Illugi Jens ósáttur við veiðiráðgjöf á þorski: „Að bæta við einu prósenti er alveg galið“
Sjóarinn lagði land undir fót og hitti skipstjórann, útgerðarmanninn og rafvirkjann Iluga Jens Jónasson á heimili hans í Ólafsvík. Spurður út í veiðiráðgjöfina á þorski kallar hann þá einnar prósentu aukningu á aflaheimildum galna og segist telja að fimm prósent aukning hefði ekki verið óeðlileg núna í ár.