SlúðurGuðbjörgu ríku misboðið Morgunblaðið fer í dag hamförum í fréttum, leiðara og skoðanadálki vegna verkfalls Eflingar og átakanna við Samtök atvinnulífsins. Blaðið er að mestu í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, auðkonu frá Vestmannaeyjum, sem ræður nokkrum fjölda fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Guðbjörg, hin ríka, hefur um árabil haldið Mogganum uppi og situr í stjórn Árvakurs, hýsils Moggans. Í Staksteinum blaðsins í dag virðist niðurstaðan vera...
SlúðurGlæpur gegn Sólveigu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur byggt upp stemmningu meðal síns fólks og stefnir ótrauð í blóðugan slag. Málflutningur hennar einkennist af slagorðum sem falla vel að smekk félagsmanna sinna. Efling heldur úti skæruverkföllum gegn einstökum fyrirtækjum en hefur forðast að kalla eftir afstöðu félagsmanna varðandi allsherjarverkfall félagsins. Nýjasta útspil atvinnurekenda er að óska eftir heimild til þess að efna...
SlúðurSólveig ógnar ríkisstjórn Eftir viðræðuslit í gærkvöld er kominn upp staða sem erfitt verður að leysa. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er á þeirri harðlínustefnu að mæta skæruhernaði Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, með verkbanni á alla rúmlega 20 þúsund félaga verkalýðsfélagsins sem þá verða launalausir á framfæri Eflingar með gríðarlegum fjárútlátum fyrir félagið. Halldór nýtur stuðnings stjórnar Samtaka sinna við þessa...
SlúðurÁstir Hannesar Hólmsteins Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor fagnaði í gær þeim tímamótum að verða sjötugur. Af því tilefni skrifaði hann greinarstúf til þeiðurs sjálfum sér í Morgunblaðið. „Það er fagnaðarefni að ég skuli verða sjötugur …,“ skrifaði Hannes Hólmsteinn og birti úrklippuna á Facebook. Gunnar Smári Egilsson , foringi sósíalista, brást við með kaldhæðni: „Fallegt af þér að skrifa til þín,“ skrifaði hann....
SlúðurFordómar Bjarkar Björk Eiðsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, er með áratugareynslu og hefur í gegnum tíðina tekið fjölmörg frábær viðtöl. Þessa helgina er stórleikarinn og sjómaðurinn, Þröstur Leó Gunnarsson frá Bíldudal, í forsíðuviðtali um feril sinn og kvíða sem meðal annars á sér rætur í hörmulegu sjóslysi þar sem hann komst af. Í sama blaði og viðtalið birtist lætur blaðamaðurinn í ljós ákveðna...
SlúðurEdda Falak þögnuð Hlaðvarpsstjarnan Edda Falak er þögnuð, í bili að minnsta kosti. Þáttur hennar, Eigin konur, hefur vakið gríðarlega athygli og í mörgu tilfellum breytt þeim mörkum sem hafa verið gildandi í samskiptum kynjanna. Hæst ber væntanlega viðtal Eddu við Vitalíu Lazereva sem varð til þess að Logi Bergmann Eiðsson, Ari Edwald og Arnar Grant misstu vinnuna fyrir meint ósiðlegt athæfi. Auðmennirnir...
SlúðurOrri fær 323 þúsund krónur á dag Orri Hauksson, forstjóri Símans, þarf ekki að kvarta undan launum sínum. Hann þénaði hvorki meira né minna en rúmlega 116 milljónir króna á seinasta ári. Þetta samsvarar því að hann hafi þénað tæpar 10 milljónir króna á mánuði. Heimildin greinir frá þessu. Ef laun Orra er greind enn frekar kemur á daginn að hann hefur 323 þúsund upp úr krafsinu...
SlúðurSigríður vildi ekki Ástráð Vonir eru bundnar við að Ásráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari, nái að leysa þann rembihnút sem blasir við í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Eftir þann furðudóm Landsréttar að Sólveigu Önnu Jónsdóttur, leiðtoga Eflingar, bæri ekki að afhenda Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara kjörskrá félagsins hrökklaðist Aðalsteinn frá deilunni við fagnaðarlæti Eflingarfólks. Ástráður þykir vera vel til þess fallinn að koma að deilunni....
SlúðurKatrín í klandri Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er í miklum vanda ef marka má nýja skoðanakönnun Prósents. Fylgi Vinstri grænna mælist aðeins 5,9 prósent og flokkurinn í bráðri fallhættu. Meira en helmingur atkvæða VG er fokinn út í veður og vind frá seinustu kosningum þegar VG uppskar 12,6 prósent fylgi sem þótti ósigur frá kosningunum á undan þegar flokkurinn var með 16,9 prósenta fylgi....
SlúðurGuðlaugur aftast í rokkrútunni Brynjar Níelsson, varaþingmaðúr og stallari dómsmálaráðherra, á það til að vera með fyndnari mönnum. Um helgina var hann á ferð með rokkrútu Sjálfstæðisflokksins sem fer um landið með þingmenn og aðstoðarfólk í því skyni að hífa fylgi flokksins yfir Samfylkinguna sem fer með himinskautum undir stjórn Kristrúnar Frostadóttur. Talsvert óyndi hefur verið innan Sjálfstæðisflokksins eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson skoraði...
SlúðurArnar yfirgaf Margréti Sá umdeildi varaþingmaður og lögmaður Arnar Þór Jónsson, tapaði fyrir undirrétti máli þar sem skjólstæðingur hans, Margrét Friðriksdóttir ritstjóri varðist eftir að hafa hótað Semu Erlu lífláti síðsumars árið 2018. „Ég drep þig fokking ógeðslega tíkin þín,“ er haft eftir Margréti. Dómarinn taldi að ummælin lýstu skýrum vilja til að skaða Semu Erlu og dæmdi Margréti í mánaðarfangelsi. Margrét, sem...
SlúðurOfstopafólk gegn Bjarna Heljarinnar uppákoma varð við lok ríkisstjórnarfundar þegar hópur félaga úr Eflingu undir stjórn Sólveigar Önnu Jónsdóttur stóð að mótmælum og hrakyrti einstaka ráðherra. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var kölluð svikari og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagður vera rasisti. Óljólst er af hverju hópurinn beindi spjótum sínum að ríkisstjórninni þegar kjaradeilan er við Samtök atvinnulífsins og þann umdeilda Halldór Benjamín Þorbergsson. Nettröll tóku...