InnlentVarðskipið Þór á leið á Hornstrandir eftir neyðarkall – Göngumaður slasaðist illa fyrir austan5. september 2024 Neyðarkall barst frá Hornströndum fyrir stuttu og er nú varðskipið Þór á leið á staðinn. Þá fór þyrlusveit Landhelgisgæslunnar austur á land að sækja göngumann sem slasast hafði illa en aðstæður voru erfiðar sökum veðurs og þoku. „Það kom inn óljós neyðarbeiðni frá Hornströndum og varðskipið Þór var í Breiðafirði í hefðbundinni eftirlitsferð og í samvinnu við lögreglu var ákveðið...
InnlentBandaríski sjóherinn æfði með íslenskum varnaraðilum – MYNDIR29. ágúst 2024 Varnaræfingin Norður-Víkingur hófst í vikunni en bandaríski sjóherinn æfði aðgerðir á sjó með íslenskum aðilum. Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar er sagt frá því að liðsmenn bandaríska sjóhersins hafi ásamt áhöfninni á varðskipinu Þór, sérsveit ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, æft aðgerðir á sjó, meðal annars uppgöngu í skip og eftirför en æfingarnar eru liður í varnaræfingunni Norður-Víkingur sem hófst fyrr í vikunni....
InnlentBjörgunarsveitir á Austurlandi fóru í tvö útköll í nótt – Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til24. júní 2024 Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út í tvígang í nótt. Austurfrétt segir frá því að áhöfn björgunarbátsins Hafbjargar í Neskaupsstað hafi komið skipverja lítils fiskibátar til hjálpar um fimm leytið í morgun. Maðurinn hafði slasast illa á fæti og var ófær um að sigla bátnum til hafnar. Báturinn var um sextán sjómílur austur af Norðfjarðarhorni. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig...
InnlentÞyrla Gæslunnar sótti veikan einstakling austur á Hérað: „Sjúkraflugið komst ekki vegna þoku“12. júní 2024 Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug til Egilsstaða í morgun og flutti veikan einstakling á spítala. Íbúum á Héraði fyrir austan brá nokkuð í morgun þegar sjúkrabíll í lögreglufylgd keyrði í ofvæni á Egilsstaðaflugvöll, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið. Reyndist vera um veikan einstakling að ræða sem þurfti á bráðri hjálp að halda á sjúkrahúsi. Vegna þoku hafði sjúkraflugvélin ekki komist í loftið...
InnlentManni bjargað á Fimmvörðuhálsi – Þyrla send að sækja hann9. júní 2024 Senda þurfti þyrlur Landhelgisgæslunnar til að bjarga manni sem var í sjálfheldu á Heljarkambi á Fimmvörðuhálsi. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti það í samtali við fréttastofu Vísis en málið kom á borð gæslunnar upp úr klukkan 14:00 í dag og voru þyrlur hennar mættar á vettvang tveimur tímum síðar. Maðurinn er sagður hafa hlotið minni háttar að meiðsli en eina...
LandiðVarðskipið Þór kom súrálsskipi til hjálpar í Reyðarfirði3. júní 2024 Á ellefta tímanum í gærmorgun barst varðskipinu Þór beiðni um aðstoð vegna vélarbilunar súálsskips í Reyðarfirði. Samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar gerði áhöfn varðskipsins Þórs ráð fyrir því að verja sjómannadeginum á Dalvík en þær áætlanir breyttust, eins og gegnur og gerist hjá Gæslunni. Í gærmorgun óskaði súrálsskipt í Reyðarfirði eftir hjálp vegna vélarbilunar en flutningaskipið var við akkeri stuttu frá höfninni....
InnlentSjáðu stórkostlega sjóbjörgunaræfingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar – Myndskeið21. febrúar 2024 Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar ásamt áhöfnum varðskipanna halda reglulega sjóbjörgunaræfingar enda fáar landhelgisgæslur í heiminum sem standa sig betur í slíkum aðgerðum. Björgunin tókst með prýði.Mynd: lhg.is Slík æfing átti sér stað á dögunum og meðfylgjandi myndband gefur afar áhugaverða sýn á hlutverk varðskipanna á slíkri æfingu. Myndband
InnlentTóku bangsa með í þyrluferð Landhelgisgæslunnar: „Lóa aðstoðaði við eftirlit um landið og miðin“27. janúar 2024 Landhelgisgæslan birti krúttfærslu ársins á heimasíðu sinni í gær. Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar má oft sjá fréttir af afrekum Gæslunnar eða viðburðum sem hún tekur þátt í en í gær birtist öðruvísi færsla og verður að viðurkennast að hún er í krúttlegri kantinum. Sex ára dóttir eins þyrluflugstjóra Gæslunnar stóð frammi fyrir erfiðu vali í gær, samkvæmt færslunni. Þannig var mál...
InnlentLandhelgisgæslan æfir björgun úr þyrlu í vatni – Myndskeið12. janúar 2024 Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar æfa nú björgun úr þyrlu í vatni í hollensku borginni Rotterdam. Samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar verða allar þyrluáhafnir Gæslunnar að gangast undir svokallaða HUET-þjálfu, með reglulegu millibili en það á jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Stefnumarkið er að allir um borð séu undir það búnir að komast úr þyrlu sem þarf að lenda í sjó eða... Myndband
InnlentMaður féll af klettum í Reynisfjöru2. nóvember 2023 Þyrla landhelgisgæslunar var kölluð út vegna manns sem féll af klettum í Reynisfjörðu en ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan mannsins. Vísir greinir frá því að hann hafi verið á gangi í Reynisfjalli þegar hann datt í klettinum. Metið var nauðsynlegt að senda þyrlu vegna staðsetningar mannsins.
InnlentFjórar bandarískar F-16 herþotur koma til landsins á morgun19. október 2023 Á morgun er von á bandarískri flugveit til landsins til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Íslendingar þurfa ekki lengur að óttast árásir á landið því bandarísk flugsveit mun frá og með morgundeginum annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins yfir Íslandi. Samkvæmt Landhelgisgæslunni kemur flugsveitin til landsins frá Þýskalandi, með fjórar F-16 herþotur og 120 liðsmenn. Flugsveitin tekur þátt í verkefninu auk starfsmanna...
InnlentFerðamanni bjargað úr sjálfheldu á Ísafirði – Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á vettvang1. september 2023 Erlendur ferðamaður lenti í sjálfheldu á Gleiðarhjalla, norðan við Ísafjarðabæ fyrir stundu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna erlends ferðamanns sem hafði lent í sjálfheldu á Gleiðarhjalla í Eyrarfjalli, norðan við Ísafjarðabæ. Að sögn starfsmanns Gæslunnar gekk allt að óskum. „Þetta var bara maður sem lenti í sjálfheldu og var bjargað niður,“ sagði starfsmaðurinn í...