Sjónvarpsstjarnan
Elín Hirst
er hætt hjá fjölmiðlum Torgs og horfin til í tímabundinna verkefna hjá forsætisráðuneytinu. Það hefur reyndar legið í loftinu lengi að hún væri á förum frá sjónvarpsstöðinni Hringbraut og Fréttablaðinu þar sem hún starfaði þétt við hlið
Sigmundar Ernis Rúnarssonar
sem næstráðandi hans. Nú er það komið á daginn og fjölmiðlar Torgs eru fátækari eftir brotthvarf drottningar ljósvakans.Elín á að baki fjölda sigra á sviði fjölmiðla í gegnum tíðina. Hún hefur starfað sem fréttastjóri á báðum sjónvarpsstöðvunum og er hafsjór af reynslu. Ekki er ólíklegt að hún eigi eftir að dúkka upp á fjölmiðlum aftur þegar verkefnum í þágu
Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra sleppir …































Athugasemdir