InnlentÁslaug Arna sögð ætla að senda Ólaf til Eyja28. júlí 2020 Dómsmálaráðherra hefur í hyggju að senda lögreglustjórann á Suðurnesjum til Vestmannaeyja, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. „Ég tjái mig ekki um það,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við Fréttablaðið. Blaðið hefur heimildir fyrir því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi tilkynnt Ólafi að hann verði fluttur til embættis lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Er Áslaug sögð að hafa sent Ólafi...
InnlentEinn úr hópi lögreglumannanna smitaðist16. júní 2020 Einn úr 16 manna hópi lögreglumanna sem höfðu afskipti af tveimur karlmönnum á Suðurlandi um helgina er smitaður af COVID-19. Allir úr hópnum fóru í sóttkví þegar í ljós kom að mennirnir sem lögregla hafði afskipti af voru með COVID-19. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú síðdegis. Lögreglumaðurinn greindist með COVID-19 í morgun og eru því núna sjö...
SlúðurElliði tjáir sig um lögregluofbeldi6. júní 2020 ORÐRÓMUR Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, fer sjaldnast ótroðnar slóðir. Hann hefur líkt og margir aðrir áhyggjur af lögregluofbeldi sem er um það bil að setja heimsbyggðina á hliðina. Aftur á móti telur bæjarstjórinn að á Íslandi sé vandinn sá að almenningur beiti lögreglu harðræði. Þetta skrifaði hann á Facebook: „Um allan heim mótmælir fólk nú eðlilega ofbeldi lögreglu í USA...
InnlentFólk verra í skapinu í gær og í nótt24. maí 2020 Í sendingu lögreglu til fjölmiðla um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir að fólk hafi almennt verið verra í skapinu en gengur og gerist og tvö mál þar sem fólk beitti lögreglumenn ofbeldi komu upp. „Aðeins færri verkefni komu inn á borð lögreglu í gærkvöldi og nótt en þó bar aðeins á því að fólk væri eitthvað verra í skapinu og...
InnlentCovid-19Sóttvarnarlög brotin á bar í Hafnarfirði8. maí 2020 Lögregla fékk tilkynningu klukkan 19.23 í gær um opinn bar í Hafnarfirði, þar voru sóttvarnarlög brotin. Einn starfsmaður var á vakt og sex viðskiptavinir voru á staðnum þegar lögreglu bar að garði. Viðskiptavinum var vísað út og barnum var lokað. Þess má geta að skemmtistaðir, krár og spilasalir skulu áfram vera lokaðir til 2. júní. Í dagbók lögreglu um verkefni...
InnlentÞrír handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna7. maí 2020 Lögregla handtók þrjá í Hafnarfirði klukkan 21:01 í gærkvöldi. Mennirnir eru grunaðir um framleiðslu fíkniefna, vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Mennirnir voru látnir lausir að lokinni skýrslutöku. Lögregla stöðvaði þá tvö ökumenn á vaktinni í gær og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar ökumaðurinn hafði heimabrugg í fórum sér og...
InnlentAllir fangaklefar fullir eftir nóttina4. maí 2020 Það var mikið var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Í dag bók lögreglu kemur fram að allir fangaklefar séu nú fullir eftir nóttina vegna ýmissa mála, svo sem líkamsárása, heimilisofbeldis, þjófnaðar og fíkniefnamála. Þá var sautján ára ökumaður stöðvaður á Vesturlandsvegi þar sem hann ók bifreið sinni á 176 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 km....
InnlentBjörgunarsveit kom kajakræðurum til aðstoðar30. apríl 2020 Björgunarsveit kom kajakræðurum til aðstoðar í Kollafirði klukkan laust fyrir 21 í gær. Þeir voru í sjálfheldu. Í dagbók lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir að tilkynning hafi borist lögreglu klukkan 21:41 um kajakræðara í sjálfheldu eftir róður gegn straumi. Björgunarsveit kom á vettvang og drógu aðila í land, fólkið var heilt á húfi. Lögregla hafði þá afskipti af...
InnlentEndaði á bráðamóttöku eftir að köttur hljóp í veg fyrir hann27. apríl 2020 Laust fyrir klukkan 23 í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna hjólaslyss í hverfi 108. Maður hafði dottið af hjóli sínu eftir að köttur hljóp í veg fyrir hann. Í dagbók lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir að maðurinn hafi verið ringlaður eftir óhappið. Hann kvartaði undan verk í öxl og brjóstkassa og var fluttur með sjúkrabíl til...
InnlentRéðust á mann á sjötugsaldri sem var úti að ganga með hundinn sinn15. apríl 2020 Lögreglan hafði í nógu að snúast í gær og í nótt. Frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt voru 50 mál bókuð og fimm vistaðir í fangageymslu er fram kemur í dagbók lögreglu. Klukkan 22:04 var tilkynnt um líkamsáras í Hlíðunum. Nokkrir ungir menn réðust á karlmann á sjötugsaldri sem var úti að ganga með hundinn sinn....
InnlentLeitin í nótt vegna ábendingar frá tveimur vegfarendum14. apríl 2020 Leit að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long hófst að nýju seint í gærkvöldi, en hennar hefur verið saknað síðan á fimmtudag, skírdag. Leitin í nótt var tilkomin vegna ábendingar frá tveimur vegfarendum sem töldu sig sjá torkennilegan hlut í sjónum skammt frá landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Vegfarendurnir voru á ferð skammt frá þeim stað þar sem bifreið...
InnlentEnginn í íbúðinni þegar eldurinn kom upp14. apríl 2020 Klukkan 19:32 í gær var tilkynnt um eld í íbúðarhúsi við Hverfisgötu og var allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kallað út. Slökkvistarfi lauk klukkan 23:24 og er málið í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Eldurinn kviknaði í risíbúð hússins en enginn var staddur í íbúðinni þegar eldurinn kom upp er fram kemur í tilkynningu lögreglu.