SlúðurÓhróður Egils Sjónvarpsmaðurinn geðþekki, Egill Helgason , á sér dökka hlið sem gjarnan brýst fram á samfélagsmiðlum. Þessu fékk Skerjafjarskáldið Kristján Hreinsson að finna fyrir eftir að Felix Bergsson , starfsmaður RÚV, og fleiri snéru Faðirvorinu upp á andskotann og túlkuðu skrif Kristjáns sem aðför að transfólki þegar hann var í raun að gagnrýna alla þá sem hafa fordóma í garð minnihlutahópa....
SlúðurGuðrún stendur á gati Meint yfirvofandi ráðherraskipti Sjálfstæðisflokksins eru orðin vandræðaleg fyrir Bjarna Benediktsson formann sem lofaði því við upphaf kjörtímabilsins að Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrsti þingmaður Sunnlendinga, yrði dómsmálaráðherra þegar 18 mánuðir væri liðnir af kjörtímabilinu. Jón Gunnarsson, náinn samherji Bjarna, átti að hita upp fyrir Guðrúnu í dómsmálaráðuneytinu. Hann situr enn og ekkert fararsnið á honum. Jón þykir reyndar hafa staðið sig vel...
SlúðurFelix þorði ekki Felix Bergsson fjölmiðlamaður og Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld fengu boð um að mætast í Bítinu á Bylgjunni í morgun til að ræða pistil Kristjáns um vitlaust fólk í réttum líkama sem setti allt í bál og brand og andsvar Felix sem skilgreindi skáldið á meðal dreggja samfélagsins á borð við Davíð Oddsson og Pál Vilhjálmsson. Felix bar fyrir sig að geta...
Slúður„Hroðvirkni Hannes“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sló í gegn með ræðu sinni á sjómannadaginn í Grindavík þar sem hann gerði að umræðuefni meint misferli sjávarútvegsfyrirtækja gagnvart launþegum sínum. Fáum duldist að hann sendi þarna sneið á Samherja sem hefur þurft að sæta þeim ávirðingum Ríkisútvarpsins að hafa falsað fiskverð og .annig hlunnfarið sjómenn sína. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, fyrrverandi prófessor sem sestur...
SlúðurSigurgeir fær milljarða frá þjóðinni Einn umdeildasti útgerðarmaður landsins, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson í Vestmannaeyjum, stórgræddi á þjóð sinni ef dómur undirréttar í makrílmálinu svokallaða stendur. Sigurgeir krafðist fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og tengdrar útgerðar bóta upp á milljarða króna vegna úthlutunar á markrílkvóta. Undirréttur fyrirskipaði að Huginn VE-55 og Vinnslustöðin skyldu fá tvo milljarða króna í skaðabætur. Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegsráðherra hefur þegar lýst því yfir að...
SlúðurKristján er fórnarlamb Brottrekstur Skerjafjarðarskáldsins Kristjáns Hreinssonar frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands vakti mikla athygli. Kristján var látinn fara í kjölfar þess að hann skrifaði grein eins og Mannlíf greindi frá. Margir eru á þeirri skoðun að þarna hafi verið gengið of langt og að skáldið úr Skerjafirðinum sé fórnarlamb rétthugsunar og hreinsana. Einar Gautur Steingrímsson lögmaður er ómyrkur í skrifum á Facebook og...
SlúðurKári snuprar Samherja Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fór á kostum í ræðu sinni á Sjáoarnum síkáta, sjómannadeginum í Grindavík. Kári er vanur að láta hvína í tálknum þegar honum hentar. Að þessu sinni gerði hann að umtalsefni þau kjör sjómanna að verða bókhaldstrikkum útgerðarinnar að bráð og láta hlunnfara sig. „Með því að hýrudraga þá með flóknum bókhaldstrikkum, til dæmis með því...
SlúðurEkki hjá Sigríði, takk Guðni Th. Jóhannesson hefur undanfarið legið undir feldi og íhugað hvort hann eigi að taka þriðja kjörtímabilið sem forseti Íslands. Forsetinn nýtur fádæma vinsælda og víst að hann mun ná kjöri að óbreyttu, ef hann vill. Eins og greint var frá þessum vettvangi hefur hann undanfarið leitað ráða hjá fólki. Fjölmiðlar hafa fram að þessu gefið Guðna svigrúm til þess...
SlúðurÁslaug sperrir stél Fátt getur komið í veg fyrir að kosið verði um formann Sjálfstæðisflokksins á landsfundi eftir rúmt ár. Bjarni Benediktsson er á förum, fullsaddur af átökum og fylgistapi. Flokkurinn mælist í skammarlega lágu fylgi á meðan Samfylking fer með himinskautum. Krónprinsessa Bjarna er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem hugsanlega verður formaður án kosningar í haust. Hið eitursnjalla plan um að gera...
SlúðurMiskunnarlaus Guðlaugur Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur engan áhuga á að leysa ráðherrakrísu Sjálfstæðisflokksins með því að verða sendiherra í Washington DC eða annnarstaðar á heimsbyggðinni. Hann sýnir Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og aðstæðum hans fullkomið misunnarleysi og hyggst ekki hætta í stjórnmálum til að létta formanninum róðurinn, sem stendur andspænis því að þurfa að henda einum sínum nánasta bandamanni, Jóni Gunnarsyni dómsmálaráðherra...
SlúðurGuðlaugur til Washington? Ráðherrakrísa Sjálfstæðisflokksins er nú um það bil að raungerast. Runninn er upp sá tími að Guðrún Hafsteinsdóttir á að verða dómsmálaráðherra samkvæmt loforði Bjarna Benediktssonar formanns. Vandinn hefur hinsvegar verið sá að Jón Gunnarsson vil ekki fara og hann situr sem fastast og nýtur stuðnings í því efni. Nú flýgur fyrir að farsæl lausn sé í sjónmáli. Guðlaugi Þór Þórðarsyni...
SlúðurÁsta rekur framkvæmdastjóra Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festis, hefur svo sannarlega tekið til hendinni frá því hún tók við starfi sínu í kjölfar þess uppgjörs sem varð þegar Eggert Þór Kristófersson forstjóri var látinn taka pokann sinn þrátt fyrir velgengni. Hann var látinn fara í kjölfar þess að stjórnarmenn og eigendur tengdust pottamálinu fræga í Borgarfirði sem Vítalía Lazareva sagði eftirminnilega frá. Hann...