InnlentAskur sigraðist á bílhræðslunni og elskar að ferðast um á mótorhjóli5. ágúst 2020 Askur er sex ára yorkshire terrier sem elskar fátt meira en að þeysast á mótorhjóli með eigendum sínum. Eigendur Asks, hjónin Anna Málfríður Jónsdóttir og Gunnlaugur Hólm Sigurðsson eða Gulli, segja Ask hafa verið mjög bílhræddan og skelkaðan við mörg umhverfishljóð áður en hann prófaði mótorhjól. Askur er með hlífðargleraugu þegar hann fer á mótorhjólið. Anna lýsir Aski sem „dekurrakka...
InnlentLét spinna garn úr hári hundsins Fróða – „Held að hann sé bara stoltur að hafa lagt þetta til“26. maí 2020 „Hún er alveg rosalega hlý,“ segir rithöfundurinn Unnur Þóra Jökulsdóttir um peysu sem hún prjónaði úr garni sem var spunnið úr hárum af hundinum hennar Fróða. Fróði er tveggja ára og af tegundinni Samoyed. Sú tegund er með tvöfaldan feld. „Þegar ég er í peysunni fæ ég aðeins að upplifa hvernig Fróða líður með þennan mikla feld. Hann elskar kuldann...
InnlentHafþór Júlíus auglýsir hundatöskur20. nóvember 2019 Kraftlyftingarmaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson, oft kallaður Fjallið, er í aðalhlutverki í auglýsingaherferð fyrir bandaríska dýraathvarfið og samtökin Rescue Dogs Rock NYC. Á myndum herferðarinnar má sjá Hafþór spóka sig um með bleika loðtösku sem hönnuð er fyrir hundaeigendur. Á myndunum má þá sjá pomeranian-hund njóta lífsins í töskunni. Taskan sem um ræðir er frá merkinu Klarna en allur söluágóði rennur...
InnlentVarar við hundaólum með róandi efnum: „Skvetta lenti í lífshættu“15. nóvember 2019 „Efnin sem eru í þessum ólum geta verið lífshættulegar ef ólarnar eru innbrigðar,“ skrifar Guðfinna Kon Kristinsdóttir, stjórnandi í Facebook-hópnum Hundasamfélagið, í færslu í hópnum í dag. Með færslunni vill hún vekja athygli á hættunni sem getur fylgt svokölluðum „calming collars“. Um hálsólar fyrir hunda með róandi ilmefnum er að ræða. Guðfinna segir þá sögu af hundinum Skvettu. „Skvetta lenti...
InnlentKlón Sáms er komið í heiminn28. október 2019 Ár er liðið síðan Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, greindi frá í viðtali í Morgunkaffinu á Rás 2 að Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, hefði látið taka sýni úr hundi sínum Sámi í þeim tilgangi að láta klóna hann síðar meir. Klón Sáms er nú komið í heiminn.
InnlentMygluleitarhundurinn Hanz tekinn til starfa3. október 2019 Hundurinn Hanz er tekinn til starfa við að leita uppi myglu í húsum.
InnlentLét drauminn loksins rætast11. júlí 2019 Nicole Kidman birti mynd á Instagram af nýjasta fjölskyldumeðlimnum og greindi frá því að nú hefði gamall draumur ræst.
HeimurLét lóga tíkinni sinni og jarða sig með henni23. maí 2019 Tíkinni Emmu var lógað, þrátt fyrir að hún væri fullkomlega heilsuhraust, svo að hægt væri að jarða hana með eiganda sínum.
InnlentNotar hráefni sem annars myndi enda í ruslinu4. apríl 2019 Dýravinurinn Melkorka Gunnlaugsdóttir tók sig til árið 2017 og fór að framleiða hundanammi úr íslenskum afurðum undir vörumerkinu Myrrubakarí. Melkorka hefur það að markmiði að sporna gegn matarsóun og notar því afurðir sem myndi vanalega enda í ruslinu.
Heimur„Mest einmana hundur Bretlands“ kominn með framtíðarheimili28. febrúar 2019 Hundurinn Hector, sem hefur verið kallaður „mest einmana hundur Bretlands“ er loksins kominn með framtíðarheimili.
InnlentNotkun rafmagnsólarinnar tilkynnt sem ill meðferð til MAST17. janúar 2019 Dýraspítalinn í Garðabæ birti í gær óhugnanlegar myndir sem sýna hvaða áhrif rafmagnshálsólar geta haft. Myndirnar sýna meðal annars sár á hálsi hunds sem kom í árlega skoðun á spítalann. Rafmagnsólar eru bannaðar á Íslandi og var notkun ólarinnar tilkynnt til MAST sem ill meðferð.
InnlentHjálpartæki og félagi13. janúar 2019 Blindrafélagið framleiðir þetta árið dagatal félagsins eins og undanfarin ár með myndum af leiðsöguhundum. Ágóðanum er varið til kaupa á leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta hér á landi. Sigþór U. Hallfreðsson, formaður félagsins, segir að kaupa þyrfti um tvo hunda á ári. Einungis átta leiðsöguhundar eru á landinu í dag. „Lítil hefð var fyrir leiðsöguhundum á Íslandi fyrir rúmum áratug...