Guðbjartur á Guggunni: „Ég get nú sagt ýmis orð um þessa Samherjapilta“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guðbjartur Ásgeirsson skipstjóri, gjarnan kenndur við Gugguna og allir Vestfirðingar og allir landsmenn þekkja það skip og skipstjórana; hann og Ásgeir Guðbjartsson, föður hans. Í viðtalinu fer hann yfir ferilinn og opnar sig meðal annars um það er Guggan var seld, sem var reiðarslag fyrir Vestfirðinga. Guggan var flaggskip Vestfirðinga en svo var hún seld árið 1997. Kaupandinn var Samherji.