Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

SÖFNUN -Útvarpsstjarnan Guðni Már borinn til grafar: „Kær vinur sem alltaf fékk okkur til að brosa“

SÖFNUN -Útvarpsstjarnan Guðni Már borinn til grafar: „Kær vinur sem alltaf fékk okkur til að brosa“

Guðni Már Henn­ings­son, fyrrum útvarps­maður á Rás 2, verður bor­inn til grafar í dag klukkan 13 í Linda­kirkju í Kópavógi. Hann lést á heim­ili sína á Tenerife 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, 69 ára að aldri. Safnað er fyrir dætrum Guðna og þeir sem vilja leggja þeim lið finna reikn­ings­upp­lýs­ingar hér fyrir neðan.

Síðustu ár ævi sinnar bjó Guðni Már á Tenerife og vinir hans þar minn­ast hans með hlýjum orðum. Þau Herdís Hrönn Árna­dóttir og Sævar Lúð­víks­son, sem rekar íslend­inga­bar­inn Nostal­gíu, rita fal­leg minn­ing­ar­orð á Facebook-síðu stað­ar­ins:

„Í dag verður bor­inn til grafar góður vinur, sem við Sævar kynnt­umst hér á Tenerife. Lista­mað­ur­inn Guðni Már Henn­ings­son . Rokk­ar­inn sem keyrði 150 km til að fá sér pönnu­kökur hjá okkur, Vík­ing­ur­inn sem atað­ist í Blikanum ,Lista­mað­ur­inn sem setti upp sýn­ingar hjá okkur en síð­ast en ekki síst kær vinur sem alltaf fékk okkur til að brosa. Góða ferð kæri vinur, von­andi er nóg rokk og ról þarna hinumegin.“

Sjá einnig: Guðni Már Henn­ings­son lést á Tenerife: „Hans verður saknað um ókomna tíð enda drengur góður“

Margir muna eflaust eftir Guðna Má úr þætt­inum Næt­ur­vakt­inni á Rás 2, en honum stjórn­aði Guðni af mik­illi prýði um langt skeið.

Auk starfa sinna í útvarpi gaf Guðni út bækur, ljóða­bækur, hélt fjölda mynd­lista­sýn­inga og á einnig bak­grunn í tón­list. Árið 2019 gaf Guðni út bók­ina Römblu­sögur, en í bók­inni segir Guðni kímni­sögur af sjálfum sér og því fólki sem hann hafði kynnst í Römblu­hverf­inu í Santa Cruz á Tenerife.

Eins og áður sagði flutt­ist Guðni til Tenerife árið 2018, þegar hann sett­ist í helgan stein og hætti sem þátta­stjórn­andi á Rás 2. Lífið á Tenerife var honum mjög að skapi.

„Hér vil ég vera það sem eftir er,“ sagði Guðni meðal ann­ars um búset­una á eyj­unni sól­ríku.

Anna Krist­jáns­dóttir vél­stjóri, góð vin­kona Guðna heit­ins og sem einnig býr á Tenerife, fékk hin hörmu­legu tíð­indi í gær­kvöldi. „Í nótt bár­ust mér harma­fregnir. Eftir beiðni frá ræð­is­manni Íslands á Kanarí­eyjum braut lög­reglan sér leið inn á heim­ili félaga míns á Tenerife í gær­kvöldi þar sem hann fannst lát­inn. Hans verður saknað um ókomna tíð enda drengur góður. Dætur hans tvær sem og barna­barn eiga alla mína samúð,“ segir Anna í færslu á Facebook.

Þegar Guðni var spurður að því í sam­tali við Hring­braut árið 2020 hvers hann sakn­aði frá Íslandi sagð­ist Guðni sakna dætra sinna:

„Ég sakna þeirra mest. En fyrir utan það.. mér dettur ekk­ert í hug skal ég segja þér. Stundum langar mig jú í ís­lenskan mat eins og salt­kjöt og hangi­kjöt og ham­borgar­hrygg. Og þegar ég sé myndir af miklum snjó þá hefur mig langað að taka smá rúnt á jeppa.“

Guðni sat sann­ar­lega ekki auðum höndum á Tenerife, en þar opn­aði hann meðal ann­ars mynd­lista­sýn­ingu á íslenska barnum árið 2018, skrif­aði fyrr­nefna bók og ljóða­bók­ina Þar sem kaffið kólnar.

Guðni Már við störf á Rás 2

„Svo ég tók þá ákvörðun, eða kannski var hún alltaf þarna, að selja mín­ar fáu eig­ur, segja upp á Rás 2 og flytja til Santa Cruz. Hingað kom ég með þrjá svarta boli og hund­rað kíló af geisla­disk­um. Gat ekki tekið meira með mér. Eig­in­lega frá fyrsta degi fannst mér ég vera kom­inn heim,“ sagði Guðni um flutn­ing­ana í sam­tali við mbl.is árið 2018.

„Og ég lærði að elska upp á nýtt. Dæt­ur mín­ar tvær, vini og fjöl­skyldu. Það var mér dýr­mætt og ég er þakk­lát­ur fyr­ir það. Ég hóf að skrifa og mála á ný og lífs­gleðin kom aft­ur og ég hef ekki orðið ein­mana hérna þótt oft sé ég einn. Og aldrei fundið fyr­ir heim­þrá,“ sagði Guðni í sama við­tali.

Þeir sem vilja minn­ast Guðna Más og leggja dætrum hans og afa­strák lið geta gert það hér:

Reikn­ings­númer: 0370-26-028576

Kennitala: 030594-2589

Blessuð sé minn­ing Guðna Más Henn­ings­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ