Mamma – 1. þáttur: Fjallar um viðburðaríka ævi móður sinnar á einlægan máta í nýju hlaðvarpi
Laugardaginn 6. janúar klukkan 12:00 hefur göngu sína ný þáttaröð, Mamma, á hlaðvarpsveitu Mannlífs. Kolbeinn Þorsteinsson, sonur Ástu Sigurðardóttur listakonu og Þorsteins frá Hamri, rifjar upp minningar sínar frá miklum umbrotatíma í ævi móður sinnar og varpar ljósi á baráttu hennar til að fá til sín aftur börnin sem frá henni voru tekin.