InnlentCovid-19Gabríela ólétt og smitaðist af rjómafernu – Amma smituð líka14. ágúst 2020 „Ég hitti ömmu mína á föstudegi og fór í búð áður. Ég hef örugglega bara smitast af rjómafernunni sem ég keypti eða einhverjum snertifleti,“ segir Gabríela Birna Jónsdóttir, 24 ára íþrótta- og heilsufræðingur úr Reykjavík, sem greindist með COVID 19 þann 1. ágúst. Hún er barnshafandi og átti aðeins eftir hálfan mánuð af meðgöngunni. Gabríela Birna segir í samtali við...
InnlentCovid-19Margir Íslendingar hundfúlir með ferðagjöfina: „Algjört drasl“13. ágúst 2020 Mikla óánægju má finna meðal fjölda Íslendinga sem gert hafa tilraun til að hlaða niður snjallsímaforriti Ferðagjafarinnar í farsímana sína. Forritið er liður í því að ferðalangar geti ný sér fimm þúsund króna ferðagjöf ríkisstjórnarinnar til aðstoðar íslenskum ferðaþjónustuaðilum á Covid-tímum. Margir hafa skilið eftir skoðun sína á fyrirkomulaginu í kommentakerfum, til dæmis í Play Store, og ljóst að mikill...
InnlentCovid-19Hvorki Icelandair né flugmenn svara gagnrýni á framkomu við flugfreyjur12. ágúst 2020 Hvorki talsmenn Icelandair flugfélagsins né formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, vilja tjá sig um gagnrýni á framkomu þeirra við flugfreyjur félagsins í harðri kjarabaráttu þeirra við flugfélagið. Flugmenn bæði í Evrópska Flutningamannasambandinu og Norræna Flutningamannasambandinu hafa sagt framkomu stjórnenda og flugmanna Icelandair gagnvart flugfreyjum til háborinnar skammar. Bæði flugmannafélögin sendu frá sér yfirlýsingar þar sem uppsagnir Icelandair á öllum flugfreyjum...
InnlentCovid-19Ekkert sem styður það að fólk geti veikst aftur af Covid-1912. ágúst 2020 Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, segir engin gögn styðja það að fólk geti veikst aftur af Covid-19 sjúkdómnum. Jafnvel þótt að fólk mælist ekki með mótefni þá þýði það ekki að það sé óvarið fyrir sýkingunni. Hera Sólveig Ívarsdóttir lá inni vegna Covid-19 og hefur áhyggjur af því að hún geti veikst aftur. Ástæðan er sú að þrátt fyrir þrjár...
InnlentCovid-19Græna ljósið komið hjá Rússum vegna Covid-bóluefnis11. ágúst 2020 Rússar telja sig hafa fundið svarið við kórónuveirunni og hafa fengið fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 skráð. Efnið er sagt veita varanlegt ónæmi fyrir kórónuveirunni. Forseti landsins, Vladimír Pútín, tilkynnti þetta formlega nú í morgun en Rússar hafa verið gagnrýndir fyrir að flýta rannsóknum um of á kostnað áreiðanleika bóluefnisins. Framundan er fjöldaframleiðsla efnisins í Rússlandi og stefnt er á bólusetningar...
InnlentCovid-19Enginn greindist með veiruna innanlands í gær11. ágúst 2020 Í gær greindist enginn innanlands með kórónuveirusmit en aftur á móti greindust þrír við landamæraskimun. Tveir einstaklingar eru enn á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af annar þeirra á gjörgæslu.Samkvæmt uppfærðum tölum hefur einstaklingum í sóttkví fækkað um nærri 100 manns og eru nú 830 í sóttkví. Flestir þeirra eru í höfuðborginni. Til samanburðar við gærdaginn þá greindust tvö innanlandssmit í...
InnlentCovid-19Vill breyta ferðaþjónustunni á Covid-tímum – frekar ferðafólk til langdvalar11. ágúst 2020 Rithöfundurinn Andri Snær Magnason telur það mun skynsamlegra á Covid-tímum að laða frekar til landsins ferðamenn sem kjósi að dvelja hér frekar til lengri tíma heldur en til skammrar dvalar. Hann segir að faraldurinn hafi einfaldlega breytt öllum leikreglum og að ekki gangi lengur að viðhalda gamla módelinu. Ein af nýjungunum sem Andri Snær boðar er að hugsa ferðaþjónustuna upp...
InnlentCovid-19Covid-smit raskar starfsemi Samgöngustofu11. ágúst 2020 Starfsemi Samgöngustofu hefur raskast vegna covid-smits sem upp kom hjá stofnuninni. Hópur starfsfólks er nú í sóttkví og unnið að því að sem flestir vinni verkefni sín heimafyrir til að veita áfram nauðsynlega þjónustu. Líkur eru á að einhver röskun verði á starfseminni þó vonir standi til annars. Þó er ljóst að fresta þurfti flugprófum sem áttu að vera í...
InnlentCovid-19Veitingastaðir áfram undir smásjá lögreglu11. ágúst 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt áfram að heimsækja veitingahús í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi til að kanna hvort reglum um sóttvarnir væri framfylgt. Fjórtan staðiir voru heimsóttir og af þeim reyndust átta þeirra með sóttvarnir í fullkomnu lagi samkvæmt dagbók lögreglunnar. Aftur á móti þurftu fimm staðið að gera úrbætur og bæta skipulag hjá sér til að mæta reglum um tveggja...
InnlentCovid-19Það verður engin Menninganótt í ár10. ágúst 2020 „Þetta er auðvitað leitt en við verðum öll að sýna ábyrgð og lágmarka hættu á smitum í samfélaginu,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um þá niðurstöðu neyðarstjórnar Reykjavíkurborgar að aflýsa Menningarnótt. Ástæðan er seinni bylgja kórónuveirufaraldursins og var þetta ákveðið á fundi stjórnarinnar í morgun. Áður var búið að ákveða að dreifa Menningarnótt yfir tíu daga, dagana 13. til 23....
InnlentCovid-19Skemmtistaðaeigandi vill að ríkið hjálpi við að semja við leigusala10. ágúst 2020 Jónas Óli Jónasson, einn eigenda skemmtistaðarins B5, segir mikilvægt að ríkisvaldið aðstoði skemmtistaðaeigendur að semja við leigusala. Hann segir húsaleiguna erfiðasta rekstrarliðinn og til að mynda hafi lokunarstyrkur hins opinbera aðeins dugað fyrir ríflega hálfs mánaðar leigu. „Leiguaðilar sem leigja út húsnæði í miðbænum eru missveigjanlegir í samskiptum. Okkar barátta hefur líka verið í því að fá leiguna niður, því...
InnlentCovid-19Tæplega 100 þúsund börn smitast á tveimur vikum10. ágúst 2020 Tæplega 100 þúsund börn greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum síðustu tvær vikurnar í júlímánuði. Þetta kemur fram í skýrslu Bandarísku barnalæknaakademíunnar og Samtaka bandarískra barnaspítala. RÚV greindi frá.Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í Bandaríkjunum hafa nærri 340 þúsund börn smitast. Ríflega fjórðungur þeirra greindist því með veiruna á þessum tveimur vikum í júlí. Stjórnvöld þar í landi hafa gefið út...