Anna Kristjánsdóttir lét tollarana bera smyglið til landsins: ,,Ég smyglaði engu!“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er Anna Kristjánsdóttir, vélfræðingur. Anna var til sjós í 25 ár en nýtur lífisns í dag á Tenerife eins og lesa má í daglegum dagbókarfærslum hennar á Facebook sem hefur notið mikilla vinsælda lesenda. Eina sögu segir hún af því þegar hún var með aðra hendina í fatla eftir slys og var á leiðinni í gegnum Keflavíkurflugvöll, skömmu eftir að nýr flugvöllur hafði verið tekinn í notkun.