Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þorsteinn Már lét annan um að reka Guðbjart: „Hann var ekkert hæstur á vinsældalistanum hjá manni“

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guð­bjartur Ásgeirs­son skip­stjóri, gjarnan kenndur við Gugguna og allir Vest­firð­ingar og allir lands­menn þekkja það skip og skip­stjór­ana; hann og Ásgeir Guð­bjarts­son, föður hans. Í við­tal­inu fer hann yfir fer­il­inn og opnar sig meðal ann­ars um það er Guggan var seld, sem var reið­ar­slag fyrir Vest­firð­inga.

Það kom svo að því að Guð­bjartur hætti störfum fyrir Samherja og spurður að því hvort hann hefði sagt upp þá neitar hann því.

„Nei, nei, ég fór bara heim. Það voru ein­hver veik­indi hjá barni eða eitt­hvað. Ég var svo þess heið­urs aðnjót­andi að verða ráð­inn hjá ein­hverri útgerð þarna við Afr­íku­strendur.“

Hann var því fyrst ráð­inn af Sjóla­skipum sem rann svo saman við Samherja. Honum var þá boðið starfið aftur per­sónu­lega. Spurður út í það hvort það hafi verið Þor­steinn Már sjálfur þá liggur ekki á svörum.

„Já,já Aya­tollah.“

Í milli­tíð­inni höfðu þeir verið að gera út lít­inn plast­bát á línu og það má velta því fyrir sér hvort það hafi ekki verið við­brigði fyrir skip­stjóra af stórum tog­ara að vera kom­inn um borð í lít­inn plast­bát en Guð­bjartur segir ekki.

„Ég fann ekki mik­inn mun á mér þarna um borð í þessum 6 eða 10 tonna bát eða hvað þetta var nú eða seinna 121 metra löngum rússa­tog­ara, eða sóvíet-tog­ara. Þetta var bara allt í lagi. Allir mínir for­feður höfðu allir verið á smærri bátum og þekktu ekk­ert annað. Það gekk ágæt­lega hjá þeim.“

En aftur var Guð­bjartur kom­inn undir Samherja sem keyptu Sjóla­skip árið 2007 en hann starf­aði þar til árs­ins 2012.

„Þá var ég bara rek­inn.“

Var það Þor­steinn Már?

„Nei. Hann hafði nú ekki það mik­inn mann­dóm í sér að gera það sko. Nei, nei, þar var annar fram­kvæmda­stjóri. Hann hringdi og sendi bara tölvu­póst. Ég var bara í fríi úti á Las Palmas. Ég hefði nú alveg getað þolað það að hann hefði getað talað við mann. Þor­steinn Már, frétti ég seinna, hann var þarna úti á Las Palmas. Maður vill nú engum illt en hann var ekk­ert hæstur á vin­sælda­list­anum hjá manni.“

En hvernig leið Ásgeiri föður hans með þetta allt saman?

„Hann reyndi nú að taka þessu vel. Hann var alls ekki sáttur með þetta. Maður er ekk­ert að velta þessu upp úr þessu í dag.“

Það má meta það sem svo að Guð­björgin hafi verið mik­il­væg Vest­firð­ingum á þessum tíma, langt út fyrir það að vera afla­sælt fiski­skip. Þarna höfðu menn byggt upp útgerð og störf­uðu í þágu síns byggð­ar­lags.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér á efn­isveitu Mannlífs.
Þá má lesa við­talið í nýja tölu­blaði Mannlífs, Sjóarinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við