SlúðurAgnes er sloppin Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin misseri. Staða hennar sem réttkjörins biskups bar dregin í efa eftir að undirmaður hennar, framkvæmdastjóri Biskupsstofu, framlengdi ráðningu hennar um eitt ár, án vitundar Kirkjuþings. Harðar deilur hafa staðið innan Þjóðkirkjunnar vegna þessa. Margir hafa talið Agnes vera umboðslausa og allar athafnir hennar í embætti vera ólögmætar. Þetta var...
SlúðurEgill skapstyggur Egill Helgason fjölmiðlamaður og Guðmundur Magnússon rithöfundur lögðust báðir á eitt með að gera því rækileg skil að séra Friðrik Friðriksson hefði verið haldinn barnagirnd og hugsanlega misnotað einn dreng. Þetta er byggt á heimild sem er nafnlaus. Viðtalið við Guðmund í Kiljunni þessa efnis hefur sett allt á annan endann og krafa er uppi um að taka niður styttur...
SlúðurKatrín í krísu Staða Vinstri grænna í málum Palestínu og Ísraels er erfið. Ríkisstjórn formannsins, Katrínar Jakobsdóttur, stendur að hjásetu Íslands varðandi átakin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Fram að þessu hafa Vinstri grænir verið einhuga í samstöðu með Palestíumönnum og tilbúnir til að fordæma Ísraelsmenn fyrir kúgun og ofbeldi. Nú hefur orðið á breyting og VG ber ábyrgð á því afstöðuleysi sem birtist....
SlúðurTekur ábyrgð á Sigríði Meint skattsvik Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, fréttamanns Ríkisútvarpsins og formanns Blaðamannafélagsins, hafa verið til umræðu í fjölmðiðlum. Sigríður Dögg er sökuð um að hafa ekki talið fram háa fjármuni sem hún og eiginmaður hennar, Valdimar Birgisson, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, fengu frá Airbnb vegna leigu á íbúðum. Málið þykir vera viðkvæmt fyrir Ríkisútvarpið sem áður hefur gert sambærileg undanskot að fréttaefni en...
SlúðurGuðbjörg vekur ótta Eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, Ísfélagið í Vestmannaeyjum, hefur verið dæmt til að greiða Þorgeiri Pálssyni, núverandi sveitarstjóra í Strandabyggð, þrjár milljónir krónda í vangoldin laun. Dómurinn er tilkominn vegna svika félagsins við Þorgeir sem lagði upp fyrir félagið kaup á kvóta í Namibíu en toppar félagsins ákváðu síðan að gera verkefnið að sínu og sviku Þorgeir sem fór í mál...
SlúðurHvíslað um Bjarna Leikrit Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra í kringum „afsögn“ hans sem fjármálaráðherra hefur kallað á fleiri spurningar en þeim sem svarað var með hrókeringunni. Það hafði legið í loftinu allt síðan í fyrravetur að Bjarni væri tilbúinn með þá fléttu að skipta um stól við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og gera hana að formanni án kosningar. Greint var frá fyrirhugaðri fléttu á...
SlúðurHeimir vill ekki „fokk feðraveldi“ Konur slóu svo sannarlega í gegn í gær þegar þær troðfylltu miðborg Reykjavíkur til að mótmæla því misrétti sem konur og kvárar búa við á Íslandi. Giskað er á að 70-100 þúsund manns hafi mætt til mótmælanna. Langflestir eru hæstánægðir með mætinguna og málstaðinn. Málið bar á góma í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. Heimir Karlsson, stjórnandi þáttarins og...
SlúðurPáll ók drukkinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og fréttastjóri Stöðvar 2, hefur sent frá sér öldungis frábæra bók, Í stríði og friði fréttamennskunnar, sem er einskonar uppgjör hans eftir langan fjölmiðlaferil. Ýmislegt viðkvæmt ber á góma svo sem afdrifaríkt eftirpartý þegar Kryddsíldinni lauk á Stöð 2 á gamlársdag. Sigmundur varafréttastjóri, Páll Magnússon fréttastjóri og Davíð Oddsson forsætisráðherra sátu að sumbli eftir...
SlúðurÓttar í ólgusjó Hæstaréttarlögmaðurinn Óttar Pálsson hefur staðið í ólgusjó undanfarna mánuði. Hann var fréttaefni á Vísi og í Morgunblaðinu um helgina. Uppgefið tilefni fréttanna er að hann og eiginkona hans, Anna Rut Þráinsdóttir viðskiptafræðingur hjá Landsvirkjun, hafa ákveðið að slíta samvistir. Óttar er einn eigenda lögmannsstofunnar Logos og hefur getið sér gott orð sem lögmaður allt frá því eftir hrun. Hann var...
SlúðurSara Lind í stuði Sara Lind Guðbergsdóttir, settur forstjóri Ríkiskaupa, situr ekki með hendur í skauti þessa dagana. Forstjórinn hefur lýst yfir aðgerðum á hendur þeim ríkisstarfsmönnum sem soga persónulega til sín vildarpunkta með því að ferðast á kostnað almennings með Icelandair. Sara bendir á að fæstir vilja ferðast með Play sem býður ekki upp á sporslur af þessu tagi. Þetta kostar ríkið svimandi...
SlúðurAgli sparkað upp Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Egill Helgason, var í stórviðtali í Ríkissjónvarpinu, vinnustað sínum, þar sem þau Gunnar Hansson og Guðrún Gunnarsdóttir ræddu við starfsbróður sinn um líf hans og viðhorf. Egill var að vanda opinskár um kvíðasjúkdóm sinn og annað sem á honum hefur dunið á löngum ferli. Þá var honum tíðrætt um afrek sonar síns, Kára Egilssonar, sem hefur gert það...
SlúðurBjörgvin var undrabarn Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra Samfylkingar, hefur verið á póliitískum vergangi síðan hann hraktist af þingi árið 2013 í hruni Samfylkingar eftir 10 ára þingsetu. Þegar bankarnir hrundu var hann í einu aðalhlutverkanna sem viðskiptaráðherra. Honum var þó haldið utan við það sem var að gerast dagana áður en Glitnir féll. Þar héldu Geir Harde forsætisráðherra og Davíð...