SlúðurKári stuðar offitusjúklinga Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ómyrkur í máli þegar hann fjallar um það andóf sem verið hefur gegn megrunarlyfjum. Undanfarin misseri hafa megrunarlyf komið mörgum til bjargar í baráttunni við aukakílóin. Samtök um líkamsvirðingu og fleiri hafa lagst gegn notkun þeirra og telja að þeim fylgi skaðsemi fremur en gagn. Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir, stjórnarkona í Samtökum um líkamsvirðingu, hefur...
SlúðurSátti bjargar Sólveigu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er á góðri leið með að sameina sitt fólk í verkfallsham. Fyrst eftir að Starfsgreinasambandið gerði sinn samning þótti barátta Sólveigar Önnu fyrir verkfalli vonlítil. Miðlunartillaga Aðalsteins Leifssonar sáttasemjara hefur gjörbreytt stöðunni. Forysta Eflingar er komin með sameiginlegan óvín og það er stemmning meðal félagsmanna um að fara í verkfall. Niðurstaðan í atkvæðagreiðslum bílastjóra og...
SlúðurLeyndarmál Þóru Það kom einhverjum í opna skjöldu þegar sjónvarpskoman geðþekka, Þóra Arnórsdóttir, tilkynnti í gær að hún væri að hætta sem ritstjóri Kveiks og yfirgefa RÚV. Þóra fylgir þarna í kjölfar nokkurra þungvavigtarmanna RÚV sem flúið hafa hinn breiða faðm ríkisfyrirtækisins. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, sagði sínu starfi lausu. Þóra segist sjálf vera að fara...
SlúðurHrollvekja Jóns G. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur valdið miklum usla í embættisfærslum sínum á undanförnum vikum. Það mun vera skilningur Guðrúnar Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, að hún eigi að fá dómsmálaráðuneytið þegar 18 mánuðir eru liðnir af kjörtímabilinu og Jón verði þá látinn víkja í næsta mánuði. Hermt er að Jón sé á þeirri skoðun að tímamótin verði þegar 18 mánuðir verða...
SlúðurDularfullt brotthvarf Egils Skyndilegt og fyrirvaralaust brotthvarf Egils Arnar Jóhannssonar af forstjórastóli Forlagsins í liðinni viku vakti mikla athygli. Á sama tíma hætti eiginkona hans, Þórhildur Garðarsdóttir fjármálastjóri, störfum hjá Forlaginu. Egill þykir lengst af hafa staðið sig afskaplega vel í þeim ólgusjó sem fylgir bókaútgáfu á tímum þar sem pappír er á undanhaldi. Forlagið er sannkallaður risi á bókamarkaði undir stjórn Egils...
SlúðurUndarlegt ferðalag Ragnars Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er í mótbyr þessa dagana eftir undarlegar uppákomur í kringum seinustu kjarasamninga. Ragnar er náinn samstarfsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, sem rak allt starfsfólk skrifstofu félags síns á einu bretti og stendur nú í skærum við nánast allt og alla. Ragnar gerði kjarasamning í sama anda og Starfsgreinasambandið en neitaði að mæla með samningnum...
SlúðurJón í ruglinu Fæstir botna í ákvörðunum Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra undanfarna mánuði. Jón er bráðabirgðaráðherra og á að rýma fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur á næstunni, ef marka má Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins og ábyrgðarmann Jóns. Jón hefur, með dyggri aðstoð Brynjars Níelssonar aðstoðarmanns síns, látið til sín taka undanfarið og er greinilegt að hann ætlar að valda sem mestum usla. Útlendingamál hans hafa einkennst...
SlúðurAðalsteini ógnað Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari hefur fram til þessa verið lítt umdeildur og búið við öryggi á vinnustað sínum í Karphúsinu. Nú hefur orðið breyting á ef marka má frásögn Moggans. Sáttasemjari hefur fengið lítt dulbúnar hótanir og sætt illmælgi á samfélagsmiðlum í kjölfar þesss að hann lagði fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Frænka hans, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður...
SlúðurSigríður sögð lygari Baráttukonan Sema Erla Serdar reiðir hátt til höggs þegar hún segir Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra beinlínis ljúga. Málið snýst um brottflutning hælisleitandans Hussein Hussein í byrjun nóvember. Umboðsmaður Alþingis kannaði málið og spurði meðal annars ríkislögreglustjóra um það atvik þegar hælisleitandinn fatlaði var nauðungarfluttur í hjólastól. Sigríður segir að gert hafi verið ráð fyrir að Hussein yrði fluttur á flugvöllinn...
SlúðurHalldóri Benjamín misboðið Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtalka atvinnulífsins, er óhress með þá niðurstöðu kosningu Eflingarfólks á Íslandshótelum að boða til verkfalls. Hann segir við Moggann að sú niðurstaða sem 2 af hverjum þremur sem greiddu atkvæðí studdu sé „mikið reiðaslag fyrir forystu Eflingar“. Þetta er frekar frjálsleg túlkun á niðurstöðunni sem þýðir einfaldlega að Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar unnu sigur...
SlúðurÖgurstund Sólveigar Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur í nógu að snúast í dag. Hún þarf að mæta fyrir dómara til að gera grein fyrir félagaskrá Eflingar og af hverju Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari fær ekki aðgang að henni. Þá verða ljós úrslit varðandi verkfallsboðun félagsins gegn Íslandshótelum, einu fyrirtækja. Mikið uppnám hefur orðið vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem Sólveig Anna og félagar telja...
SlúðurÁslaug spurð um óléttu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra án staðsetningar, er í forsíðuviðtali við helgarblað Moggans þar sem hún fjallar um líf sitt og starf sem stjórnmálamaður. Þar lýsir hún þeim furðuspurningum sem hún fær um einkalíf sitt, sem hefur verið á milli tanna fólks undanfarin ár. Einhverjir hafa áhyggjur af því að hún sé ekki lögst í barneignir, 32 ára, með líkamsklukkuna tifandi....