SlúðurÍsólfur sniðgenginn Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrverandi alþingismaður, situr á friðarstóli heima á Hvolsvelli eftir langt og gifturíkt starf á Alþingi og í sveitarstjórnum. Á dögunum var haldin mikil afmælishátíð í Sögusetrinu á Hvolsvelli þar sem fagnað var 90 ára afmæli Hvolsvallar og boðið til veislu. Ísólfur Gylfi flutti þar hátíðarræðuna fyrir fullu húsi, flestum hnútum kunnugur sem fyrrverandi sveitarstjóri. Athygli vakti að...
SlúðurÓmar vildi 13 milljónir Mörgum brá í brún þegar upplýst var hver kostnaður lögmanna var í hnífamálinu sem kennt er við Bankastræti Club. Verjendur hinna sakfelldu tóku í sinn hlut 123 milljónir króna í þessu máli sem er hið fjölmennasta í réttarsögunni.
SlúðurÞorvaldur tímasetur gos Grindvíkingar, rétt eins og allir landsmenn, bíða þess að það gjósi á svæðinu og þannig verði aflétt þeirri spennu sem verið hefur undanfarið. Á meðan staðan er mörkuð óvissu verða Grindvíkingar áfram heimilislausir og á einskonar vergangi. Stórtjón blasir þegar við vegna lokunar samfélagsins í Grindavík. Gos gæti markað þau straumhvörf að óvissunni létti og mögulegt væri að marka framtíð...
SlúðurSnilld Gísla Freys Ein furðulegasta uppákoma viðskiptalífsins átti sér stað á dögunum þegar viðskiptablaðamenn Moggans og Vísis, Hörður Ægisson, Stefán Stefánsson og Gísli Freyr Valdórsson komu saman á hátíðarkvöldi Þjóðmála til þess að heiðra það sem þeir töldu að vel hefði verið gert í viðskiptum. Kapparnir þrír voru allir íklæddir smókingum við athöfnina. Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson vakti athygi á uppákomunni og ekki...
SlúðurÓskar hjólar í einstæða móður Óskar Sigurðsson, lögmaður og skiptastjóri Torgs, þykir vera harður í horn að taka og fara sérkennilegar leiðir í uppgjöri þrotabúsins sem á sínum tíma rak Fréttablaðið. Eitt fyrsta verk Óskars var að selja Mogganum prentvél fyrirtækisins sem var önnur af tveimur í landinu sem prenta dagblöð. Moggamenn voru snöggir að kippa vélinni úr sambandi og tryggja að þeir sitji einir...
SlúðurBræður Katrínar vekja undrun Mikla athygli vakti þegar 315 starfsmenn Háskóla Íslands lýstu yfir stuðningi við Palestínumenn sem nú sitja undir grimmdarlegum og gjöreyðandi árásum Ísraelsmanna. Fjölmargir hafa lýst yfir stuðningi við Palestínumenn en svo eru það aðrir sem styðja Ísraelsmenn og telja að þeim sé nánast allt leyfilegt vegna hryðjuverka Hamas gegn óbreyttum borgurum í Ísrael sem ýmis hafa verið myrtir eða þeim...
SlúðurJói Fel í vanda Bakarinn og pitsubakarinn Jóhannes Felixsson, Jói Fel, gerði heiðarlega tilraun til að vekja á sér athygli með þeim rausnarskap að bjóðast til að gefa Björgunarsveitinni Þorbirni helming andvirðis af málverki sem hann gerði af Grindavík fyrir nokkru. Sagðist hann ekki selja verkið á krónu minna en 100 þúsund krónur. Þannig hefði hann sjálfur fengið 50 þúsund krónur og björgunarsveitin annað...
SlúðurGuðrún grjóthörð Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur tekið af skarið varðandi ólöglega innflytjendur og gripið til aðgerða til lausnar á máli sem hefur verið kostnaðarsamt og til mikilla vandræða. Í vikunni fór fyrsta flugvélin fullsetin með fólk frá Venesúela heim til sín aftur. Um borð voru180 Venesúelabúar sem óskað höfðu eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi en verið hafnað þar sem lagaskilyrði voru ekki...
SlúðurFannar eftirsóttur Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindvíkinga, hefur unnið hug og hjörtu þjóðarinnar í þeim erfiðleikum sem hans fólk glímir við þessa dagana. Hann kemur fram af æðruleysi og festu fyrir hönd bæjarbúa sem eru á vergangi eftir að bærinn var rýmdur. Þar ber hann höfuð og herðar yfir Víði Reynisson yfirlögregluþjón og marga þá sem hafa stigið fram til að taka stjórnina...
SlúðurEkki hlustað á Ara Jarðvísindamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Ari Trausti Guðmundsson, upplýsti fyrir nokkrum árum um þá hættu sem er á eldsumbrotum við Grindavík og í Svartsengi.Þetta kom fram í viðtali við hann í Víkurfréttum fyrir rúmum 10 árum. „… Hins vegar er líka goshætta við Grindavík og þar geta hraun runnið yfir byggð. Á sama hátt geta hraun ógnað orkuverinu í Svartsengi og...
SlúðurEinar sakaður um dútl Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og eftirlaunaþegi ríkisins, fer hamförum í leiðara Moggans í dag þar sem hann rantar um fjármál Reykjavíkurborgar og vegur enn og aftur að heiðri Dags B. Eggertssonar, fráfarandi borgarstjóra og Einars Þorsteinssonar, verðandi borgarstjóra. Í leiðaranum segir um Einar að hann hefði ekkert haldbært haft fram að færa í kosningabaráttunni nema það að hafa margendurtekið að...
SlúðurDóra efast um styrk Davíðs Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, efast um réttmæti þess að yfir 100 milljónir af almannafé séu settar inn í rekstur Morgunblaðsins. Hún bendir á það í grein sinni að Mogginn sé í raun áróðursmiðill. Þar vísar hún til framsetningar Davíðs Oddssonar ritstjóra og fylgifiska hans á fréttum og ritstjórnarefni. Þeir liggja undir því ámæli að ganga blygðunarlaust erinda Sjálfstæðisflokksins og...