SlúðurSigrar Jóns og Bessýar23. febrúar 2024 Gríðarleg fagnaðarlæti urðu á meðal innmúraðra Sjálfstæðismanna eftir að kom á daginn að útsendarar flokksins höfðu náð inn í varastjórn í Félagi eldri borgara í Reykjavík. Með gríðarlegri smölun tókst að ná kosningu sanntrúaðra í varastjórnina. Fagnaðarlætin innan flokksins eru ekki síst vegna þess að flokksmenn hafa undanfarin ár glímt við fylgistap. Sigurinn í gær var því kærkominn og silkihúfur...
SlúðurKristrún krossfest22. febrúar 2024 Furðuleg umræða hefur myndast eftir að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, benti á hið augljósa að óheft flæði útlendinga til Íslands gengur ekki upp til lengdar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur borið ábyrgð á málaflokknum um áraraðir og á ástandið skuldlítið. Að vísu er dómsmálaráðherrum flokksins sú vorkunn að algjör skautun er í málaflokknum og Vinstri-grænir hafa staðið fast á því að halda landamærunum...
SlúðurÁslaug er týnd21. febrúar 2024 Össur Skarphéðinsson , fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, þykir vera á meðal gleggri stjórnmálaskýrenda. Hann gerði forystukreppuna í Sjálfstæðisflokknum að umfjöllunarefni á Facebook.Hann segir það vera almenna skoðun innan flokksins að Bjarni Benediktsson muni axla sín skinn á næstunni og að þrír kandídatar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir . Guðlaugur Þór Þórðarsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir , séu fyrir löngu komnir í formannsstellingar...
SlúðurDaðrað við Kristrúnu20. febrúar 2024 Lukkuriddarar í atvinnuleit horfa nú hýru auga til Samfylkingarinnar sem væntanlega býður upp á fjölda atvinnutækifæra eftir næstu kosningar. DV fullyrðir að á meðal pólitískra vonbiðla Kristrúnar Frostadóttur sé útvarpsstjórinn umdeildi, Stefán Eiríksson, sem hefur gefið til kynna að hann muni hætta af sjálfsdáðum þegar skipunartíma hans sleppir. Þá upplýsir DV að Þórður Snær Júlíusson, annar ritstjóra Heimildarinnar, horfi til...
SlúðurNærbuxur frá Jóni Baldvin19. febrúar 2024 Eitt af furðulegri dómsmálum síðari tíma fór í gegnum Landsrétt á dögunum. Indverska prinsessan og söngkonan Leoncie herjaði þar á Helga Jónsson, eiganda Glatkistunnar sem heldur úti ómetanlegum fróðleik um tónlist og fólk henni tengt. Í kafla um Leoncie sagði meðal annars að hún hefði starfað sem nektardansmær. Þá var fróðleiksmoli um að tónlistarkonan hefði fengið að gjöf nærbuxur frá...
SlúðurHöskuldur fékk nafnleynd18. febrúar 2024 Höskuldur Þór Þórhallsson, lögmaður og fyrrverandi alþingismaður Framsóknarflokksins, er í klípu eftir að hann var klagaður fyrir að halda eftir erfðafjárskatti sem hann átti að standa skil á sem skiptastjóri í dánarbúi konu. Erfingjar konunnar, sem þurftu utanaðkomandi aðstoð við skiptin vegna innbyrðis deilna, fengu óvænt kröfu um skattinn löngu eftir að skiptum lauk og tilkynntu brotið til úrskurðarnefndar Lögmannafélags...
SlúðurHjartagæska Egils17. febrúar 2024 Inga Sæland, formaður Frjálslynda flokksins, hefur umdeilar skoðanir á móttöku hælisleitenda til Íslands og vill stöðva þá óráðsíu í ríkisrekstri sem hún telur fylgi mannhafinu. „Ég vil stöðva allt flæði hælisleitenda til landsins og það fyrir löngu síðan. Ísland er uppselt fyrir hælisleitendum það er ekki flóknara,“ skrifar hún á Facebook í gær. Sjónvarpsmaðurinn orðhvati, Egill Helgason, sem dagana langa...
SlúðurGuðni undir þrýstingi16. febrúar 2024 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, nýtur fádæma vinsælda í embætti. Hann er undir miklum þrýstingi þessa dagana. Langstærstur hluti þjóðarinnar, eða 81 prósent samkvæmt nýjustu könnun, er ánægður með störf forsetans og vilja hafa hann áfram í embætti. Guðni hefur sjálfur ekki gefið annað til kynna en að hann sé á förum eins og uppleggið var í áramótaávarpi hans. Ákvörðun...
SlúðurKristrún kjarkmikil15. febrúar 2024 Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er stjórnmálamaður sem fer ótroðnar slóðir og er óhrædd við að fylgja eftir sannfæringu sinni. Hún hoppar ekki á þann vagn að tala fyrir hömulausu flæði hælisleitenda inn í landið, sem tryggir henni atkvæði úr hópi hinna einföldu í hópi góða fólksins. Kristrún er ófeimin við að taka undir með Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra sem vill herða...
SlúðurKlúður Þórdísar14. febrúar 2024 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra er í miklum vanda vegna ásælni ríkisins í „óbyggðir“ í Vestmannaeyjum og Grímsey. Óbyggðanefnd hefur kynnt Akureyringum og Vestmannaeyingum kröfur ríkisins um að stór hluti eyjanna verði eign ríkisins. Þar á meðal er höfuðdjásn Vestmannaeyja, sjálfur Heimaklettur. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri var hoppandi reið, í viðtali við Bylgjuna, þar sem hún fordæmdi áformin og skellti sökinna...
SlúðurÁrásin á Diljá13. febrúar 2024 Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, varð fyrir áfalli í gær þegar snjóbolti skall á bifreið hennar. Hún lýsti atvikinu sem svo að karlmaður nokkur hafi staðið fyrir aðförinni og auk þess hreytt í hana ókvæðisorðum og fyrirskipað henni ítrekað að fokka sér. Fleiri fúkyrði munu hafa fylgt með. Mogginn sagði frétt af atvikinu eins og fleiri miðlar. Það merkilega var...
SlúðurBrotlending Sigríðar12. febrúar 2024 Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, virtist ætla að afgreiða sína fyrstu samninga með stæl. Verkalýðshreyfing Vilhjálms Birgissonar, Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Ragnars Þórs Ingólfssonar var sameinuð og skælbrosandi í Karphúsinu þar sem Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari gerði sig kláran í að baka vöfflur. En einmitt þegar allt virtist leika í lyndi sprakk allt í loft upp og kærleiksblómin breyttust á...