Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Flokkur

Orðrómur

Greinar

Slúður

Edda Falak var skyr­kona

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Frosti Logason upp­lýsti í hlað­varpi sínu, Brotkast, að sú umdeilda Edda Falak hefur aldrei starfað í fjár­fest­inga­banka, stóru lyfja­fyr­ir­tæki eða höndlað með verð­bréf, eins og hún hefur haldið fram. Edda nýtur þjóð­ar­at­hygli fyrir við­töl sín. Frosti hefur lagt vinnu í að kanna þessi mál og spurt umrædd fyr­ir­tæki um störf Eddu sem bjó og starf­aði um tíma í Kaup­manna­höfn....
Slúður

Skúli lof­aði barna­gæslu

Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar, er í vanda vegna yfir­lýs­inga sinna árið 2ö19um að allt yrði í sóma í leik­skóla­málum Reyk­vík­inga. Halldóra Björk Þór­ar­ins­dóttir, for­maður Barnsins, félags dag­for­eldra, upp­lýsti á dög­unum að Skúli hefði sagt á fund­inum að dag­for­eldrar yrðu óþarfir árið 2023 þegar öll börn yfir 12 mán­aða aldri yrðu komin með leik­skóla­pláss. Nú er raunin sú að meir­hlut­inn í...
Slúður

Fyrsta full­næg­ingin 38 ára

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, gerir jöfnum höndum út á upp­haf og enda­lok lífs­ins. Þannig stór­græðir útgáfa hans á því að birta minn­ing­ar­greinar og selja syrgj­endum og öðrum aðgang að greinum um hina látnu. Þá græðir blaðið ótæpi­lega á því að aug­lýsa leg­steina og útfar­ar­þjón­ustu innan um minn­ing­ar­orðin. Davíð hefur einnig gert sér grein fyrir að umfjöllun um kyn­líf er vel...
Slúður

Ólína og mað­ur­inn

Fræði­mað­ur­inn og bar­áttu­jaxl­inn, Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, er ekki hrif­inn af þeirri ákvörðun stjórn­enda Mennta­skól­ans við Sund að hætta að nota skil­grein­ing­una starfs­manna­fundur og breyta í stað­inn í starfs­fólks­fundur. Ólína bendir rétti­lega á að maður nær yfir öll kyn. Frétta­blaðið hefur eftir henni að ef látið verði undan kröfum um kyn­hlut­leysi allra orða muni það hafa ó­fyrir­sjáan­legar af­leið­ingar fyrir mál­kerfi og...
Slúður

Brynjar í fýlu

Brynjar Níelsson, stall­ari Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, er á meðal umdeild­ari manna. Þetta kom ágæt­lega fram í heim­ilda­þátt­unum Stormi þar sem rifjuð var upp and­staða stöku kver­úlanta við bólu­setn­ingar og sótt­kví vegna Covid. Brynjar er einn þeirra sem upp­skar háð Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis og þrí­eyk­is­ins að tjalda­baki vegna skoð­ana sinna. Hann brást við á Facebook þar sem hann gaf lítið fyrir...
Slúður

Hús­töku­ráð­herr­ann Jón

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra er lík­lega sá afkasta­mesti innan rík­is­stjórnar. Hann vekur upp hvert málið á fætur öðru og hleypir gjarnan öllu í bál og brand. Jón er ráð­herra til bráða­birgða. Gefið var út við upp­haf kjör­tíma­bils­ins að Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrsti þing­maður Sunn­lend­inga, myndi taka við af honum eftir 18 mán­uði. Flestir túlk­uðu það sem svo að Jóni yrði vikið úr...
Slúður

Dul­ar­full móðir á eftir Eddu

Hlað­varps­stjarnan umdeilda, Edda Falak, þarf að verj­ast í ein­kenni­legu máli þar sem nafn­laus móðir krefur hana um fimm millj­ónir króna vegna þess að dóttir mömm­unnar lýsti því Eigin konur, þætti Eddu, að móðir hennar hefði beitt sig ofbeldi. Máli sínu til stuðn­ings lagði dóttirin fram hljóð­brot með sam­skiptum við móður sína sem spilað var í þætt­inum. Áhrifa­vald­ur­inn Helgi Ómarsson end­ur­birti...
Slúður

Pönkast á Ragnari Þór

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er ekki í náð­inni hjá Davíð Oddssyni og þjónum hans á Morg­un­blað­inu. Ragnar stendur í harðri bar­áttti við Elvu Hrönn Hjart­ar­dóttur um for­manns­stól­inn í félag­inu. Morg­un­blaðið hefur haft sig mjög í frammi í þessum átökum og leynt opg ljóst pönk­ast á Ragnari. Í gær var birt aðsend grein frá Krist­jönu Val­geirs­dóttur, brottreknum starfs­manni Eflingar, sem...
Slúður

Kjaftur á Sigga Sveins

Landslið karla í hand­bolta hefur valdið þjóð­inni gríð­ar­legum von­brigðum. Um tíma var talið af mörgum þeirra hrif­næm­ustu að liðið stefndi þráð­beint á heims­meist­ara­titil en það end­aði með hálgerðum ósköpum og heims­meist­ara­draum­arnir brugð­ust. Í fram­hald­inu var Guð­mundur Guð­munds­son, far­sæll þjálf­ari, rek­inn. Um liðna helgi dundi svo enn eitt áfallið á lið­inu þegar það tap­aði fyrir Tékkum með fimm marka mun. Ein...
Slúður

„Villi­kött­ur­inn“ Rósa til Katrínar

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ingar, er komin með vinnu hjá Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Henni er falið að vera verk­efna­stjóri alþjóða­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu næstu sex mán­uði. Mogginn gerir nokk­urt veður út af því að reglur hafi verið sveigðar og aug­lýs­ingu breytt til að Rósa pass­aði inn í verk­efnið. Rósa Björk er fyrr­ver­andi alþing­is­maður Vinstri-grænna en gat sam­visku sinnar vegna ekki stutt...
Slúður

Ragnar í nauð­vörn

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er í nauð­vörn þessa dag­ana. Elva Hrönn Hjart­ar­dóttir sæk­ist eftir for­manns­emb­ætt­inu og gagn­rýnir hann af hörku. Ragnar Þór hafði þá ímynd að vera grjót­harður og jafn­vel bylt­ing­ar­sinn­aður bar­áttu­maður. Þess er skemmst að minn­ast að hann, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Vil­hjálmur Birg­is­son mynduð þrí­eyki hinna kröfu­hörðu. Sam­eig­in­lega sprengdu þau Alþýðu­sam­band Íslands í loft upp og boð­uðu...
Slúður

Haraldur skammar Elon Musk

Góð­mennið Haraldur Ingi Þor­leifs­son, starfs­maður Twitter, veit ekki hvort hann er núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­maður sam­fé­lags­mið­ils­ins. Fréttir báru­ist af því ío sein­ustu viku að hann hefði verið rek­inn í nið­ur­skurði hjá fyr­ir­tæk­inu. Sú ályktun var dregin vegna þess að aðgangi hans að kerfum fyr­ir­tæk­is­ins. Engin form­leg upp­sögn hefur borist Haraldi frá fyr­ir­tæk­inu. Hann segir Elon Musk, eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins, ekki hafa...