðeins í ímyndarvandræðum vegna samskipta við Vitalíu Lazereva. Deilt er um framboð hans til stjórnar í Festi, eiganda N1 og Krónunnar þaðan sem hann hraktist eftir „Pottamálið“ þar sem hann var sakaður um blygðunarsemisbrot vegn Vitalíu. Lífeyrissjóðir í hópi hluthafa eru ósáttir og vilja halda honum úti. Þórður Már stendur einnig...