InnlentJón Sigurbjörnsson látinn – Einn ástsælasti leikari landsins1. desember 2021 Jón Sigurbjörnsson leikari og óperusöngvari lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í gær, 30. nóvember, 99 ára að aldri. Blessuð sé minning hans. Jón var einn ástsælasti leikari Íslands og var hann fastráðinn í Þjóðleikhúsinu í fjöldi ára sem og í Leikfélagi Reykjavíkur. Þá starfaði hann einnig sem óperusöngvari við konunglegu sænsku óperuna í Stokkhólmi. Þar söng hann til að mynda í...
InnlentMiðborgarbúar syrgja Ófeig kaupmann: „Höfðinginn og ljúfmennið fallinn frá“25. nóvember 2021 Ófeigur Björnsson, kaupmaður og gullsmiður við Skólavörðustíg, er látinn og minnast hans margir miðborgarbúar með fögrum orðum í hópi hverfisbúa á Facebook. Við störf sín lagði Ófeigur áherslu á nýtingu íslensks hráefnis og hafði sjálfur þetta að segja um verk sín í samtali við Morgunblaðið fyrir mörgum árum: „Ég lít á skartgripi sem smágerð myndverk.“ Blessuð sé minning Ófeigs. Miðborgarbúar...
InnlentEnn eitt andlátið vegna Covid – 35 farnir í faraldrinum25. nóvember 2021 Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna covid-19 í vikunni. Þetta er 35. andlátið vegna covid hérlendis. Þetta kemur fram í uppfærðum covid-tölum frá sóttvarnaryfirvöldum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort viðkomandi var bólusettur, en fréttastofa RÚV heldur þvi fram að viðkomandi hafi áttvið undirliggjandi sjúkdóma að stríða og glímt við veikindi lengi.
InnlentBaráttukonan Hellen Linda Drake lést á Landspítalanum: „Elskuleg móðir okkar lést í dag“22. nóvember 2021 Hellen Linda Drake, rithöfundur og baráttukona, er látin. Hún fæddist þann 29. júní árið 1960 og lést þann 19. nóvember síðastliðinn á Landspítalanum eftir erfið veikindi. Hellen Linda var einnig þekkt undir skáldanafninu Baugalín. Hún skrifaði bókina Launhelgi Lyganna sem kom út árið 2000 og notaði þá nafnið Baugalín sem dulnefni. Bókin fjallar um uppvaxtarár hennar í skugga ofbeldis og...
InnlentSÖFNUN -Útvarpsstjarnan Guðni Már borinn til grafar: „Kær vinur sem alltaf fékk okkur til að brosa“15. nóvember 2021 Guðni Már Henningsson, fyrrum útvarpsmaður á Rás 2, verður borinn til grafar í dag klukkan 13 í Lindakirkju í Kópavógi. Hann lést á heimili sína á Tenerife 30. september síðastliðinn, 69 ára að aldri. Safnað er fyrir dætrum Guðna og þeir sem vilja leggja þeim lið finna reikningsupplýsingar hér fyrir neðan. Síðustu ár ævi sinnar bjó Guðni Már á Tenerife...
InnlentValgerður Ólafsdóttir er látin: „Förunautur minn í 53 ár“12. nóvember 2021 Það ríkir sorg í lífi Kára Stefánssonar læknis og forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann tilkynnti á Facebook-síðu sinni síðdegis að eiginkona hans, Valgerður Ólafsdóttir sé látin. „Ástin mín hún Valgerður Ólafsdóttir, sem var förunautur minn í 53 ár lést á Landspítalanum í gær.“ Tilkynningu Kára fylgja tvö ljóð sem hann samdi til Valgerðar, ásamt fallegum myndum af þeim hjónum saman. Vala...
InnlentUng kona fannst látin í sjónum við Reynisfjöru10. nóvember 2021 Í færslu frá lögreglunni á suðurlandi segir að „Klukkan 14:50 barst neyðarlínu tilkynning um að erlendur ferðamaður hefði farið út með öldu í Reynisfjöru. Voru björgunaraðilar þegar sendir á vettvang. Björgunarsveitir í Rangárvallar- og Skaftafellssýslu hófu þegar leit að ferðamanninum, sem var ung kínversk kona.Einnig komu að leitinni bátasveitir frá Árnessýslu ásamt bát frá Vestmanneyjum og þyrlu Landhelgisgæslunnar.Nú fyrir stundu...
InnlentErla Björk 4 barna móðir hefði orðið fertug í dag: „Skagafjörður er afskaplega þétt samfélag“10. nóvember 2021 Skagfirðingar eru hvattir til að tendra ljós í kvöld til minningar um Erlu Bjarkar Helgadóttur sem féll frá í blóma lífsins þann 2. nóvember síðastliðinn. Hún lætur eftir sig eiginmann og fjögur börn. Í dag hefði Erla Björk orðið fertug. Til að minnast hennar og til sýna fjölskyldu hennar stuðning hafa nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, þar sem sonur Erlu Bjarkar...
InnlentGunnar fannst látinn5. nóvember 2021 Gunnar Svanur Steindórsson, sem lýst var eftir á fimmtudag, fannst látinn í Búdapest í Ungverjalandi, þar sem hann var búsettur. Lýst hafði verið eftir Gunnari Svani, eins og Mannlíf greindi frá. Gunnar Svanur var 43 ára. Hann var ókvæntur, lætur eftir sig dóttur. Fram kemur í dagbók lögreglu að ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
InnlentÓlafur er látinn2. nóvember 2021 Rithöfundurinn Ólafur Ormsson lést þann 27. október síðastliðinn. Hann fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1943 . Foreldrar hans voru Ormur Ólafsson, starfsmaður Flugfélags Íslands og Flugleiða, og Jóna Kristín Arnfinnsdóttir húsfreyja. Ólafur ólst upp í Reykjavík fyrstu árin. Hann missti móður sína aðeins fjögurra ára gamall og fór þá í fóstur til föðursystur sinnar í Keflavík. Ólafur starfaði lengst af...
InnlentÆvintýramaðurinn Jón Grímsson er látinn11. október 2021 Jón Grímsson, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður í Seattle í Bandaríkjunum lést í gær eftir baráttu við krabbamein. Hann varð 67 ára 21. september síðast liðinn. Jón fæddist á Ísafirði 21 september 1954 og ólst þar upp. Ungur hóf hann störf við sjómennsku. Hann var meðal annars á togaranum Páli Pálssyni ÍS. Þá var hann um tíma formaður Sjómannafélags Ísfirðinga og...
InnlentGuðbjörg lögregluþjónn var aðeins 41 árs: „Ég mun sakna þín mikið elsku systir“11. október 2021 Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 3. júní 1980. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Kópavogi þann 25. september síðastliðinn aðeins 41 árs að aldri. Guðbjörg lætur eftir sig eina dóttur, Ivy Öldu Guðbjargardóttur, 19 ára. Guðbjörg gekk í Snælandsskóla á yngri árum en þaðan fór hún í Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem hún lauk stúdentsprófi. Guðbjörg vann í...