InnlentCovid-19COVID-19 smit orðin 81 talsins10. mars 2020 Fimm ný tilfelli af COVID-19 sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala nú í kvöld. Heildarfjöldi tilfella er því 81.
InnlentCovid-19Mikilvægt að greiðsluposar og snertiskjáir séu þrifnir10. mars 2020 Alma D. Möller, landlæknir, segir kórónaveiruna sem getur valdið COVID-19 vera mjög smitandi og þess vegna þurfi fólk að halda áfram að gæta hreinlætis. Þetta lagði hún áherslu á á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag. Alma sagði að enn væri nokkuð óljóst hversu lengi veiran getur lifað á yfirborði snertiflata. Þórólfur Guðnason, landlæknir, hefur sagt að það fari eftir yfirborði...
InnlentCovid-1976 greinst með smit á Íslandi10. mars 2020 Sex ný tilfelli af COVID-19 sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala síðdegis. Fjöldi smitaðra er því 76 talsins. Tvö þessara fimm smita sem greindust nú síðdegis eru innanlandssmit. Smitrakning er í gangi.
HeimurCovid-19Yfirlýsing franskra stjórnvalda: „Nei kókaín læknar ekki COVID-19“10. mars 2020 Ríkisstjórn Frakklands neyddist til að gefa út yfirlýsingu á vef heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins um að kókaín gagnaðist ekki í baráttunni gegn COVID-19 kórónaveirunni. Þetta var gert þar sem falsfréttir höfðu gengið á samfélagsmiðlum um að hvíta duftið gagnaðist vel í baráttu við veiruna. Nokkuð mikið hefur borið á því að ýmsar rangar upplýsingar varðandi faraldurinn og veiruna séu í gangi...
InnlentCovid-19„Börn fá minni og vægari einkenni“10. mars 2020 „Það er alveg eðlilegt að hafa áhyggjur af börnunum sínum, sérstaklega á tímum sem þessu,“ segir Valtýr Stefán Thors, barnasmitsjúkdómalæknir á Barnaspítala Hringsins, á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra um útbreiðslu COVID-19. Valtýr segir foreldra almennt hafa staðið sig vel og fylgt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda i tengslum við kórónaveiruna. Hann biður fólk um að halda ró sinni og segir mikilvægt að ræða við...
HeimurCovid-19Tvennum tónleikum Madonnu í París aflýst10. mars 2020 Poppdrottningin Madonna hefur neyðst til að aflýsa tvennum af Madame X tónleikum sínum í París vegna banns yfirvalda við samkomum með fleiri en þúsund þátttakendum. Tónleikarnir, sem vera áttu í kvöld og annað kvöld, 10. og 11. mars, áttu að vera lokatónleikar Madame X tónleikaferðar drottningarinnar. Madame X tónleikaferðin hefur reyndar engan veginn gengið nógu vel síðan hún hófst á...
InnlentHvorki makar né aðstandendur með í sónar10. mars 2020 Hvorki makar né aðstandendur fá að fylgja konum í sónar á fósturgreiningu 21B eða inn á áhættumæðravernd 22B vegna útbreiðslu COVID-19. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Landspítalans. Þar segir einnig að einungis maki má vera viðstaddur fæðingu og fylgja móður og barni á sængurlegudeild. Þetta er í varúðarskyni og eru makar og aðstandendur beðnir um að bíða úti í bíl...
HeimurCovid-19Búa sig undir að loka sig af10. mars 2020 Langar raðir mynduðust fyrir utan matvöruverslanir í Ítalíu í morgun þar sem Ítalir bjuggu sig undir að loka sig af á heimilum sínum vegna útbreiðslu COVID-19. 463 hafa dáið vegna veirunnar þar í landi Ítölsk stjórnvöld tilkynntu í gær að samkomubann hefur verið sett á og gildir það alls staðar á Ítalíu. Giuseppe Conte forsætisráðherra Ítalíu sagði að nú þyrfti...
InnlentCovid-19Smit á sambýli fyrir fatlað fólk10. mars 2020 Íbúi á sambýli fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu greindist með COVID-19 smit fyrir tíu dögum og veiktist fimm dögum síðar. Vísir greinir frá. Þar segir að fjórir stafsmenn og þrír íbúar voru settir í sóttkví eftir að smitið greindist. Talið er að sá smitaði hafi fengið heimsókn frá ættingja þann 1. mars, ættinginn hafði verið á skíðum erlendis á skilgreindu...
HeimurCovid-19Samkomubann á allri Ítalíu vegna veirunnar9. mars 2020 Ítölsk stjórnvöld hafa sett samkomubann á alls staðar á Ítalíu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur COVID-19. Giuseppe Conte forsætisráðherra Ítalíu greindi frá þessu. Bannið gildir frá og með þriðjudeginum. Þessu er sagt frá BBC. Conte segir þetta nauðsynlegar aðgerðir til að draga úr útbreiðslu og vernda viðkæma hópa. Ástandið vegna COVID-19 er verst á Ítalíu. Þar í landi eru rúmlega...
InnlentCovid-19Samkomubann ekki sett á íþróttaviðburði að svo stöddu9. mars 2020 Fundi Almannavarna, sóttvarnalæknis og sérsambanda íþróttahreyfinga vegna COVID-19 kórónaveirunnar lauk nú undir kvöld. Á fundinum kom fram að ekki verður sett á samkomubann eða takmarkanir á íþróttaviðburði eins og staðan er núna. „Eins og þeir sögðu er það neyðarúrræði sem þeir grípa til ef útbreiðslan verður meiri þannig að eins og staðan er í dag eru allir íþróttaviðburðir á dagskrá...
HeimurCovid-19Skrúðgöngu á degi heilags Patricks aflýst í Dublin9. mars 2020 Borgaryfirvöld í Dublinar hafa aflýst hinni árlegu skrúðgöngu á degi heilags Patricks þann 17. mars, til að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur Covid-19. Árlega taka tugir þúsunda fólks þátt í göngunni sem er stærsti viðburður ársins á Írlandi. Í frétt írsku útvarpsstöðvarinnar RTÉ um málið kemur fram að borgaryfirvöld í Cork hafi riðið á vaðið í morgun og aflýst sinni...