InnlentAðalmeðferð í Barðavogsmálinu hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur – Níu gera bótakröfu29. mars 2023 Réttarhöld yfir Magnúsi Aroni Magnússyni hófust í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann er sakaður um að hafa orðið nágranna sínum í Barðavogi, Gylfa Bergmanni Heimissyni að bana fyrir utan heimili þeirra þann 4. júní árið 2022. Magnúsi er gert að sök að hafa veist að Gylfa í stigagangi hússins sem þeir bjuggu í, með ofbeldi en átökin hafi svo...
InnlentFimm ára drengur segir móður sína lemja sig: „Lýsti því að ákærða hefði meitt hann mörgum sinnum“27. mars 2023 Íslensk móðir var sýknuð í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum en hún var ákærð fyrir brot á barnaverndarlögum og líkamsárás. Þann 9 maí í fyrra barst lögreglu tilkynning um hugsanlegt heimilisofbeldi á heimili konunnar. Þegar lögregla kom á staðinn tók fyrrum eiginmaður konunnar á móti þeim og sagði hana hafa sparkað í son þeirra og lamið hann í síðuna. Drengurinn bæði...
InnlentBorga 713 milljónir eða sitja inni í eitt ár: „Býst við að fæstir væru í vandræðum með valið!“27. mars 2023 Á dögunum var verktakinn Þorkell Kristján Guðgeirsson dæmdur til að greiða 713 milljónir króna á innan við fjórar vikur ellegar sitja í fangelsi í ár. Hlaut hann dóminn vegna lögbrota í rekstri tveggja félaga sinna. Björn Birgisson samfélagsgrýnir veltir fyrir sér hvorum kostinum fyrir sig. Björn Birgisson. Sjá einnig: Verktakinn sem lét fólk sofa í svefnskápum: Þorkell fær fjórar vikur...
InnlentDómurinn kom Páli á óvart: „Það er leitt að tjáningarfrelsið tapi fyrir sakborningum“24. mars 2023 Í dag var Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og Moggabloggari, dæmdur sekur í meiðyrðamáli Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar gegn honum. Voru ummæli sem hann skrifaði á bloggsíðu sinni dæmd ómerk. Þá var honum gert að greiða þeim 300.000 kr hvorum og 700 þúsund í málskostnað. Ummálin snéru að því að Þórður og Arnar hefðu framið alvarleg hegningarlagabrot með því...
InnlentÞórður og Arnar lögðu Pál í héraðsdómi24. mars 2023 Þórður Snær Júlíusson, annar tveggja ritstjóra Heimildarinnar og Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður Heimildarinnar, unnu í dag meiðyrðamál gegn Páli Vilhjálmssyni framhaldsskólakennara. Þórður Snær og Arnar Þór kærðu Pál fyrir meiðyrði vegna ummæla sem framhaldsskólakennarinn hafði uppi um þá á bloggsíðu sinni, sem hýst er að Morgunblaðinu, þar sem hann staðhæfði að Þórður og Arnar hefðu framið alvarleg hegningarlagabrot með því...
InnlentHrannar fékk 8 ára fangelsi: Segist hafa skotið fyrrverandi kærustu óvart en ætlaði ekki að drepa24. mars 2023 Hrannar Fossberg Viðarsson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann og konu á bílaplani 10. febrúar 2022. Hann gerði árásina við Þórðarsveig í Grafarholti. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í dag. Hrannari gert að greiða fórnarlömbunum miskabætur upp á 4,5 milljónir króna að viðbættum vöxtum. Hrannar viðurkenndi fyrir dómi að hafa stórfellda líkamsárás en hafnaði því...
InnlentVerktakinn sem lét fólk sofa í svefnskápum: Þorkell fær fjórar vikur til að greiða 713 milljónir23. mars 2023 Þorkell Kristján Guðgeirsson á að borga 713 milljónir króna í sekt vegna lögbrota í rekstri tveggja félaga sinna. Hann hefur fjórar vikur til að greiða sektina eða fara í fangelsi í eitt ár. Þá fékk hann tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Þorkel í gær. Þorkell neitaði sök í máli annars félagsins en taldi að annar starfsmaður hefði framið...
InnlentHæstiréttur synjaði málskotsbeiðni Jóns Baldvins: „Svarið er no comment“8. mars 2023 Málskotsbeiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar hefur verið hafnað af Hæstarétti, í máli fyrrverandi ráðherrans og sendiherrans, þar sem hann var dæmdur í tveggja mánðaa skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn Carmen Jóhannsdóttur á Spáni árið 2018. Mbl segir frá málinu. Í málskotsbeiðninni vísaði Jón Baldvin meðal annars til þess að hann teldi ekki liggja fyrir óyggjandi sönnun um að háttalag hans sem...
InnlentStóra hryðjuverkamálinu vísað frá: „Jú, þetta er mikill léttir og ánægja“6. febrúar 2023 Hryðjuverkamálinu gegn þeim Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathanssyni hefur verið fellt niður. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði ákærum samkvæmt ákæruliðum eitt og tvö í hinu svokallaða hryðjuverkamáli, gegn þeim Sindra og Ísdór, frá fyrir stundu. Voru þeir sakaðir um að hafa skipulagt hryðjuverk en saksóknari hefur nú möguleika á að kæra úrskurðinn til Landsréttar og tekur sér þann kærufrest sem er...
HeimurMeðlimur Pussy Riot kærður fyrir „falsfréttir“ um stríð Rússa: „Ég tek á móti hamingjuóskum!“26. janúar 2023 Útgefandi Mediazona fréttamiðilsins og meðlimur Pussy Riot, Pyotr Verzilov hefur verið kærður fyrir dreifingu á „falsfréttum“ um stríðið í Úkraínu. Meduza segir að miðill Verzilov hafi sagt frá því að dómsmálið gegn honum byggist á færslum sem hann birti á samfélagsmiðlum um drápin á borgurum í Bucha, Úkraínu. Samkvæmt rannsóknum yfirvalda hafi færslurnar „hafi skapað raunverulega ógn við myndun rangrar...
InnlentSkotmaðurinn á Egilsstöðum áfrýjar til Hæstaréttar: Játaði flest brotin en neitar þeim alvarlegustu20. desember 2022 Árnmar Guðmundsson ætlar að sækja um áfrýjun til Hæstaréttar en Landsréttur staðfesti á föstudaginn átta ára fangelsisdóm yfir honum fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst 2021. Árnmar var ákærður fyrir húsbrot, brot í nánu sambandi, brot gegn barnaverndarlögum, brot gegn valdstjórninni, hættubrot og eignaspjöll, svo eitthvað sé nefnt en brotin voru fleiri. Fram kemur í frétt Austurfréttar að hann hafi...
InnlentLandsréttur staðfesti dóminn yfir skotmanninum á Egilsstöðum – Gert að greiða hærri miskabætur16. desember 2022 Landsréttur hefur nú staðfest dóm yfir Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni sem dæmdur var í héraði fyrir brot í nánu sambandi og vopnalagabrot á Egilsstöðum í fyrra. Málið vakti mikinn óhug á Egilsstöðum og nágrenni enda skotárásir ekki algengar þar um slóðir. Í dómi Landsréttar stendur: Á var ákærður fyrir brot í nánu sambandi og vopnalagabrot með því að hafa, undir áhrifum...