SlúðurVanda fær rauða spjaldið Íslenskir knattspyrnudómarar eru orðnir langþreyttir á KSÍ og sýndarmennsku sambandsins þegar kemur að dómaramálum á landinu. Starfsaðstæður dómara hafa lengi verið slæmar en telja margir dómarar að nú sé nóg komið. KSÍ fór af stað í lok maí með herferð sem snýst um að bera eigi meiri virðingu í garð dómara og notast sambandið við myllumerkið #takkdómarar. Viku eftir að...
SlúðurDavíð hæðist að barni Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, birtir í dag einhvern furðulegasta leiðara Morgunblaðsins frá upphafi. Þar rantar ritstjórinn fram og til baka, með lítt skiljanlegum hætti, um loftslagsógnina sem hann telur að sér „eins konar grýlusaga samtímans, brúkuð til að hræða lítil börn“. Hann hæðist að þeim þjóðarleiðtogum sem hlýddu á málflutning Gretu Thunberg sem hefur haldið uppi andófi þeirri vá sem...
SlúðurLukkupottur Björns Inga Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, er ekki á flæðiskeri staddur ef marka má tekjur sem skatturinn gefur upp og Frjáls verslun endurómar. Björn Ingi er með rúmlega 5,1 milljón krónur í mánaðarlaun þrátt fyrir gjaldþrot og aðrar hrakfarir. Hann kemur fast á hæla Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og eftirlaunaþega, sem sópaði að sér tæplega 6 milljónum á mánuði í miðju...
SlúðurFrosti stóðst atlöguna Slaufunarsinnum varð ekki kápan úr því klæðinu þegar þeir gerðu atlögu að fjölmiðlamanninum Frosta Logasyni í fyrra. Edda Falak reiddi hátt til höggs þegar hún birti viðtal við fyrrverandi kærustu Frosta sem gerði upp sakir úr sambandi þeirra sem lokið hafði áratug áður. Mörgum fannst aðförin ósanngjörn en það stöðvaði ekki Öfgaherinn sem fylgdi á eftir með kröftugri herferð opinberrar...
SlúðurGróði tryllir Sólveigu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ævareið eftir að upplýst var um að Íslandshótel græddu langt yfir milljarð króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Að baki gróðanum er Davíð Torfi Ólafsson forstjóri sem hefur svo sannarlega komið ár sinni vel fyrir borð. Þegar Eflingarfólk stóð í verkfalli átti það í hatrömmum deilum við Davíð Torfa og hans fólk sem sakað...
SlúðurHalli með 1,5 milljón á dag Haraldur Ingi Þorleifsson, fyrrverandi yfirmaður hjá Twitter, er tekjuhæsti Íslendingurinn samkvæmt úttekt fjölmiðla. Hann var með hvorki meira né minna en 46 milljónir króna á mánuði í tekjur á síðasta ár eða 1,5 milljón króna á dag. Til að reikna áfram þá þénaði Halli, jafnt í svefni sem vöku, 64 þúsund krónur á klukkustund. Grunnurinn að þessum tekjum eru auðvitað...
SlúðurÞórdís og Rússarnir Hörðustu stuðningsmenn Bjarna Benediktssyni, formanns Sjálfstæðisflokksins, leggja hart að honum að sitja áfram sem formaður í stað þess að hleypa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur varaformanni að í haust án kosningar. Alkunna er að Þórdís er sá kandídat sem vegamóður Bjarni vill að taki við af embættinu. En nú þykir stuðningsmönnum hans sem blikur séu á lofti og bæði Guðlaugur Þór...
SlúðurMikael og barnsgráturinn Knattspyrnuþjálfarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og „sparkspekingurinn“ Mikael Nikulásson missti stjórn á skapi sínu um helgina þegar lið hans tapaði fótboltaleik, eins og Mannlíf greindi frá. Í leiknum grætti hann tíu ára boltastelpu, sem þykir ekki vera boðleg framkoma, eins og fram kom á samfélagsmiðlum. Þar var því jafnframt haldið fram að hann skammaðist sín fyrir atvikið, sem er málum blandið. Mikael útskýrði...
SlúðurÁslaug sjóðandi heit Vangaveltur um arftaka Bjarna Benediktssonar sem formanns Sjálfstæðisflokksins halda áfram. Víst er að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra vísinda, er sjóðandi heit og hefur fullan hug á embættinu. Bjóði hún sig fram gæti það stórskaðað Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur varaformann og óskakandidat Bjarna. Slagur á milli kvennanna tveggja myndi efla Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og áskoranda Bjarna, sem auðveldlega gæti hrifsað...
SlúðurEdda Falak á forsíðunni Gustað hefur um baráttukonuna Eddu Falak undanfarin misseri. Edda gat sér gott orð með hlaðvarpinu Eigin konur þar sem stigu fram konur sem orðið höfðu illa út í samskiptum við feðraveldið. Sjálf átti hún sér þá sögu að hafa verið áreitt kynferðislega, meðal annars þegar hún starfaði í dönsku stórfyrirtæki. Það reyndist síðan málum blandið að hún hefði unnið þar...
SlúðurSvandís svínbeygð Ríkisstjórnin er sumpart lifandi dauð eftir stjórntök Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem með einu pennastriki bannaði hvalveiðar og svipti á annað hundrað manns lifibrauði sínu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkins, hefur fátt sagt um aðgerð ráðherrans en er kokhraustur og virðist reyna að gera allt sem mögulegt er til að halda friðinn og þar með eigin ráðherrastóli. Minni spámenn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins...
SlúðurHarmur Ásmundar Fjölskyldudeilurnar um Lambeyrar í Dalasýslu hafa farið hátt undanfarið. Þrjár systur halda úti hlaðvarpinu Lömbin þagna ekki og fjalla í smáatriðum um átökin sem snúast um það að Daði Einarsson, faðir Ásmundar Einars Daðasonar barnamálaráðherra, er sakaður um að hafa sólundað föðurarfi sínum og systkina sinna. Jörðin Lambeyrar sem systkinin erfðu hafnaði á uppboði og Skúli Einarsson, faðir systranna, og...