Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hjálpartæki og félagi

Hjálpartæki og félagi
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Blindra­fé­lagið fram­leiðir þetta árið daga­tal félags­ins eins og und­an­farin ár með myndum af leið­sögu­hundum. Ágóðanum er varið til kaupa á leið­sögu­hundum fyrir blinda og sjón­skerta hér á landi. Sigþór U. Hall­freðs­son, for­maður félags­ins, segir að kaupa þyrfti um tvo hunda á ári. Einungis átta leið­sögu­hundar eru á land­inu í dag.

„Lítil hefð var fyrir leið­sögu­hundum á Íslandi fyrir rúmum ára­tug en árið 2008 safn­aði Blindra­fé­lagið ásamt Lions­hreyf­ing­unni á Íslandi fyrir fjórum hundum sem voru keyptir frá Noregi,“ segir Sigþór U. Hall­freðs­son, for­maður Blindra­fé­lags­ins. „Það mark­aði upp­hafið að því sem við höfum síðan kallað „leið­sögu­hunda­verk­efnið“ sem félagið stendur að í sam­vinnu við Þjónustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð fyrir blinda, sjón­skerta og dauf­blinda ein­stak­linga.“

Sigþór segir að fljót­lega hafi félagið séð fram á að þörfin var meiri auk þess sem það stytt­ist í end­ur­nýjun á hund­unum. Var farið aftur af stað með að útvega hunda í sam­vinnu við Blindra­vina­fé­lagið og Lions­hreyf­ing­una sem til­eink­aði leið­sögu­hunda­verk­efn­inu lands­söfnun Rauðu fjarð­ar­innar, árið 2015.

Fæst núna líka í verslunum

Árið 2012 var fyrsta leið­sögu­hunda­daga­tal Blindra­fé­lags­ins gefið út í þeim til­gangi að fjár­magna kaup á leið­sögu­hundum og síðan hefur daga­talið verið gefið út árlega í þessum til­gangi. „Við létum að þessu sinni fram­leiða 18.000 daga­töl. Hingað til hefur salan farið meira og minna þannig fram að við höfum sent daga­tölin á val­inn hóp vel­unn­ara og gíró­seðil með en eitt­hvað af því skilar sér nátt­úr­lega ekki. Við höfum líka selt daga­tölin í gegnum vef­verslun Blindra­fé­lags­ins og núna erum við í fyrsta sinn að selja daga­tölin m.a. í völdum versl­unum Bónus og A4 og verið er að vinna í að koma þeim í sölu víðar en þau eru í standi við kass­ana. Við erum að reyna að stækka hóp­inn sem kaupir daga­tölin.“

Daga­talið kostar 1939 krónur og segir Sigþór að það teng­ist ártal­inu 1939 þegar Blindra­fé­lagið var stofnað.

Ættu að vera fleiri

Tólf leið­sögu­hundar hafa verið keyptir í gegnum þetta verk­efni und­an­far­inn ára­tug og eru núna starf­andi átta leið­sögu­hundar á land­inu. „Hund­arnir mættu og ættu að vera fleiri. Þeir eru yfir­leitt til­búnir til notk­unar tveggja til tveggja og hálfs árs gamlir og má gera ráð fyrir að þeir end­ist þar til þeir verða um 10 ára. Það fer reyndar eftir teg­und­inni en við höfum ein­göngu verið með labrador-hunda en önnur hunda­kyn geta líka hentað ágæt­lega.“

Sigþór segir að þeir sem hafa áhuga á að kom­ast á biðlista eftir leið­sögu­hundi þurfi að fara á nám­skeið þar sem metið er hvort leið­sögu­hundur henti aðstæðum hvers og eins. „Við­kom­andi áttar sig þá líka á því hvort leið­sögu­hundur myndi nýt­ast honum. Það eru ekki allir sem sjá fyrir sér að nota hund­inn nógu mikið eða líst ekki á að halda hund en því fylgir mikil ábyrgð. Það liggja núna fyrir fjórar umsóknir frá fólki sem hefur farið á nám­skeið og við höfum líka spurst fyrir á meðal félags­manna og hafa um 30 manns sýnt áhuga á að fá leið­sögu­hund og þar af 15 mik­inn áhuga. Það ættu að vera fleiri hundar í vinnu hér á landi miðað við fjölda þeirra sem eru blindir eða sjón­skertir. Við horfum til þess að reyna að fá tvo nýja hunda á ári að jafn­aði til þess að end­ur­nýja þá sem þegar eru fyrir og fjölga í hópnum.“

Aukið sjálfstæði

Sigþór segir að það geti skipt miklu máli fyrir blindan eða sjón­skertan ein­stak­ling að hafa leið­sögu­hund. „Leið­sögu­hund­ur­inn er skil­greindur sem hjálp­ar­tæki og sem slíkur er hann eins og hvíti staf­ur­inn og önnur hjálp­ar­tæki, stuðn­ingur til sjálf­stæðis. Til­gang­ur­inn er að aðstoða not­and­ann við að kom­ast leiðar sinnar á öruggan og sjálf­stæðan hátt. Notandi leið­sögu­hunds er frjáls­ari ferða sinna og á auð­veld­ara með að kom­ast á milli staða. Not­and­inn ákveður hvaða leið er farin og stýrir hund­inum sem forðar við­kom­andi frá hindr­unum en  hund­ur­inn stoppar til dæmis við gang­brautir og kemur í veg fyrir að við­kom­andi gangi í veg fyrir bíla. Þessu fylgir aukið frelsi og öryggi. En leið­sögu­hundur er líka félagi og vinur sem kalla má nota­lega auka­verkun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ