Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fimm ára drengur segir móður sína lemja sig: „Lýsti því að ákærða hefði meitt hann mörgum sinnum“

Fimm ára drengur segir móður sína lemja sig: „Lýsti því að ákærða hefði meitt hann mörgum sinnum“

Íslensk móðir var sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á dög­unum en hún var ákærð fyrir brot á barna­vernd­ar­lögum og lík­ams­árás. Þann 9 maí í fyrra barst lög­reglu til­kynn­ing um hugs­an­legt heim­il­is­of­beldi á heim­ili kon­unnar. Þegar lög­regla kom á stað­inn tók fyrrum eig­in­maður kon­unnar á móti þeim og sagði hana hafa sparkað í son þeirra og lamið hann í síð­una. Dreng­ur­inn bæði sagði frá árásinni og sýndi með lát­brögðum hvernig móðir hans lamdi hann. Hann sýndi lög­reglu áverka þessu til stað­fest­ingar. Móðirin var þá hand­tekin og flutt á lög­reglu­stöð, við blást­urs­mæl­ingu mæld­ist áfeng­is­magn 1,97 o/oo. Til sam­an­burðar er öku­maður tal­inn óhæfur til akst­urs við 0,2 o/oo.

Fyrrum eig­in­maður kon­unnar sagði hana hafa verið við drykkju allan dag­inn, hann mæld­ist ekki undir áfeng­is­á­hrifum. „Hann  skýrði  lög­reglu­mönnum  frá  því  að  ákærða  hafi  verið  við drykkju allan dag­inn. Hann hafi verið að elda mat­inn þegar hann hafi heyrt grát í her­bergi sonar þeirra og farið til að athuga hvað væri í gangi. Ákærða hafi þá við­ur­kennt að hafa sparkað í son þeirra. Þegar fyrrum eig­in­maður ákærðu og sonur þeirra hafi verið að borða hafi ákærða sest hjá þeim og þá hafi fyrrum eig­in­maður ákærðu séð hana slá son þeirra í síð­una  og  hann  þá  farið  að  gráta.  Fyrrum  eig­in­maður  ákærðu  hafi  þá  hringt  í Neyð­ar­lín­una,“ segir í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­ness.

Daginn eftir atvikið gaf konan skýrslu hjá lög­reglu. Hún hélt fram sak­leysi sínu og sagð­ist hafa verið að klæða son sinn í nátt­föt þegar hún klór­aði hann óvart í vinstri síðu, hún sé með langar neglur. Hún sagð­ist ekki hafa sparkað í son sinn heldur hafi hún verið að leik þegar hún meiddi hann fyrir slysni. Kvaðst hún þá ekki hafa verið undir áhrifum áfengis og seg­ist ein­ungis hafa fengið sér eitt glas af áfengi.

Faðir drengs­ins fór með hann til læknis dag­inn eftir atvikið. Samkvæmt lækn­is­vott­orði var hann með fjólu­blátt mar, 2×2 cm á stærð, á mið­baki vinstri síðu. Engir sjá­an­legir áverkar voru á kvið drengs­ins.

„Ákærða neitar sök og kvaðst hafa sótt son sinn á leik­skóla kl. 15:00 umræddan dag og fyrrum eig­in­maður hennar hafi komið heim kl. 17:00. Hann og ákærða hafi farið að ríf­ast og  hún  þá farið inn í her­bergi með son þeirra. Þau hafi verið í ,,flug­véla­leik“ þar sem hann hafi verið flug­vélin. Ákærða hafi verið með hnéð við mitti hans og óvart meitt hann en það hafi ekki verið alvar­legt. Eftir það hafi þau haldið leiknum áfram. Nokkru seinna hafi hún verið að klæða son sinn í nátt­föt en hann hafi ekki viljað vera kyrr og ákærða þá kitlað dreng­inn.  Hún  hafi  verið  með  langar  neglur  og  óvart  klórað  dreng­inn  sem  hafi fengið litla skrámu. Dreng­ur­inn hafi farið að gráta og þá hafi fyrrum eig­in­maður ákærðu komið og spurt hana hvað hún væri að gera við barnið. Þegar þetta hafi gerst hafi fyrrum eig­in­maður ákærðu verið inn í her­bergi eða inn á bað­her­bergi. Hann hafi síðan hringt í lög­regl­una  og  þá  lík­lega  til  að  hefna  sín  á  ákærðu.  Ákærða  kvaðst  hafa  verið  undir áhrifum áfengis og verið búin að drekka um 200 ml af vodka en hún hafi byrjað að drekka um kl. 17:00 eða eftir að hún hafi sótt son sinn á leik­skól­ann. Ákærða kvaðst alls ekki hafa  ætlað  að  meiða hann.  Þegar  atvik  urðu  hafi  ákærða  og  faðir  drengs­ins  verið  í hjóna­bandi en þau séu nú skilin.“

Dreng­ur­inn lýsti því í Barna­húsi að móðir hans hafi meitt hann með hend­inni og benti á vinstri síðu og maga. Hann segir hana einnig hafa sparkað í hann og að það hafi verið vont. Dreng­ur­inn sagði móður sína hafa sagst ætla að berja hann og að hún hafi oft meitt hann. Hann sagði föður sinn líka hafa meitt sig. „Brota­þoli lýsti því einnig að faðir hans væri að lemja brota­þola með hend­inni í rass­inn og haus­inn og það hafi gerst mörgum sinnum. Þegar faðir brota­þola lemji hann í boss­ann taki faðir hans buxur brota­þola niður og hann meiði sig í boss­ann.“

Dreng­ur­inn var tæp­lega fimm ára þegar atvikið átti sér stað og sagði hann fyrir dómi að móðir hans hafi lamið hann oftar en einu sinni. Þar sem ekk­ert vitni sá ofbeldið ger­ast segir í dómnum að ekki sé hægt að dæma móð­ur­ina seka. Hún lýsi atburðum eins bæði í skýrslu­töku og fyrir dómi. Konan var sýknuð og allur saka­kostn­aður greiddur úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ