InnlentAndlát konu í Sandgerði rannsakað sem sakamál3. apríl 2020 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsakar nú andlát þar sem kona á sextugsaldri lést í heimahúsi í Sandgerði. Andlátið er rannsakað sem sakamál, eins og segir í tilkynningu frá lögreglu. Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins til 8. apríl. Samkvæmt tilkynningunni er nú unnið að rannsókn málsins og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
InnlentFjögur vilja verða lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu31. mars 2020 Fjórar umsóknir bárust um stöðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem auglýst var laus til umsóknar, en umsóknarfrestur rann út 30. mars. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri, var skipuð ríkislögreglustjóri frá 16. mars. Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra Helgi Valberg Jensson, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Jón H. B. Snorrason,...
HeimurCovid-19Neyðarlög sett í Bretlandi – lögreglunni heimilt að beita valdi til að reka fólk inn26. mars 2020 Ný neyðarlög bresku ríkisstjórnarinnar vegna kórónaveirufaraldursins voru kynnt í Bretlandi í dag. Samkvæmt þeim er lögreglunni falið að sjá til þess að fólk virði útgöngubannið sem sett var á mánudag og gefa lögin lögreglumönnum heimild til að beita valdi „innan hóflegra marka“ til að sjá til þess að þeir sem brjóta gegn útgöngubanninu snúi aftur til síns heima. Ríkisstjórnin segir...
InnlentArndís Soffía skipuð sýslumaður í Vestmannaeyjum26. mars 2020 Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Arndísi Soffíu Sigurðardóttur sýslumann í Vestmannaeyjum frá 1. apríl næstkomandi. Hún var metin hæfust umsækjenda til að gegna starfinu. Arndís Soffía er lögfræðingur með lögreglumenntun og hefur auk þess sótt sér menntun í afbrotafræði. Hún á að baki starfsferli innan lögreglu og sem fulltrúi sýslumanns og nú síðast staðgengill sýslumannsins á Suðurlandi. Að undanförnu hefur...
HeimurÖkumanns leitað vegna umferðarslyss26. mars 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar, nýlegrar jeppabifreiðar vegna umferðarslyss á Reykjanesbraut þriðjudaginn 10. mars um kl. 10 fyrir hádegi. Þar var ekið í veg fyrir ökumann á rauðum Skoda Octavia á leið norður Reykjanesbraut, á móts við Brunnhóla í Hvassahrauni, með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði utan vegar. Ökumaður hvítu jeppabifreiðarinnar ók rakleiðis...
InnlentFékk 58 milljónir greiddar fyrir „ráðgjöf“ – Núverandi stjórnendur GAMMA með málið til lögreglu24. mars 2020 Í nýrri umfjöllun Kveiks er ljósi varpað á rekstur fasteignafélagsins Upphafs sem var í eigu Novus, fasteignasjóðs GAMMA. Eftir kaup Kviku banka á GAMMA í fyrra kom í ljós að staða sjóðsins var umtalsvert verri en gert hafði verið ráð fyrir. Í umfjöllun Kveiks segir að Kvika hafi „bitið á agnið“ þegar þáverandi eigendur GAMMA hafi farið að leita að...
InnlentLögreglan lýsir eftir Sean: Ekkert spurst til hans frá júní 201823. mars 2020 Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi. Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfiskertur og gengur einungis stuttar vegalengdir án stuðnings. Mynd úr vegabréfi Sean. Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018, en ekki...
InnlentCovid-19Sagðist vera að birgja sig upp af kannabis fyrir sóttkví23. mars 2020 Lögreglan stöðvaði ökumann í nýliðinni viku vegna gruns um að hann væri að aka undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn reyndist hafa um 70 grömm af kannabis í fórum sínum og sömuleiðis áhöld sem benda til dreifingar efna. Ökumaðurinn var með svar á reiðum höndum þegar lögreglan hafði af honum afskipti. Hann kvaðst hafa verið að birgja sig upp vegna sóttkvíar sem...
InnlentÁslaug er fundin- Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Eik20. mars 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að leita að Áslaugu Eik Ólafsdóttur. Áslaug er 25 ára gömul, 161 cm á hæð, um það bil 80 kg að þyng, með brúnt axlarsítt hár og græn augu. Síðast þegar sást til hennar var hún í gráum frakka, dökkum buxum, með svarta húfu og í hvítum og svörtum strigaskóm. Þeir sem hafa upplýsingar um hvar...
Innlent17 ára á 165 km hraða19. mars 2020 Lögregra stöðvaði 17 ára ökumann fyrir of hraðan akstur á Miklubraut klukkan 21:42 í gær. Hraði bílsins var mældur á 165 km á klukkustund. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að haft hafi verið samband við forráðamann ökumannsins og tilkynning var send til barnaverndarnefndar vegna málsins.
InnlentLátinn eftir umferðarslys18. mars 2020 Karlmaður um þrítugt er látinn eftir umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Kópavogi fyrir hádegi á þriðjudag í síðustu viku. Þar rákust saman þrír fólksbílar sem var ekið suður Reykjanesbraut, nálægt Orkunni, en maðurinn sem lést var farþegi í einum bílanna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
InnlentÓgnaði starfsfólki Árbæjarlaugar og heimtaði peninga18. mars 2020 Tilkynnt um tilraun til ráns í Árbæjarlaug í gær, rétt fyrir 21:00. Kona kom í afgreiðslu og ógnaði starfsfólki og heimtaði peninga en endaði á að yfirgefa vettvang án þess að fá peninga. Konan fór því næst inn á heimili í hverfinu og stal bíllyklum. Húsráðandi náði að stöðva konuna þar sem hún var komin inn í bifreið hans. Konan...