SlúðurEgill skapstyggur30. október 2023 Egill Helgason fjölmiðlamaður og Guðmundur Magnússon rithöfundur lögðust báðir á eitt með að gera því rækileg skil að séra Friðrik Friðriksson hefði verið haldinn barnagirnd og hugsanlega misnotað einn dreng. Þetta er byggt á heimild sem er nafnlaus. Viðtalið við Guðmund í Kiljunni þessa efnis hefur sett allt á annan endann og krafa er uppi um að taka niður styttur...
SlúðurKatrín í krísu29. október 2023 Staða Vinstri grænna í málum Palestínu og Ísraels er erfið. Ríkisstjórn formannsins, Katrínar Jakobsdóttur, stendur að hjásetu Íslands varðandi átakin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Fram að þessu hafa Vinstri grænir verið einhuga í samstöðu með Palestíumönnum og tilbúnir til að fordæma Ísraelsmenn fyrir kúgun og ofbeldi. Nú hefur orðið á breyting og VG ber ábyrgð á því afstöðuleysi sem birtist....
SlúðurTekur ábyrgð á Sigríði28. október 2023 Meint skattsvik Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, fréttamanns Ríkisútvarpsins og formanns Blaðamannafélagsins, hafa verið til umræðu í fjölmðiðlum. Sigríður Dögg er sökuð um að hafa ekki talið fram háa fjármuni sem hún og eiginmaður hennar, Valdimar Birgisson, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, fengu frá Airbnb vegna leigu á íbúðum. Málið þykir vera viðkvæmt fyrir Ríkisútvarpið sem áður hefur gert sambærileg undanskot að fréttaefni en...
SlúðurGuðbjörg vekur ótta27. október 2023 Eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, Ísfélagið í Vestmannaeyjum, hefur verið dæmt til að greiða Þorgeiri Pálssyni, núverandi sveitarstjóra í Strandabyggð, þrjár milljónir krónda í vangoldin laun. Dómurinn er tilkominn vegna svika félagsins við Þorgeir sem lagði upp fyrir félagið kaup á kvóta í Namibíu en toppar félagsins ákváðu síðan að gera verkefnið að sínu og sviku Þorgeir sem fór í mál...
SlúðurHvíslað um Bjarna26. október 2023 Leikrit Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra í kringum „afsögn“ hans sem fjármálaráðherra hefur kallað á fleiri spurningar en þeim sem svarað var með hrókeringunni. Það hafði legið í loftinu allt síðan í fyrravetur að Bjarni væri tilbúinn með þá fléttu að skipta um stól við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og gera hana að formanni án kosningar. Greint var frá fyrirhugaðri fléttu á...
SlúðurHeimir vill ekki „fokk feðraveldi“25. október 2023 Konur slóu svo sannarlega í gegn í gær þegar þær troðfylltu miðborg Reykjavíkur til að mótmæla því misrétti sem konur og kvárar búa við á Íslandi. Giskað er á að 70-100 þúsund manns hafi mætt til mótmælanna. Langflestir eru hæstánægðir með mætinguna og málstaðinn. Málið bar á góma í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. Heimir Karlsson, stjórnandi þáttarins og...
SlúðurPáll ók drukkinn24. október 2023 Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og fréttastjóri Stöðvar 2, hefur sent frá sér öldungis frábæra bók, Í stríði og friði fréttamennskunnar, sem er einskonar uppgjör hans eftir langan fjölmiðlaferil. Ýmislegt viðkvæmt ber á góma svo sem afdrifaríkt eftirpartý þegar Kryddsíldinni lauk á Stöð 2 á gamlársdag. Sigmundur varafréttastjóri, Páll Magnússon fréttastjóri og Davíð Oddsson forsætisráðherra sátu að sumbli eftir...
SlúðurÓttar í ólgusjó23. október 2023 Hæstaréttarlögmaðurinn Óttar Pálsson hefur staðið í ólgusjó undanfarna mánuði. Hann var fréttaefni á Vísi og í Morgunblaðinu um helgina. Uppgefið tilefni fréttanna er að hann og eiginkona hans, Anna Rut Þráinsdóttir viðskiptafræðingur hjá Landsvirkjun, hafa ákveðið að slíta samvistir. Óttar er einn eigenda lögmannsstofunnar Logos og hefur getið sér gott orð sem lögmaður allt frá því eftir hrun. Hann var...
SlúðurSara Lind í stuði22. október 2023 Sara Lind Guðbergsdóttir, settur forstjóri Ríkiskaupa, situr ekki með hendur í skauti þessa dagana. Forstjórinn hefur lýst yfir aðgerðum á hendur þeim ríkisstarfsmönnum sem soga persónulega til sín vildarpunkta með því að ferðast á kostnað almennings með Icelandair. Sara bendir á að fæstir vilja ferðast með Play sem býður ekki upp á sporslur af þessu tagi. Þetta kostar ríkið svimandi...
SlúðurAgli sparkað upp21. október 2023 Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Egill Helgason, var í stórviðtali í Ríkissjónvarpinu, vinnustað sínum, þar sem þau Gunnar Hansson og Guðrún Gunnarsdóttir ræddu við starfsbróður sinn um líf hans og viðhorf. Egill var að vanda opinskár um kvíðasjúkdóm sinn og annað sem á honum hefur dunið á löngum ferli. Þá var honum tíðrætt um afrek sonar síns, Kára Egilssonar, sem hefur gert það...
SlúðurBjörgvin var undrabarn20. október 2023 Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra Samfylkingar, hefur verið á póliitískum vergangi síðan hann hraktist af þingi árið 2013 í hruni Samfylkingar eftir 10 ára þingsetu. Þegar bankarnir hrundu var hann í einu aðalhlutverkanna sem viðskiptaráðherra. Honum var þó haldið utan við það sem var að gerast dagana áður en Glitnir féll. Þar héldu Geir Harde forsætisráðherra og Davíð...
SlúðurLeyndarhjúpur Elliða19. október 2023 Minnihlutinn í bæjarstjórn Ölfuss hefur barist fyrir því undanfarin misseri að fá fram gögn sem snúa kaupum og leigu Elliða Vignissonar bæjarstjóra varðandi jörðina Hjalla í Ölfusi. Bæjarstjórinn leigði upphaflega einbýlishús á jörðinni en keypti það seinna af peningamönnum í sveitarfélaginu. Seljen dur eru þeir Hrólfur Ölvisson og Einar Sigurðsson sem meðal annars eru stórtækir í sölu námugreftri og sölu...