InnlentVeifuðu skammbyssu að vegfarendum5. mars 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk nokkrar tilkynningar í gær um ökumann og farþega bifreiðar sem væru að veifa skammbyssu og beina henni að vegfarendum. Lögreglan stöðvaði bifreiðina skömmu síðar. Um var að ræða mann og konu á þrítugsaldri, sem viðurkenndu athæfið og sögðust hafa gert þetta í gríni. Fólkið fékk að fara að lokinni skýrslutöku. Rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi...
InnlentUpphandleggsbein sem fannst árið 2017 er af Guðmundi Geir4. mars 2020 Upphandleggsbein sem kom í veiðarfæri báts á Selvogsgrunni 18. maí árið 2017 er af Guðmundi Geir Sveinssyni, sem hvarf árið 2015. Kemur þetta fram í tilkynningu lögreglunnar. Leit að Guðmundi Geir, sem fæddur var 13. apríl 1974 og búsettur á Selfossi hófst 26. desember 2015 og voru sterkar vísbendingar um að hann hefði fallið í Ölfusá við kirkjugarðinn á Selfossi....
InnlentLögreglan lýsir eftir Anítu Maríu3. mars 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Anítu Maríu Hjaltadóttur, 36 ára. Hún er grannvaxin, 164 sm á hæð, með sítt, ljóst hár (oft með tagl), brún augu og húðflúr á höndum. Talið er að Aníta, sem er sólbrún, sé klædd í svarta kápu með loði, hvítar þröngar buxur og íþróttaskó. Hún kann að vera með hvíta hanska eða vettlinga. Aníta hefur...
InnlentAlvarlegt vinnuslys í Mosfellsbæ3. mars 2020 Alvarlegt slys varð í Sunnukrika í Mosfellsbæ á þriðja tímanum í dag þegar gólfplata hrundi í nýbyggingu, en allnokkrir menn voru þar við vinnu þegar óhappið varð og lentu tveir þeirra í slysinu. Tilkynning um slysið barst kl. 14.30 og hélt fjölmennt lið viðbragsaðila þegar á vettvang. Ekki er hægt að veita upplýsingar um ástand mannanna tveggja að svo stöddu...
InnlentHandtekinn fyrir innbrot í skóla3. mars 2020 Klukkan 3.40 í nótt barst Innbrotsboð frá skóla í hverfi 104. Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í hverfinu eftir að hafa reynt að hlaupa undan lögreglu. Hann var með þýfið, fartölvur og fleira, meðferðis í bakpoka og tösku. Maðurinn var vistaður i fangageymslu. Um áttaleytið í gærkvöldi var mjög ölvaður karlmaður á fertugsaldri handtekinn á veitingastað í miðbænum. Var hann...
InnlentFórnarlamb hnífstungu með tvo dóma fyrir hættulegar hnífstungur2. mars 2020 Karlmaður um sextugt liggur nú á gjörgæslu eftir að hafa orðið fyrir hnífaárás á Kópaskeri um helgina. Sjá einnig: Stunguárás á Kópaskeri: Sérsveitin kölluð út Karlmaðurinn hefur sjálfur tvisvar hlotið dóm fyrir hættulegar hnífstungur. Árið 2007 hlaut hann þriggja ára dóm fyrir að stinga fyrrverandi unnustu sína í bakið á Húsavík. Árið 2010 hlaut hann þriggja ára dóm dóm fyrir...
InnlentLögreglan og landlæknir á móti áfengisfrumvörpum1. mars 2020 Mjög skiptar skoðanir eru um tvö frumvörp sem nú liggja fyrir í þinginu um breytingar á áfengislögum. Öðru frumvarpinu er ætlað að heimila sölu áfengis í vefverslunum. Markmið hins er að afnema þá refsingu sem finna má í lögum vegna heimabruggunar með gerjun. Óhætt er að segja að umsagnaraðilar frumvarps Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum skiptist í...
InnlentFimm í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamáls1. mars 2020 Fjórir karlar og ein kona hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 13. mars að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Þau voru handtekin í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í gærmorgun, en lagt hefur verið hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið. Fólkið er á þrítugs-, fertugs- og fimmtugsaldri. Rannsókninni miðar vel, en...
InnlentFimm handteknir í morgun í aðgerðum lögreglu29. febrúar 2020 Fimm manns voru handteknir í aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í og við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun eftir að henni bárust upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir. Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum en hin við norðurenda þeirra. Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð, en í fórum þeirra fundust fíkniefni. Málið telst að mestu upplýst. Við aðgerðirnar...
InnlentPáley skipuð bráðabirgðalögreglustjóri á Austurlandi29. febrúar 2020 Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, hefur verið skipuð sem lögreglustjóri á Austurlandi til bráðabirgða, en Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri, lætur um mánaðamótin af störfum. Nýr lögreglustjóri átti að taka við 1. mars, en skipanin hefur tafist, en samkvæmt dómsmálaráðuneytinu er vonast til að gengið verði frá henni fljótlega. Þar til nýr lögreglustjóri tekur við mun Páley gegna starfi lögreglustjórans á...
InnlentStunguárás á Kópaskeri: Sérsveitin kölluð út29. febrúar 2020 Karlmaður var stunginn með hnífi í heimahúsi á Kópaskeri í gærkvöldi, lögreglan fékk tilkynningu um árásina um klukkan 21 og fóru lögreglumenn frá Akureyri og Húsavík á staðinn ásamt rannróknarlögreglumönnum. Þegar var óskað eftir útkalli sérsveitar Ríkislögreglustjóra með þyrlu, auk þess sem starfsmenn Vegagerðarinnar voru ræstir út til að opna lögreglunni leið eftir veginum, þar sem slæmt verður var og...
InnlentLíkamsárás í Kópavogi – rannsókn miðar vel27. febrúar 2020 Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á líkamsárás í Hamraborg í Kópavogi í þar síðustu viku, en þar veittist hópur unglingspilta að pilti á líku reki, miðar mjög vel. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni hafa margir verið kallaðir til vegna rannsóknarinnar, en um grófa líkamsárás var að ræða . Vegna umfjöllunar um málið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum vill lögreglan taka fram að...