Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lögreglan og landlæknir á móti áfengisfrumvörpum

Lögreglan og landlæknir á móti áfengisfrumvörpum
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Mjög skiptar skoð­anir eru um tvö frum­vörp sem nú liggja fyrir í þing­inu um breyt­ingar á áfeng­is­lögum. Öðru frum­varp­inu er ætlað að heim­ila sölu áfengis í vef­versl­unum. Markmið hins er að afnema þá refs­ingu sem finna má í lögum vegna heima­brugg­unar með gerjun.

Óhætt er að segja að umsagn­ar­að­ilar frum­varps Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á áfeng­is­lögum skipt­ist í tvo hópa. Tuttugu og fjórar umsagnir bár­ust um frum­varpið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Frum­varpið mælir fyrir að heim­ilt verði að selja áfengi í net­versl­unum og að senda áfengi heim að dyrum. Þetta felur í sér afnám ein­ok­unar Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins á smá­sölu áfengis til neyt­enda. Vef­versl­un­ar­leyf­is­höfum mun hins vegar ekki vera heim­ilt að hafa áfengi til sýnis á starfs­stöð.

Í ein­föld­uðu máli má segja að þeir sem sinna for­vörnum á einn eða annan hátt finna frum­varp­inu flest til for­áttu á meðan aðilar á mark­aði og hags­muna­sam­tök þeirra fagna því. „Ábyrgð alþing­is­manna og stjórn­valda er mikil þegar kemur að aðgengi áfengis þar sem það er talið eitt hættu­leg­asta vímu­efni sem til er og skaðar heilsu manna,“ segir meðal ann­ars í umsögn Félags lýð­heilsu­fræð­inga.

Fram kemur í grein­ar­gerð ráð­herra að um ára­bil hafi fólki verið heim­ilt að kaupa sér áfengi í erlendum versl­unum, til dæmis í vef­versl­unum, og látið senda heim að dyrum á Íslandi, að áfengis- og inn­flutn­ings­gjöldum upp­gerðum. Það hafi skotið skökku við að neyt­endur hafi getað pantað sér áfengi í gegnum erlendar net­versl­anir en ekki inn­lendar. Það sé bæði ósann­gjarnt og gangi gegn hags­munum neyt­enda. Fyr­ir­komu­lagið stand­ist ekki nútíma­legar kröfur um jafn­ræði.

Kostar 3 milljónir mannslífa árlega

Embætti land­læknis er á meðal þeirra sem leggj­ast af hörku gegn frum­varpi ráð­herra. Í umsögn segir að emb­ættið hafi ítrekað varað við og lagst gegn breyt­ingum á gild­andi reglum um sölu áfengis á Íslandi. „Tak­markað aðgengi að áfengi, sem meðal ann­ars felur í sér tak­markað aðgengi með einka­sölu rík­is­ins á áfengi, er áhrifa­rík leið til að draga úr skað­legum áhrifum vegna notk­unar áfengis.“

Fram kemur að ekki þurfi að efast um skað­leg áhrif áfengis á ein­stak­linga og sam­fé­lög. Á hverju ári lát­ist rúm­lega 3 millj­ónir manna í heim­inum af áfeng­is­tengdum orsökum. Engin þekkt mörk séu um skað­leysi áfengis og því beri að lág­marka eða tak­marka aðgengi eins og kostur er. „Embætti land­læknis leggst því gegn þeim breyt­ingum sem boð­aðar eru í þessum frum­varps­drögum.“

Fleiri aðilar leggj­ast gegn frum­varp­inu. Þeirra á meðal eru félaga­sam­tökin For­eldra­þorpið. „Rann­sóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi eykur neyslu og því myndi fyr­ir­hugað frum­varp fela í sér veru­lega aft­ur­för í for­vörnum gegn áfeng­is­neyslu barna og ung­linga,“ segir í umsögn sam­tak­anna.

Rjúfa einokunarstöðu ÁTVR

Starf­andi aðilar á mark­aði fagna því í umsögnum að til standi að rjúfa ein­ok­un­ar­stöðu ÁTVR á smá­sölu­mark­aði með áfengi. „Þessu frá­bæra fram­taki Áslaugar ber að fagna og ég vona inni­lega að þetta verði sam­þykkt og gert að lögum sem allra fyrst fyrir fram­göngu eðli­legs við­skipta­frelsis og ekki síst vegna umhverfis, sam­keppn­is­hátta og jafn­rétt­is­sjón­ar­miða,“ skrifar Kristján Jónas Svav­ars­son, eig­andi KLIF ehf, sem flytur inn vín frá Frakk­landi.

Fleiri selj­endur sem eiga fjár­hags­legra hags­muna að gæta taka í svip­aðan streng. Halldór Laxness Hall­dórs­son, eig­andi Berjamós, flytur inn vín frá Evrópu en segir starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins líða fyrir reglur ÁTVR. „Ég gæti talið upp ótal dæmi, vín frá okkur hefur verið tekið úr sölu vegna þess að nafn fram­leið­and­ans er ekki stærra en 1,3 mm á mið­anum, sem er skylda sam­kvæmt lög­gjöf Evr­ópu­sam­bands­ins. Samt er umrætt vín ítalskt, fram­leitt í Evrópu og selt um alla Evrópu,“ segir hann og vísar til reglna um umbúðir vör­unnar.

Þarft að sanna aldur þinn við pöntun og afhendingu

Í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um leyfi til að selja áfengi í vef­versl­unum er gert ráð fyrir því að kaup­and­inn sanni aldur sinn, rétt eins og þegar hann verslar í Vínbúðum ÁTVR. Í frum­varp­inu segir að hand­hafa versl­un­ar­leyfis sé heim­ilt að selja áfengi í gegnum vef­verslun og afhenda til ein­stak­lings sem er orð­inn 20 ára. „Leyf­is­hafi eða afhend­ing­ar­að­ili áfengis skal láta hlut­að­eig­andi sanna aldur sinn með því að sýna skil­ríki með mynd eða á annan full­nægj­andi hátt,“ segir í frum­varp­inu.

Í skýr­ingum við þetta ákvæði segir að neyt­and­inn þurfi í öllum til­vikum að sanna aldur sinn þegar afhend­ing áfengis fer fram á grund­velli leyfis um net­sölu. „Skiptir í því sam­bandi engu máli hvort leyf­is­haf­inn eða und­ir­verk­taki, þ.e. afhend­ing­ar­að­ili á hans vegum, t.d. póst­þjón­usta, hafi afhent áfengið,“ segir þar. Fram kemur að brot gegn þessu ákvæði kunni bæði að leiða til þess að leyf­is­haf­inn verði áminntur eða sviptur leyfi sínu og enn fremur að sá aðili sem afhendir vör­una geti bakað sér refsi­á­byrgð.

Þar eru einnig settar hömlur við afhend­ing­ar­tím­ann. Hann skal aldrei vera annar en milli klukkan átta að morgni og níu að kvöldi. Með öðrum orðum verður bannað að afhenda áfengið síðla kvölds, að nóttu eða árla morg­uns. Þá verður bannað að afhenda áfengi úr vef­versl­unum á helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar, sum­ar­dag­inn fyrsta, 1. maí, þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní og á frídegi versl­un­ar­manna.

Refsilaust að brugga heima

Píratinn Helgi Hrafn Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður hins áfeng­is­frum­varps­ins sem núna liggur fyrir þing­inu. Það kveður á um að heim­ilt verði að brugga vín til einka­neyslu með gerjun. Í dag liggur allt að sex ára fang­els­is­vist við brotum á áfeng­is­lögum. Í grein­ar­gerð­inni er bent á að síð­ustu ár hafi fjöl­margar nýjar teg­undir af íslenskum bjór hafi komið fram, sem sé afrakstur heima­brugg­unar. „Það skýtur skökku við að vaxt­ar­broddur íslenskrar bjór­menn­ingar og sú jákvæða ímynd sem tek­ist hefur að afla íslenskum bjór hvað varðar gæði grund­vall­ist í reynd á afbroti sem þung refs­ing liggur við.“

Ráðherra meðal fyrri flutningsmanna

Með honum að frum­varp­inu nú standa níu aðrir þing­menn bæði Pírata og Við­reisnar, auk Ingu Sæland, for­manns Flokks fólks­ins. Athygli vekur að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, nú dóms­mála­ráð­herra, var meðal flutn­ings­manna frum­varps­ins þegar það var síð­ast lagt fram, sem var vet­ur­inn 2018 til 2019. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var einnig í þeim hópi. Frum­varpið er því lík­legt til að hafa nokkuð breiðan stuðn­ing, þótt Helgi seg­ist sjálfur ekki hafa fyrir því til­finn­ingu.

Í grein­ar­gerð er bent á að áfeng­is­neysla sé rót­gró­inn hluti af íslenskri menn­ingu. Fram­leiðsla áfengis og sala hafi lengi verið miklum tak­mörk­unum háð vegna skað­legra áhrifa áfengis á neyt­endur og sam­fé­lagið. „Helstu ágrein­ings­efni síð­ustu ára hafa snúið að sölu­fyr­ir­komu­lagi, þ.e. hvort áfengi skuli ein­ungis selt í þar til gerðum rík­is­reknum versl­unum, ein­ungis í einka­reknum versl­unum eða hvoru tveggja. Með frum­varpi þessu er hvorki lögð til rýmkun á heim­ildum til dreif­ingar né breyt­ing á sölu­fyr­ir­komu­lagi.“ Bent er á að í Svíþjóð, Noregi og Finn­landi megi ein­stak­lingar brugga vín til einka­neyslu, sem er að hámarki 22% að styrk­leika.

Landlæknir og lögreglan hörð á móti

Embætti land­læknis og lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggj­ast gegn frum­varpi Helga og félaga. Lög­reglu­stjór­inn bendir á að fólk þurfi að hafa náð tutt­ugu ára aldri til að mega fá afhent áfengi, selja það eða kaupa. Gild­is­taka frum­varps­ins muni hafa það í för með sér að ein­stak­lingar undir tví­tugu megi fram­leiða áfengi til eigin neyslu en það megi hvorki selja það né kaupa. Þetta muni valda vand­ræðum í fram­kvæmd. Lög­reglu­stjór­inn leggur þess vegna til að fram­leiðsla áfengis verði háð ald­urs­tak­mörk­unum.

Lög­reglu­stjór­inn setur líka spurn­ing­ar­merki við að öll gerjun verði leyfð án þess að aflað hafi verið gagna um mögu­legar fram­leiðslu­að­ferðir. Það sé því „var­huga­vert að leggja til grund­vallar að öll fram­leiðsla áfengis til einka­neyslu með gerjun verði heim­iluð án frek­ari skoð­unar.“ Lög­reglu­stjór­inn furðar sig á því að lagt sé til að heim­ild til fram­leiðslu til einka­neyslu sé háð fram­leiðslu­að­ferð en ekki hámarks­á­feng­is­pró­sentu, eins og í Finn­landi, Svíþjóð og Noregi.

Lög­reglu­stjór­inn segir einnig, til að svara því sem fram kemur í grein­ar­gerð um refsiramma, að sam­kvæmt fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara liggi 50 þús­und króna grunn­sekt við brotum á áfeng­is­lögum en að við ákvörðun umfram grunn­sekt skuli horft til lög­bund­ins áfeng­is­gjalds.

Töpuð góð æviár ungs fólks

Embætti land­læknis er mót­fallið báðum frum­vörp­unum sem liggja fyrir þing­inu um breyt­ingar á áfeng­is­lögum og ítrekar að tak­mörkun á áfengi sé áhrifa­rík leið til að draga úr skað­legum áhrifum þess. Embættið bendir á að áfengi hafi árið 2016 verið í sjö­unda sæti yfir áhættu­þætti fyrir dauðs­föll og töpuð góð æviár. Áfengi sé helsta orsök tap­aðra góðra ævi­ára fólks á aldr­inum 15 til 49 ára. „ Það ber því að tak­marka allar aðgerðir sem eru til þess fallnar að auka notkun áfengis.“

Það er mat emb­ættis land­læknis að frum­varpið geti leitt til auk­innar notk­unar áfengis. Allt áfengi sé skað­legt heilsu manna og skipti engu máli hvort um sé að ræða gerjað eða eimað áfengi. „Allar alþjóð­legar rann­sóknir benda til þess að afnám einka­sölu á áfengi muni leiða til auk­innar heild­ar­neyslu. Enn fremur sýna rann­sóknir að sam­hliða auk­inni áfeng­is­neyslu auk­ist sam­fé­lags­legur kostn­aður vegna áfeng­is­tengdra vanda­mála.“

Réttarástand sem býr til geðþóttavald

„Það mun ekk­ert breyt­ast nema þeir sem brugga heima eiga ekki yfir höfði sér fang­els­is­refs­ingu,“ segir Píratinn Helgi Hrafn Gunn­ars­son um frum­varpið sem hann mælir fyrir. Hann segir að fyrir sér liggi ekk­ert annað en að fólk geti bruggað heima án þess að eiga yfir höfði sér refs­ingu. Hann hafi sjálfur engan áhuga á bjór­bruggun.

Helgi segir að sú breyt­ing hafi verið gerð á frum­varp­inu frá fyrri útgáfu þess að eim­ing verði áfram bönnuð. Hann segir að brugg­arar hafi bent á að það að eima áfengi krefj­ist mik­illar þekk­ingar og geti verið hættu­legt fyrir þá sem ekki kunni til verka. Þess vegna hafi breyt­ingin verið gerð. Aðeins standi til að leyfa gerjun.

Hann segir að þeir sem mót­mælt hafi frum­varp­inu geri ráð fyrir því að núver­andi lög­gjöf virki. Það sé mis­skiln­ingur. Lögin í dag virki alls ekki því fjöl­margir bruggi í heima­húsi án þess að litið sé á þá sem lög­brjóta. „Lög­reglan sér ekki ástæðu til að fram­fylgja þessu banni,“ segir Helgi, sem ítrekar að réttar­ör­yggi þessa fólks sé það eina sem hann hafi áhyggjur af. „Þetta rétt­ar­á­stand býr til geð­þótta­vald hjá lög­reglu­yf­ir­völdum. Það er í eðli sínu á skjön við það sem rétt­ar­ríkið stendur fyrir.“

Lestu meira í nýju Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ