Vélstjórinn og leiðtoginn Helgi Laxdal: ,,Sjómannastéttin er búin og það er henni sjálfri að kenna“
Gestur Sjóarans er Eyfirðingurinn og verkalýðsleiðtoginn Helgi Laxdal. Hann fór fyrir samtökum vélstjóra og starfaði í þágu verkalýðsmála í 25 ár. Hann hóf feril sinn til sjós sem kokkur. Hann fékk veður af því að það vantaði kokk á bát. Starfið tryggði hann sér hjá skipstjóranum á djamminum um nótt. Hann kunni nákvæmlega ekkert að kokka en eins og hann segir þá er allt svo mikið bjartara þegar maður er fullur og engin vandamál.