Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Askur sigraðist á bílhræðslunni og elskar að ferðast um á mótorhjóli

Askur sigraðist á bílhræðslunni og elskar að ferðast um á mótorhjóli

Askur er sex ára yorks­hire terrier sem elskar fátt meira en að þeys­ast á mót­or­hjóli með eig­endum sínum. Eigendur Asks, hjónin Anna Mál­fríður Jóns­dóttir og Gunn­laugur Hólm Sig­urðs­son eða Gulli, segja Ask hafa verið mjög bíl­hræddan og skelk­aðan við mörg umhverf­is­hljóð áður en hann próf­aði mót­or­hjól.

Askur er með hlífð­ar­gler­augu þegar hann fer á mót­or­hjólið.

Anna lýsir Aski sem „dek­urrakka fyrir allan pen­ing­inn“. „Við dekrum hann og hann er frekur sam­kvæmt því og veit hvað hann vill,“ segir Anna og hlær.

„Hann var alveg rosa­lega bíl­hræddur en eftir að við fórum að taka hann með okkur á mót­or­hjól­inu þá minnk­aði bíl­hræðslan,“ útskýrir Gulli. „Það er eins og þetta hafi aukið hug­rekkið hans.“

Anna tekur undir. „Áður var hann hræddur við ryksug­una og hand­þeyt­ara, hann var algjör skræfa. En af ein­hverjum ástæðum sótt­ist hann í mót­or­hjólið hans Gulla, sem ég vil meina að sé eitt háværasta mót­or­hjól á land­inu,“ segir Anna.

Mynd / Guðný Hrönn

Anna og Gulli leyfðu Aski að venj­ast hjól­inu smátt og smátt og nú er ekki aftur snúið. Í dag situr Askur í sér­stakri hunda­tösku sem Anna kemur fyrir á bens­íntanki hjóls­ins. Askur fer reglu­lega í styttri ferðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en hefur líka farið í langar ferðir, svo sem frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu til Ísa­fjarðar og til Dalvíkur og um Snæ­fells­nesið.

View this post on Instagram

Love a pit stop at my favorite coffee house when out riding with mum and dad 😋 #askuryorkie #yorkiesof­in­stagram #yorkie #motorcycledog #biker­dog #biker­dogsof­in­stagram #hend­urí­höfn

A post shared by Anna Mál­fríður Jóns­dóttir (@askuryorkie) on Jul 21, 2020 at 12:27pm PDT

Anna tekur fram að Askur geti stungið sér ofan í tösk­una ef þau eru komin á mikla ferð í umferð­inni. „Hann er með þykka gæru ofan í tösk­unni og getur kúrt sig þarna ofan í. Svo þekkir hann hljóðið í hjól­inu og um leið og ég hægi á mér þá stingur hann sér upp úr tösk­unni og fylgist með. Stundum stingur hann bara trýn­inu upp úr og þefar,“ segir Anna og hlær. „Svo stendur hann upp þegar ég fer í hring­torg og hreyfir sig með hjól­inu. Þannig að hann tekur alveg þátt í öllu.“

„Á gatna­mótum er fólk oft með mynda­vélar á lofti.“

Mót­or­hjóla­hund­ur­inn Askur vekur alltaf athygli. „Á gatna­mótum er fólk oft með mynda­vélar á lofti,“ segir Gulli. „Já, og margt fólk getur ekki annað en skellt upp úr þegar það sér hann gægj­ast upp úr tösk­unni í umferð­inni,“ segir Anna.

Ævintýri að fara á mótorhjólið

Aðspurð hvort þau viti um marga aðra hunda sem hafa gaman af því að fara í mót­or­hjóla­ferðir svara þau því ját­andi.

„Já, þetta er svo mikil menn­ing víða í Evrópu og Banda­ríkj­unum, að taka hundana með sér í mót­or­hjóla­ferðir,“ segir Gulli. „Við erum meira að segja í Facebook-hóp sem heitir Motor­bike Dogs,“ bætir Anna við. „Þetta snýst bara um að hund­arnir vilja vera með eig­endum sínum.“

Gulli, Anna og Askur.

Þrjú ár eru liðin síðan Askur vand­ist mót­or­hjóla­ferðum og núna elskar hann að fara á rúnt­inn að sögn Önnu og Gunn­laugs. „Hann veit líka að þegar við förum út að hjóla þá fær hann ann­að­hvort að stoppa á hunda­svæði og leika sér eða við stoppum til að fá okur pulslu­bita,“ segir Anna. „Það fylgir þessu alltaf ævin­týri,“ bætir Gulli við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ