Sjóarinn: Kjartan Hauksson reri í kringum landið – Háski þegar bátnum hvolfdi í briminu við Rekavík
Kafarinn Kjartan Hauksson reri fyrstur manna einsamall hringinn í kringum Ísland í árabáti. Hann segir frá því að þegar hann reri út af Rekavík á Hornströndum hafi hann lent í stífum norðanvindi sem gerði róðurinn þungan og hamlaði hönum för. Hann ákvað því að varpa út akkeri til að hvíla sig fyrir átökin sem hann sá fram á við að komast áfram leiðar sinnar.