InnlentMóðir Heklu Lindar segir mál George Floyd „rífa upp sárið“5. júní 2020 „Þetta rífur upp sárið,“ segir Guðrún Haraldsdóttir, móðir Heklu Lindar Jónsdóttir sem lést í apríl 2019 við handtöku, um mál Bandaríkjamannsins George Floyd. Floyd lést 25. maí við handtöku þegar lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þunga sinn hvíla á hálsi hans. Mikil mótmæli hafa brotist út í Bandaríkjunum og víðar í kjölfar andláts Floyd. „Ég vil ekkert blanda þessum tveimur málum...
InnlentReynt að brjótast inn til Davíðs og Jóhönnu: „Ætlum að dúndra upp þjófavarnakerfi í dag!“5. júní 2020 Óprúttinn aðili reyndi að brjótast inn á heimili Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur og Davíðs Sigurgeirsson í gær. „Í gær reyndi einhver að brjótast inn til okkar. Aðferðin sem var notuð var svohljóðandi. Í þvottahúsinu okkar er gömul vifta. Við höfum búið í húsinu okkar í tvö ár en ekkert pælt í þessari viftu. Aldrei notað hana. En einhver hafði ýtt viftunni...
InnlentRéðst á starfsmann rakarastofu3. júní 2020 Lögreglan fékk tilkynningu laust fyrir klukkan 18.00 í gær um mann í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur sem hafði ráðist á starfsmann rakarastofu á Laugavegi. Manninum hafði verið vísað út af stofunni sökum ástands. Hann hafði þá skemmt gleraugu og bifhjól starfsmannsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Þar segir að málið sé í rannsókn.
InnlentFannst látinn í Laxá í Aðaldal1. júní 2020 Laust eftir klukkan þrjú í nótt fannst maður látinn í Laxá í Aðaldal. Mannsins hafði verið saknað að eftir að hann skilaði sér ekki til baka úr veiði. Ekki er vitað hver dánarorsök mannsins er. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Lögreglunni barst tilkynning laust fyrir miðnætti um að karlmanns væri saknað við Laxá í...
InnlentNokkur heimilisofbeldismál og 10 gistu fangaklefa30. maí 2020 Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að mjög mikikið hafi verið að gera á næturvaktinni og voru rúmlega hundrað mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17:00-05:00. Málin voru af ýmsu tagi og oftar en ekki þar sem fólk var undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Nokkur heimilisofbeldismál komu inn á borð lögreglu, einnig líkamsárásir, hávaðakvartanir, aðstoð við borgarana...
InnlentKannabisræktun stöðvuð í heimahúsi í Árbæ29. maí 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Árbæ í vikunni og var lagt hald á tæplega 130 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Við húsleit tók lögreglan enn fremur í sína vörslu fjármuni, sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Tveir húsráðendur voru handteknir í þágu rannsóknarinnar og játaði annar þeirra aðild að málinu. Lögreglan minnir á upplýsingasímann...
InnlentUnglingur úrskurðaður í 4 vikna gæsluvarðhald28. maí 2020 Sautján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 25. júní, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Breiðholti í síðasta mánuði. Pilturinn er vistaður á viðeigandi stofnun. Rannsókn málsins miðar vel.
InnlentUmfangsmikil kannabisræktun í tjöldum á háalofti28. maí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun fyrr í vikunni þegar gerð var húsleit að fenginni heimild. Hafði ræktuninni verið komið fyrir í þremur tjöldum á háalofti húsnæðis. Í tjöldunum voru tæplega hundrað plöntur á ýmsum ræktunarstigum. Þá fundust kannabisefni í pappakassa á gólfinu svo og plöntur sem hengdar höfðu verið upp til þurrkunar í lofti rýmisins. Efnið sem þannig hafði...
InnlentFjórir handteknir við vinnustaðaeftirlit27. maí 2020 Fjórir karlmenn voru handteknir á byggingasvæði í Garðabæ í gær þegar lögreglan var við vinnustaðaeftirlit. Grunur leikur á að mennirnir, sem allir eru erlendir ríkisborgarar, hafi fengið skráningu á grundvelli falsaðra vegabréfa og hafi því ekki tilskilin leyfi til að starfa hér á landi. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni. Karlmennirnir voru færðir á lögreglustöð og yfirheyrðir, en við...
InnlentLögreglan leitar að eiganda veiðibúnaðar27. maí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú í fórum sínum veiðibúnað sem fannst meðal muna hjá karlmanni sem hafði stundað um nokkurt skeið að fara inn í bílskúra í Reykjanesbæ og láta greipar sópa, síðast í byrjun þessa árs. Maðurinn var í síðasta mánuði dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir umrædd brot. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að þeir sem kunna...
InnlentVonsviknir þjófarnir náðust á myndband27. maí 2020 Elvar Reykjalín, framkvæmdastjóri og eigandi heitu pottanna í Sandvíkurfjöru við Hauganes, segir leitt að komast að því að óprúttnir aðilar hafi brotið upp peningakassa við pottana og rænt innihaldinu í fyrrinótt. Elvar skrifar um málið á Facebook. Hann segir þjófana líklegast hafa orðið fyrir vonbrigðum því það skili sér oftast lítið í peningakassann. „Vonbrigði viðkomandi urðu mikil er hann leit...
InnlentLíkamsárás við Lyfju á Selfossi – lögreglan óskar eftir vitnum24. maí 2020 Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir hugsanlegum vitnum að líkasárás sem átti sér stað fyrir utan Lyfju á Selfossi um klukkan 13 í dag, sunnudaginn 24. maí. Ekki kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurlandi hversu alvarlegt málið er, eða hversu margir áttu hlut að máli, en þeir sem gætu gefið upplýsingar um málið eru vinsamlega beðnir hafa samband við 112...