SlúðurBotnlaust bruðl Stefáns Undrun er ríkjandi vegna þess bruðls sem viðgengst hjá Ríkisútvarpinu undir stjórn Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra. Nýverið sendi stofnunin fréttamanninn Björn Malmquist til að vera með asðetur í Brussel og flyja þaðan fréttir og pistla. Kostnaðurinn við það ráðslag gæti verið hátt í 20 milljónir á ári. Þá var sett á stofn einskonar PR-deild og Atli Sigurður Kristjánsson ráðinn til að...
SlúðurKlaustur-Karl verður lögreglustjóri Ólga er í Vestmannaeyjum eftir að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ákvað að Karl Gauti Hjaltason yrði næsti lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Karl Gauti á sér þá fortíð að hafa verið kosinn þingmaður Flokks fólksins. Þingmennska hans með Ingu Sæland og félögum endaði þó með þeim ósköpum að hann var rekinn eftir uppákomu á Klausturbar. Þar náðist á uppptöku þar sem hann, Ólafur...
SlúðurGuðbjörg þarf meiri styrki Morgunblaðið er í miklum vanda eftir að slitnaði upp úr samstarfi þess og Fréttablaðsins um dreifingu þegar hið síðarnefnda fór úr aldreifingu í það að vera dreift í verslunum og víðar. Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona og aðaleigandi Morgunblaðsins, og félagar hennar í eigendahópi Árvakurs, glíma við það að standa að mestu ein undir sligandi rekstrinum á Póstdreifingu sem heldur utan um...
SlúðurSóley reitti Sólveigu til reiði Lítið hefur heyrst frá Sólveigu Önnu Jónsdóttur , formanni Eflingar, frá því hún mælti með samþykkt miðlunartillögu sáttasemjara í deilunni við atvinnurekendur. Sólveig Anna hefur nú rofið þögnina og beinir spjótum sínum að Sóley Tómasdóttur , fyrrverandi foresta borgarstjórnar, sem hún telur að hafi snúist gegn sér með því að hvetja feminista til að veita henni ekki stuðning í þeirri...
SlúðurSkuggalegur barnakennari Umfjöllun Þorsteins J. Vilhjálmssonar fjölmiðlamanns um barnakennarann Skeggja Ásbjarnarson dregur upp skelfilega mynd af manni sem misnotar og beitir börn ofbeldi í áratugum saman. Skeggi starfaði sem kennari við Laugarnesskóla og var athæfi hans þaggað niður, ef marka má vandaða þætti Þorsteins J. í útvarpi og sjónvarpi. Mörg vitni hafa stigið fram og lýst skuggalegu athæfi kennarans sem skaðað líf...
SlúðurTaktleysi Eddu Falak Sú orrahríð sem geysar vegna ósannsögli Eddu Falak er mörgum áhyggjuefni. Dregið hefur verið fram í dagsljósið að sögur hennar og fjölbreytt ábyrgðarstörf í Danmörku og kynbundið áreiti þeim tengt eru í besta falli uppspuni og trúverðugleiki hennar er í uppnámi. Yfirmenn Eddu á Heimildinni hafa sýnt henni mikinn drengskap og traust með því að standa með henni í sameiginlegri...
SlúðurGeirmundur tvífótbrotinn Geirmundur Valtýsson, einn dáðasti tónlistarmaður landsins, lent í því óhappi að tvífótbrotna fram við bæ sinn, Geirmundarstaði í Skagafirði. Eftir slysið sem varð árið 2020 hefur sveiflukóngurinn úr Skagafirði þurft að koma fram sitjandi með nikkuna í fanginu. Geirmundur segir frá slysinu sem varð veturinn 2020 í Fréttablaðinu og jafnframt því að afleiðing þess séu varanlegar „Ég datt bara á...
SlúðurÁhyggjur vegna Jóns Ásgeirs Gömlu útrásarvíkingarnir, með Jón Ásgeir Jóhannesson í fararbroddi, eru orðnir umsvifamiklir í íslensku viðskiptalífi á ný. Fólki er í fersku minni að við hrunið voru það vafningar útrásarvíkinganna sem höfðu dómínóáhrif sem enduðu með þeim ósköpum að íslensku bankarnir féllu með brauki og bramli og hrikalegum afleiðingum fyrir þjóðina. Jón Ásgeir er kominn til áhrifa í gegnum olíufélagið Skeljung, sem...
Slúður„Ef þú værir Svala Björgvins“ Kristinn Óli Haraldsson, Króli, er ein skærasta stjarnan á himni íslenskrar tónlistar. Hann fékk að vísu engar tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaununum en fékk þann heiður að kynna verðlaunahafa ásamt hinni fjölhæfu Selmu Björnsdóttur sem er kynslóðinni eldri en hann. Þau fóru á kostum og hlífðu hvorki sjálfum sér né öðrum í beittum athugasemdum. Króli benti meðal annars á að Selma...
SlúðurSkrímslin gegn Kristrúnu Þau stórtíðindi að Samfylking er langstærstti flokkur landsins eftir eyðimerkurgöngu undanfarinna ára valda mörgum hrolli. Kristrún Frostadóttir formaður halar inn rúmlega 24 prósent fylgi, samkvæmt könnun Gallups á meðan Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúmlega 20 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn glímir bersýnilega við fylgisfall vegna Bjarna Benediktssonar formanns sem dröslar á eftir sér fortíð sem er í besta falli vafasöm. Salan á Íslandsbanka og...
SlúðurKatrín og krónprinsinn Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er í miklum vandræðum með flokk sinn sem er að visna upp í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Landsfundur Vinstri grænna um helgina bar þess merki að hreyfingin er þjökuð af innanmeinum. Tugir áhrifamanna hafa sagt sig úr flokknum vegna meints dekurs Katrínar við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sem vill sverfa að flóttamönnum á Íslandi og fékk samþykkt...
SlúðurElín er horfin Sjónvarpsstjarnan Elín Hirst er hætt hjá fjölmiðlum Torgs og horfin til í tímabundinna verkefna hjá forsætisráðuneytinu. Það hefur reyndar legið í loftinu lengi að hún væri á förum frá sjónvarpsstöðinni Hringbraut og Fréttablaðinu þar sem hún starfaði þétt við hlið Sigmundar Ernis Rúnarssonar sem næstráðandi hans. Nú er það komið á daginn og fjölmiðlar Torgs eru fátækari eftir brotthvarf drottningar...