Mamma – 2. þáttur: Kolbeinn heimsótti frænku sína reglulega á sjúkrahús: „Mér fannst ég hafa komist í feitt“
Í gær var birtur þáttur tvö í hlaðvarpsþættinum Mamma á hlaðvarpsveitu Mannlífs. Kolbeinn Þorsteinsson, sonur Ástu Sigurðardóttur listakonu og Þorsteins frá Hamri, rifjar upp minningar sínar frá miklum umbrotatíma í ævi móður sinnar og varpar ljósi á baráttu hennar til að fá til sín aftur börnin sem frá henni voru tekin. Margt hefur verið sagt um Ástu Sigurðardóttur, en oftar en ekki horft til þess sem hún skildi eftir sig á sviði lista.