Innlent„Í mjög langan tíma skammaðist ég mín fyrir að stama“24. október 2018 Hönnuðurinn Sveinn Snær Kristjánsson hefur undanfarið unnið að verkefni um stam. Verkefnið samanstendur af grafískum myndum sem eru hluti af lokaverkefni hans í Arts University Bournemouth. „Kveikjan að myndunum er stam og upplifun mín af stami. Ég hef stamað í yfir tuttugu ár,“ segir Sveinn.