SlúðurIllska í Sjálfstæðisflokknum Gríðarleg illska er innan Sjálfstæðisflokksins vegna fylgishruns flokksins og hvalveiðibanns Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem bakkað er upp af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hinn almenni flokksmaður hefur fengið nóg af þessum innanmeinum og ákall er um uppgjör innan ríkisstjórnarnarinnar og flokksins. Þar er horft til þess að Bjarni Benediktsson víki af stóli, saddur pólitískra lífdaga, og rými fyrir nýjum formanni sem hafi...
SlúðurEiríkur boðar góðverk Eiríkur S. Jóhannesson, stjórnarformaður Samherja, er með langa grein í Aftenposten þar sem hann lýsir því að sótt hafi verið að Samherja í Namibíu og telur að taka hafi átt fyrirtækið niður með bolabrögðum og skipulögðum leka. Samherjamenn hafa lýst sig saklausa af mútustarfdsemi og glæpum og þvertaka fyrir að hafa gert eitthvað rangt. Það vekur þó óneitanlega athygli í...
SlúðurSvandís krafin svara Svandís Svavarsdóttur matvælaráðherra setti allt í uppnám þegar hún bannaðí hvalveiðar örfáum dögum áður en vertíðin átti að hefjast. Ákvörðunin hefur bakað Hvali hf. og Kristjáni Loftssyni aðaleiganda fyrirtækinsins stórtjón. Afar líklegt þykir að ríkissjóður sé bótaskyldur vegna þessa. Ólga er innan stjórnarflokkanna vegna málsins og hefur samstarfið aldrei staðið eins tæpt. Sjálfstæðismenn hafa fordæmt framgöngu ráðherrans einum rómi og...
SlúðurAgnes ráðin af undirsáta Sú einstaka staða er komin upp að Agnes M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, situr í embætti án þess að hafa til þess löglegt umboð. Talsvert uppnám er vegna þessa. Það er forseti Íslands sem skipar biskupinn í embætti að tillögu kirkjuþings. Skipunartími Agnesar rann út 1. júlí 2022 en undirmaður hennar. Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Biskupsstofu,gerði við hana nýjan ráðningarsamning til 31...
SlúðurÁsmundur í klandri Ásmundur Einar Daðason, ráðherra barnamála, er í vanda vegna hlaðvarpsins sem frænkur hans halda úti um ættardeildur þeirra í Dalasýslu. Í hlaðvarpinu, Lömbin þagna ekki, er farið yfir áralangar deilur um jörðina Lambeyrar sem markast af átökum og óbeinu ofbeldi eftir að jörðin fór á uppboð og ráðherrann og faðir hans misstu hana. Ása Skúladóttir, frænka ráðherrans, fer fyrir hlaðvarpinu...
SlúðurTómas fékk heimsókn Hjartalæknirinn Tómas Guðbjartsson lætur sig margt varða. Hann er einlægur náttúrusinni og berst gegn hverjum þeim ófögnuði sem skaðað getur íslenska náttúru. Nýleg færsla hans um mengandi skemmtiferðaskip við Íslands vakti mikla athygli. Hann taldi fráleitt að laða að skipin og fá yfir sig „það neikvæða álag og ímynd sem skapast af svona spúandi fljótandi mengunarvöldum“. Tómas og Kona hans,...
SlúðurSvik Sigurðar Inga Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra samgöngumála, á ekki upp á pallborðið hjá Vestfirðingum eftir að hann hefur blásið af stór verkefni í héraðinu. Um árabil hefur hann ýmist lofað eða svikið að gera nýjan veg um Veiðileysuháls og létta þannig íbúum í Árneshreppi lífið og tilveruma. Nú blasa svikin við á svæði sem á hvað erfiðast uppdráttar. Ekkert er að gerast...
SlúðurElliheimili Bubba Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er ófeiminn við að láta í ljósi skoðanir sínar á málefnum sem mönnum. Í færslu á Facebook lýsti hann áhyggjum sínum af því að enskan er smám saman að yfirtaka íslenskuna á veitingahúsum, sjúkrahúsum og elliheimilum. Bubbi, sem er kominn nokkuð við aldur, hefur áhyggjur af því að ef hann lendi á elliheimili muni móðurmálið ekki duga...
SlúðurEfast um Þórdísi Innan Sjálfstæðisflokksins gætir vaxandi spennu vegna forystumála flokksins. Flokkurinn glímir við fylgishrun og er með minna fylgi en elstu menn muna. Því er nánast slegið föstu að Bjarni Benediktsson formaður sé á förum af formannsstóli og vilji hans standi til þess að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður taki við flokknum. Það gæti gerst snögglega og án kosninga ef Bjarni tekur...
SlúðurÞorgerður varð óð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er gjarnan merkisberi réttlætis hreinleika þar sem kemur að kvótamálum. Flokkur hennar hefur hiklaust gagnrýnt framgöngu Samherja á erlendum vettvangi. Þorgerður á sér fortíð í Sjálfstæðisflokknum þar sem hún hófst til metorða þrátt fyrir ónáð og ónot Davíðs Oddssonar formanns. En það er fleira í fortíð Þorgerðar. Heimildin upplýsir að hún hafi sem sjávarútvegsráðherra gengið...
SlúðurJón Guðni iðrast Staða Íslandsbanka eftir svindlið við útboð á bréfum bankans er slæm. Hlutabréf í bankanum eru í sögulegu lágmarki og fátt framundan. Viðbrögð Birnu Einarsdóttur, þáverandi bankastjóra, við sekt Fjármálaeftrlitsins þótt einkennast af hroka en ekki þeirri nauðsynlegu auðmýkt sem staðan krafðist. Fram að úrskurði Fjármálaeftirlitsins var Birna nánast óumdeild. Skaðinn af framferði hennar og annarra stjórnenda bankans er sá að...
SlúðurSigurður varð blindur Útvarpsmaðurinn góðkunni, Sigurður G. Tómasson, var í hressandi viðtali á Rás 2 í tilefni þess að Rásin er 40 ára. Víst er að margir supu hveljur þegar hann tók fyrir afskipti forystumanna Sjálfstæðisflokksins af stofnuninni. Hann lýsti því að Davíð Odddssyni, Þáverandi formanni, hefði alla tíð verið í nöp við Rás 2 og hann hefði neitað að mæta í viðtöl...