InnlentLýst eftir fiðluleikara Sinfóníunnar hjá Interpol2. maí 2020 Lýst hefur verið eftir fyrrverandi fiðluleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sean Aloysius Marius Bradley, hjá Interpol. Hans hefur verið saknað í rúmlega eitt og hálft ár. Ekkert hefur til hans sést frá sumrinu 2018. Sjálfur hafði Sean sagt vinum sínum hér á landi að hann væri farinn til Spánar en grunur leikur á að einhver annar en fiðluleikarinn væri að hafa samskiptin...
InnlentCovid-19Miklu fjölskylduvænna2. maí 2020 Mannlíf fékk nokkra viðmælendur til að velta fyrir sér björtu hliðunum í veirufaraldrinum, nánar í nýjasta blaði Mannlíf. Edda Arndal, sérfræðingur í fjölskyldufræðum, segir að skjóstæðingar hennar tali margir um ýmsar jákvæðar hliðar við samkomubannið sem verið hefur. Hún veltir fyrir sér hvort samfélagið hafi fengið að upplifa kosti þess að fólk vinni aðeins minna. „Mitt fólk talar um hversu...
InnlentFjölgun í faraldri1. maí 2020 Á meðan kórónuveirufaraldurinn hefur gengið yfir landið hafa um það bil helmingi fleiri Íslendingar fæðst heldur en látist. Yfir 620 einstaklingar látið lífið hér á landi á fyrsta ársfjórðungi ársins og af þeim eru 10 einstaklingar sem hafa látist vegna COVID-19. Þetta gefa tölur Hagstofunnar til kynna og á sama tímabili fæddust 1.080 Íslendingar. Í samanburði við síðustu þrjú ár...
InnlentCovid-19Þakklátur Móður Jörð1. maí 2020 Mannlíf fékk nokkra einstaklinga til að velta fyrir sér björtu hliðunum í veirufaraldrinum. Þorgrímur Þráinsson rithöfundur segir að ekki megi gleyma neikvæðum hliðum faraldursins á meðan jákvæðar hliðar hans séu skoðaðar. Hann vonast til að þjóðin læri sína lexíu inn í framtíðina. „Þetta ástand skaðar flesta fjárhagslega, fer illa með suma en reynsla mín segir að allt leiti jafnvægis. Við...
InnlentCovid-19Saga sem aðrar þjóðir vilja heyra1. maí 2020 „Það er alveg einstakt hvað við höfum náð langt í baráttunni við veiruna en við erum líka með gott fagfólk í þessu stóra verkefni. Með okkar aðferðum og verkfærum hefur okkur tekist mjög vel til,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þegar hún er spurð um hvort einhver jákvæð teikn megi finna á tímum COVID-19 Svandís er gífurlega stolt af íslensku þjóðinni...
InnlentCovid-19Hallgrímur Helgason með snilldarhugmynd: Lukkustund í Leifsstöð30. apríl 2020 Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistarmaður, sló fram skemmtilegri hugmynd á Facebook-síðu sinni í dag: „Hugmynd í Kófinu, um leið og Víðir leyfir: Hafa Leifsstöð opna fyrir burtþyrstan landann, og leyfa honum að spranga um salina, láta leita á sér, taka einn öllara, spjalla og skella sér svo í Fríhöfnina,“ segir rithöfundurinn vinsæli og þróar síðan hugmyndina áfram: „Vopnaleitinni yrði breytt...
InnlentCovid-19Dorrit fékk Covid-19: „Blessunarlega var ég á Íslandi“30. apríl 2020 Dorrit Moussaief, fyrrverandi forsetafrú, upplýsir í samtali við Síðdegisútvarpið á Rás tvö að hún hafi veikst af Covid-19, orðið talsvert veik og muni lítið eftir fimm dögum af veikindunum. Hún þakkar batann ekki síst þeirri heppni að hafa verið stödd á Íslandi þegar hún veiktist. „Ég svaf í fimm daga og man lítið eftir þeim, ég var með nokkuð háan...
InnlentForseti ÍslandsGuðni hefur gefið alla launahækkun sína til góðgerðarmála frá árinu 201630. apríl 2020 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur staðið við stóru orðin frá 2016 og gefið allar launahækkanir sínar til góðgerðarmála, alls um 12 milljónir króna að því er fram kemur í frétt Hringbrautar um málið. Auk þess hefur hann óskað eftir því að laun hans verði fryst til ársins 2021 og við því hefur verið orðið. Forsaga málsins er sú að...
MenningGigi Hadid og Zayn Malik sögð eiga von á barni29. apríl 2020 Ofurfyrsætan Gigi Hadid og fyrrum söngvari strákabandsins One Direction, Zayn Malik eru samkvæmt óstaðfestum slúðurfregnum á leiðinni að verða foreldrar. Entertainment Tonight hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að parið sé mjög spennt yfir væntanlegu barni en hafi ákveðið að halda fréttunum innan fjölskyldunnar um hríð þar sem sé Gigi sé bara komin nokkra mánuði á leið. Þau Gigi og Zayn hafa...
InnlentKomst inn í íbúð eldra borgara með því að hringja öllum dyrabjöllum29. apríl 2020 Íbúi í Langholtshverfi birtir færslu á Facebook þar sem hann varar nágranna sína við að opna dyrnar inn í sameign fjölbýlishúsa fyrir hvern sem er. Íbúinn, sem vill ekki láta nafns síns getið, lýsir atviki sem átti sér stað í fjölbýlishúsi í nótt. Þar segir hann að ókunnugur maður hafi hringt öllum dyrabjöllum hússins þar til einhver opnaði dyrnar inn...
InnlentSteinunn Ólína segir LÍN stjórnast af frændsemi28. apríl 2020 Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skýtum föstum skotum að Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra LÍN í grein á vef Kvennablaðsins um helgina. Segir Steinunn það vekja eftirtekt að LÍN birti auglýsingar sínar um laus störf aðeins í Morgunblaðinu, en ekki á öðrum miðlum sem einnig hafi tekjur af atvinnuauglýsingum. Vill Steinunn rekja ástæðuna til þess að Hrafnhildur Ásta og Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins...
InnlentHeimildarmynd um Michelle Obama væntanleg á Netflix28. apríl 2020 Netflix hefur gert heimildarmynd um fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, þar sem henni er fylgt eftir í ferðalagi hennar til að kynna sjálfsævisögu sína, Becoming, sem selst hefur í tíu milljónum eintaka á heimsvísu. Í íslenskri þýðingu nefnist hún Verðandi og var gefin út af Sölku. Í heimildarmyndinni er frú Obama fylgt eftir í heimsóknum til þrjátíu og fjögurra borga...