SlúðurHorft til Svanhildar Hólm Brotthvarf Halldórs Benjamíns Þorbergssonar af stóli framkvæmdastjóra atvinnulífsins kom fólki í innsta hring ekki á óvart. Halldór Benjamín réði illa við það ástand sem skapaðist þegar Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í Eflingu voru þversum í samningaviðræðum og kostnaðarsöm skæruverkföll dundu á fyrirtækjum. Halldóri skorti þá lipurð í þeim samskiptum sem talsmaður atvinnurekenda þarf að hafa. Nýtt starf hjá...
SlúðurSólveig í stuði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er aftur komin í baráttuham eftir síðustu kjaralotu sem skilaði litlu en markaðist af átökum við Aðalstein Leifsson ríkissáttasamjara ekki síður en vinnuveitendur. Nú beinast spjót Sólveigar að Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins. Boðað hefur verið til fundar í Eflingu þar sem lagt er til að félagið segi sig úr Starfsgreinasambandinu, væntanlega í því skyni að...
SlúðurSigfús seldi vegna fátæktar Handboltakappinn dáði, Sigfús Sigurðsson, veðsetti á sínum tíma silfurmedalíuna sem hann fékk á olympíuleikunum í Peking á sínum tíma. Þetta vakti þjóðarathygli og einhverjir urðu hneykslaðir. Handknattleiksambandið leysti medalíuna seinna til sín út að Sigfúsi forspurðum. Þetta atvik er grunnurinn að fyrsta skammti af sjónvarpsþættinum Afturelding þar sem aðalsöguhetjan, drykkfelld handboltahetja leikin af Ingvari E. Sigurðssyni, selur medalíuna sína. Einhverjum...
SlúðurSlúðrað um Jón góða Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður Moggans, er með stórviðtal við Jón Ólafsson tónlistarmann sem gjarnan er kallaður Jón góði, til skilgreiningar frá nafna sínum. Jón leiðir hljómsveitina Ný dönsk og hefur verið fyrirferðarmikill á tónlistarsviðinu undanfarna áratugi. Hann fagnar nú sextufsafmæli sínu með stórtónleikum. Í viðtalinu rifjar hann upp fyrstu kynnin við eiginkonu sína, Hildi Völu Einarsdóttur, sem er 19 árum yngri...
SlúðurTvístígandi vegna Jóns Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er í vaxandi vandræðum vegna Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra sem samkvæmt öllum kokkabókum ætti að vera hættur í embætti og kominn á gólfið sem þingmaður. Bjarni hafði lofað að Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrsti þingmaður Sunnlendinga, tæki við embættinu þegar liðið verður á kjörtímabilið en það hefur enn ekki gengið eftir. Mikið hefur gengið á í kringum Jón ráðherra...
SlúðurFortíð Þorvaldar Lúðvíks Sú tilkynning Niceair að hlé hafi verið gert á starfseminni og farþegar erlendis kæmust ekki heim með flugfélaginu hefur valdið bæði uppnámi og áhyggjum. Norðlendingar höfðu bundið miklar vonir við reksturinn sem átti að gefa þeim beina tengingi við útlönd. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Nicair, hóf reksturinn af miklum eldmóði en lenti strax í ógöngum þegar bresk flugmálayfirvöld gáfu félaginu...
SlúðurEkki eyða mínútu í Andrés Andrés Magnússon , yfirmaður minningargreina Morgunblaðsins, er á meðal umdeildustu blaðamanna landsins. Í vikunni dylgjaði hann um mútuþægni þingmanna sem koma að afgreiðslu mála hælisleitenda. Hann fetaði þannig í fótspor Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra sem bar þingmenn sömu sökum. Píratinn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir er með óflekkað mannorð en varð fyrir barðinu á Andrési sem lagði út af því í frétt...
SlúðurDavíð er horfinn Björgólfur Thor Björgólfsson, eigandi fjárfestingafélagsins Novator, er eini Íslendingurinn á auðmannalista Forbes. Athygli vekur að athafnamaðurinn Davíð Helgason, er horfinn af listanum. Davíð stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Unity og var á seinasta ári talinn vera einn af 270 ríkustu mönnum heims. Viðskiptablaðið segir fall hans einkum ráðast af falli hlutabréfa í Unity. Davíð er bróðir Egils Helgasonar sjónvarpsmanns og eins helsta gæðings...
SlúðurSigmundur Ernir vill sjónvarpsstöð Fall Fréttablaðsins og sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar hefur valdið miklu umróti á markaðnum. Ekki er talið að Fréttablaðið eigi sér viðreisnar von í óbreyttri mynd. Aftur á móti eru þegar hafnar þreifingar um endurreisn Hringbrautar. Hermt er að Sigmundur Ernir Rúnarsson, fráfarandi aðalritstjóri útgáfu sjónvarpsstöðvarinnar, og fleiri honum tengdir hafi fullan hug á að taka við rekstrinum. Það veltur aftur á móti...
SlúðurAndrés pönkast á Helga Andrés Magnússon, yfirmaður minningargreina Morgunblaðins, skrifar uppsláttarfrétt um fall Fréttablaðsins í blað sitt í dag. Þar reifar hann þau almæltu tíðindi að yfirvofandi gjaldþrot Torgs kosti 100 manns vinnuna. Farið í saumana á því að Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs, hafi innheimt hluta af skuldum félagsins með því að kaupa útgáfurétt út úr Torgi undir merki Fjölmiðlatorgs. Þar er væntanlega vísað...
SlúðurPáll sögukennari borgi milljón Páll Vilhjálmsson, sögukennari við Fjölbrautarskólann í Garðabæ, á yfir höfði sér fleiri lögsóknir eftir að hann var dæmdur til að greiða Þórði Snæ Júlíussyni ritstjóra og Arnari Þór Ingólfssyni, blaðamanni háar fjárhæðir eftir að hafa lýst þeim sem glæpamönnum á bloggi sínu og Morgunblaðsins og sagt þá vera meðseka í svokölluðu byrlunarmáli. Í undirrétti þótti hann hafa sett fram klár...
Slúður„Kvótasnepill reiða ritstjórans“ Marga rak í rogastans í morgun þegar tilkynnt var að Fréttablaðið væri hætt að koma út og sjónvarpsstöðin Hringbraut þögnuð. Gunnar Ársæll Hólmarsson er einn þeirra sem harmaði brotthvarfið og að Íslendingar sitji upp með Moggann, málgagn kvótakarla og kerlinga sem haldið er úti af Guðbjörgu Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum. Gunnar Ársæll lýsti harmi sínum á Facebook og hve mikið hann...