InnlentCovid-19Hanna Katrín og Ragnhildur í sóttkví: „Móðir mín í kví, kví“20. mars 2020 Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, og eiginkona hennar, Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi og sérfræðingur í samskiptum hjá Landsvirkjun, eru komnar í sóttkví.
InnlentCovid-19Skipverjar ekki smitaðir af kórónaveirunni20. mars 2020 Skipverjar á togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni reyndust ekki smitaðir af COVID-19 kórónaveirunni. Togarinn kom að landi í Vestmannaeyjum seint í gærkvöldi, og voru þrír skipverja mikið veikir. Sýni voru tekin af sjö skipverjum, og hafa þau nú leitt í ljós að enginn þeirra er smitaður af kórónaveirunni. Sjá einnig: „Ef um smit vegna COVID-19 er að ræða, þá verður skipt um...
InnlentCovid-19Anna Margrét laus við COVID19: „Búin með þennan fjanda“20. mars 2020 „Laus við COVID-19. Er farin út að keyra og út að borða. Aldrei verið eins spennt að fara í matvörubúð í þessu líka fína veðri,“ segir Anna Margrét Jónsdóttir athafnakona og ferðamálafrömuður í færslu sem hún birti á Facebook rétt í þessu. Ens og kunnugt er smituðust Anna Margrét og eiginmaður hennar, Árni Harðarson aðstoðarforstjóri Alvogen, af veirunni þegar þau...
InnlentCovid-19„Ef um smit vegna COVID-19 er að ræða, þá verður skipt um áhöfn“20. mars 2020 „Þetta var eðlilegt tékk,“ segir Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri útgerðarinnar Þorbjarnar. „Ég reikna með að skipið fari út.“ Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar Þrír skipverja togarans Hrafns Sveinbjarnarsonar veiktust eftir millilöndun, og er einn þeirra mun veikari en hinir. Skipið mætti til hafnar í Vestmannaeyjum í gær og voru tekin sýni úr skipverjunum þremur um borð. „Við fylgjum öllum reglum og bíðum...
Innlent„Alma er áræðin, samanber þegar hún gerðist þyrlulæknir“20. mars 2020 Alma Dagbjört Möller landlæknir er ein þeirra sem staðið hefur í eldlínunni undanfarnar vikur vegna útbreiðslu COVID-19 kórónuveirunnar hér á landi. Þríeykið, Alma, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafa nær daglega setið upplýsingafundi, þar sem þau hafa svarað spurningum blaðamanna af yfirvegun og öryggi.
InnlentCovid-19Ótti vegna smits um borð í togara – MYNDIR20. mars 2020 Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni frystitogara útgerðarinnar Þorbjarnar í Grindavík millilandaði í Grindavík 10. mars. Haldið var síðan til hafs á ný, þar til togarinn renndi inn til Vestmannaeyja í gærkvöldi til að láta tékka á áhöfninni þar sem margir í henni veiktust eftir millilöndun. Sagt er frá atvikinu á Facebook-síðu áhafnarinnar ásamt myndum, en 24 eru í áhöfn togarans. Fréttin...
InnlentCovid-19Dauðsföll vegna COVID-19 orðin fleiri en 10.00020. mars 2020 Ríflega 10.000 hafa nú látist af völdum kórónaveirunnar sem veldur COVID-19 samkvæmt mælingum sérfræðinga við Johns Hopkins-háskólann í Bandaríkjunum. Skólinn hefur sett upp vef sem sýnir m.a. tölfræði um smit og dauðsföll vegna kórónaveirunnar. Þegar þetta er skrifað eru dauðsföllin komin yfir 10.000. Þau eru orðin 10.031 talsins nánar tiltekið. Flest dauðsföllin eru í Ítalíu eða 3.405. Staðfest smit af...
InnlentCovid-19Starfsmaður á bráðamóttökunni smitaður20. mars 2020 Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi hefur greinst með COVID-19 smit. Morgunblaðið greinir frá. Þar segir að smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis vinni nú að því að rekja ferðir hjúkrunarfræðingsins og meta hvort þörf sé á að aðrir starfsmenn bráðamóttökunnar fari í sóttkví. Enginn læknir á bráðamóttökunni er sagður hafa orðið útsettur fyrir smiti. Þá hefur smit komið upp á veiru-...
InnlentCovid-19Götur Kaliforníu tómlegar20. mars 2020 Götur Kaliforníu sem iða af lífi undir venjulegum kringumstæðum eru tómlegar að sjá eftir að ríkisstjóri Kaliforníu, Gavin Newsom, tilkynnti um útgöngubann. Íbúum Kaliforníu er nú gert að halda sig heima vegna útbreiðslu COVID-19 og sagði Newsom að fólk ætti ekki að yfirgefa heimili sín nema ef brýna nauðsyn beri til. Aðgerðirnar þykja nokkuð harðar en Kalifornía er fjölmennasta ríki...
MannlífiðCovid-19„Ekki áhættusamt að fara út að borða“19. mars 2020 Við á Gestgjafanum og man.is höfum undanfarið heyrt í veitingafólki sem er margt uggandi yfir stöðunni, enda hefur viðskiptavinum fækkað verulega á síðustu vikum og dögum. Við spurðum starfsmann landlæknisembættisins hvort einhver áhætta fylgdi því að fara út að borða.
InnlentCovid-19Fólk ekki eins hissa þegar það fær símtal frá rakningateyminu19. mars 2020 Ævar Pálmi Pálmason yfirmaður smitrakningateymis almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og sóttvarnarlæknis segir símtöl rakningateymisins ekki koma fólk jafnmikið á óvart og þau gerðu fyrst. Ævar sagði frá þessu á fundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag. Hann sagði margt fólk hreinlega búast við að fá símtal frá rakningateyminu þess efnis að það þurfi að fara í sóttkví vegna kórónaveirunnar. Hann segir að þegar staðfest...
InnlentCovid-19Útgöngubann ekki í kortunum19. mars 2020 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki undirbúa að setja á útgöngubann vegna COVID-19. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn greindi frá þessu á upplýsingafundi rétt í þessu. Hann segir ýmsar slúðursögur á flakki núna. Hann biður fólk um að vanda orðaval sitt og vanda sig í öllum samskiptum til að koma í veg fyrir misskilning. „Þá mun okkur ganga betur,“ sagði Víðir. Alma Möller landlæknir...