SlúðurRosalega ríkur Jón Athafnamaðurinn Jón Ólafsson var um tíma einn sá umsvifamesti á Íslandi. Hann átti Stöð 2 og allt sem því fylgdi auk þess að vera sá stærsti á sviði plötuútgáfu. Þá var hann innvinklaður í fjárfestingar í banka undir merkjum Orca-hópsins þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorsteinn Már Baldvinsson voru einnig innanborðs. Hann var á þeim tíma í ónáð stjórnvalda...
SlúðurBjarni passar bankana Sú hugmynd Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra viðskipta, að leggja hvalrekaskatt á bankana hefur víða hlotið góðan hljómgrunn. Lilja vill með þessu ná til baka hluta af þeim gróða sem einkennt hefur bankastarfsemi undanfarið og bæta kjör almennings. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er andvígur hugmyndinni. Hann sagði í viðtali við Bylgjuna að hann efaðist um að slíkur skattur myndi bæta kjör heimila eða...
SlúðurÁrásin á Stefán S. Mörgum brá í brún þegar tveir menn, annar vopnaður hnífi, réðust á Stefán S. Stefánsson, tónlistarmann og eiginkonu hans, Önnu Steinunni Ólafsdóttur, þar sem þau voru á göngu í Fossvogsdal um liðna helgi. Þetta þykir vera dæmi um vaxandi grimmd og hörku ofbeldismanna. Stefán var óhræddur við að lýsa þeim skepnuskap sem átti sér stað í náttúruparadísinni og lýsti atburðinum...
SlúðurKristján borgar öllum Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, heldur öllum starfsmönnum sínum á launum þrátt fyrir hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur marvælaráðherra sem gildir til fyrsta september. Engum hefur verið sagt upp og eru áform um að hefja veiðarnar 1. september að óbreyttu, að Því er fram kemur í fjölmiðlum í dag. Um er að ræða á annað hundrað starfsmenn sem hafa drepið tímann undanfarnar...
SlúðurDiljá treystir Bjarna Fæstum dylst að mikil ólga er innan Sjálfstæðisflokksins sem er í alvarlegri fylgiskreppu. Samstarfið milli Sjálfstæðisflokksins og VG er í uppnámi og samskipti milli flokkanna er við frostmark. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var í viðtali á Sprengisandi þar sem Kristján Kristjánsson spurði hana um ágreininginn á milli stjórnarflokkanna sem hún gerði lítið úr og taldi fráleitt að stjórnin myndi...
SlúðurBubbi fjúkandi reiður Söngvaskáldið Bubbi Morthens er strandaglópur eftir að Icelandair sveik hann með því að fresta flugi frá Krít til Íslands. Fluginu var frestað um hálfan sólarhring sem þýddi að Bubbi kemst ekki í áformaða veiði í Laxá í Aðaldal. Hann segist sitja uppi með mikið fjárhagstjón. Farþegum útveguð gisting á hóteli yfir nóttina eftir frestunina. „Verslunarmannahelgin er farin og þú gerir...
SlúðurDavíð djöflast Morgunblaðið hefur farið hamförum í baráttu sinni gegn Jo Biden, forseta Bandaríkjanna, og gert lítið úr honum bæði í leiðurum og fréttaflutningi. Á dögunum þegar fjölmiðlar heimsins loguðu vegna fregna af ákærum á hendur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var Davíð Oddsson upprifinn yfir því að Biden hefði hugsanlega vitað af vafasömum viðskiptum sonar síns, Hunter Biden. Það mál hafnaði á...
SlúðurKristrúnu misboðið Eldar loga innan Þjóðkirkjunnar vegna deilna um það hvort Agnes Sigurðardóttir biskup hafi umboð til að sitja í embætti eða ekki. Mogginn hefur verið duglegur við að bera sprek á bálið og kynda undir illindunum í hinni heilögu kirkju. Á forsíðu fimmtudagsblaðsins var greinarkorn þar sem skilja mátti að Kristrún Heimisdóttir , einn af varaforsetum Kirkjuþings, teldi að Agnes hefði...
SlúðurKristrún í stuði Glímuskjálfti er kominn upp innan Samfylkingar eftir því sem fleiri kannanir undirstrika að flokkurinn er í stórsókn og mælist með hartnær þriðjungs fylgi á meðan höfuðóvinurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, er auðmýktur og rétt sleikir 20 prósenta múrinn undir stjórn Bjarna Benediktssonar. Kristrúnu Frostadóttur er fyrst og fremst þakkað að flokkurinn fer nú með himinskautum. Hún er í stuði. Þá munar mikið um...
SlúðurSvandís leggur Óla Björn Sjálfstæðismenn hafa verið með böggum hildar eftir að Svandís Svavarsdóttir, ráðherra matvæla og hvala, bannaðí hvalveiðar með einu pennastriki og svipti hundruð manna sumarvinnu sinni. Hótanir um stjórnarslit eða refsiaðgerðir gegn Vinstri grænum hafa streymt fram í stríðum straumum frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Einn sá harðasti í þessu máli var Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem skrifaði grein í Moggann eftirt...
SlúðurErfið staða Lindu Linda Jónsdóttir, nýkjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka, náði kjöri á hluthafafund bankans föstudag. Með stuðningi Bankasýslu ríkisins var Linda sjálfkjörin í embættið en auk hennar koma þau Stefán Pétursson, Helga Hlín Hákonardóttir og Haukur Örn Birgisson ný inn í stjórnina. Linda hefur undanfarin 14 ár starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðs hjá Marel. Mikið hefur verið rætt um stöðu Lindu innan Marels...
SlúðurÖrlög Agnesar Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, stendur í ólgusjó þessa dagana vegna ráningarsamnings sem undirsáti hennar gerði við hana. Málið á sér rætur í því að biskup setti séra Gunnar Sigurjónsson af í embætti eftir að ásakanir komu fram um að hann væri sekur um kynferðislegt áreiti. niðurstaða teymis Þjóðkirkjunnar var sú að hann væri sekur og var honum vísað úr starfi....