SkoðunSólveig JónsdóttirBláa föðursystirin28. júní 2020 Síðast en ekki síst Eftir / Sólveigu Jónsdóttur Bróðursonur minn elskulegur á ættir sínar að rekja til suðrænna slóða. Hann er með súkkulaðibrún augu og augnhár sem teygja sig hálfa leið til tunglsins. Hárið dökkt og húðin brún. Einhverju sinni, þegar hann var þriggja ára gamall, fórum við í sund saman. Aldrei þessu vant sátum við í rólegheitum í vaðlauginni...
SkoðunReykjavíkurborgAðsend skoðunTil móts við framtíðina27. júní 2020 Eftir / Eyþór Laxdal Arnalds Tuttugasta og fyrsta öldin er tækniöld. Á fyrsta áratugnum komu snjallsímarnir og hafa þeir breytt ótrúlegustu hlutum á síðustu tíu árum. Í dag kaupa fáir sérstaka vekjaraklukku eða reiknivél. Smáforritin leysa þessi tæki af hólmi. Sama er að segja um geisladiska, bækur, leiki, myndavélar og jafnvel bankaútibú. Um þessar mundir er sambærileg bylting að eiga...
SkoðunReynir TraustasonUndir fölsku flaggi26. júní 2020 Stjórnmálaflokkar á Íslandi sigla margir hverjir undir fölsku flaggi. Hið pólitíska litróf sem spannar frá hægri til vinstri um miðjuna er fyrir löngu orðið bjagað og úr sér gengið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengst af verið kenndur við einstaklingsframtak og frelsi til heilbrigðra athafna. Stefna flokksins er að draga sem mest úr ríkisafskiptum og fækka þeim sem eru á spena ríkisins. Ef...
SkoðunHanna Ingibjörg ArnarsdóttirFrelsið er yndislegt22. júní 2020 Áhugamál og ástríða fólks er misjöfn. Ég er til að mynda forfallinn ferðalangur og elska að drekka í mig menningu og sögu þjóða í gegnum bragðlaukana og myndavélina mína enda hef ég ferðast töluvert í gegnum tíðina, mikið í Evrópu en einnig í Ameríku og Asíu. En eins og alkunna er þá hafa ferðalög legið niðri undanfarna mánuði, ekki bara...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirAð þekkja sjálfan sig21. júní 2020 Undanfarin ár hefur mikið verið talað um að einstaklingar þurfi að rækta sjálfa sig, þekkja langanir sínar og þarfir og kunna að leggja línurnar um hvert lífið eigi að stefna. Þetta hljómar óskaplega einfalt en er það ekki í raun. Sum okkar vita ekki nákvæmlega hver þau eru eða hvert þau vilja fara. Þá eru breytingar lífsins iðulega tilkomnar vegna...
SkoðunPawel BartoszekSama sagan21. júní 2020 Síðast en ekki síst Eftir / Pawel Bartoszek Þegar ég var barn mætti fjallahjólaæðið einn daginn. Skyndilega eignuðust börn fjallahjól og fóru að hjóla. Jafnvel að … hjóla í SKÓLANN! Það þótti náttúrlega hræðilegt af fjölmörgum ástæðum. a) Börn gætu slasað sig á leið í skólann. Við vitum að fólk er alltaf að detta á hjóli. Þess vegna væri betra...
SkoðunHanna Ingibjörg ArnarsdóttirStofustress21. júní 2020 Sjaldan hafa Íslendingar dvalið eins mikið heima við og veturinn 2020 sem verður lengi í minnum hafður og er nú þegar kominn á spjöld sögunnar. Fólk hefur fundið sér ýmislegt misskemmtilegt til dægrastyttingar en margir hafa ráðist í framkvæmdir á heimilinu, það geta starfsmenn bygginga-, gólfefna-, málningar- og húsgagnaverslana staðfest. Einhverjir hafa eflaust drifið í því sem hafði verið í...
SkoðunAðsend skoðunKerfislæg kynþáttahyggja á Íslandi20. júní 2020 Eftir / Rósu Björk Brynjólfsdóttur Í síðustu viku lét aðstoðaryfirlögregluþjónn höfuðborgarsvæðisins hafa eftir sér í viðtali á RÚV að með glænýjum „landamæraeftirlitsbíl“ lögreglunnar væri nú hægt að stöðva „bíla með Albönum og Rúmenum …“ og „Þá athugum við hvort þeir séu þeir sem þeir segjast vera,“ og „Þá hnippum við í þá og ýtum þeim út.“. Þessi frétt vekur upp...
SkoðunReynir TraustasonSólargeisli á Ströndum19. júní 2020 Byggð í Árneshreppi á Ströndum hangir bókstaflega á hálmstrái. Aðeins er rúmlega tugur manns með vetursetu í hreppnum. Fleiri búa þar á sumrin þegar vegir eru færir og sólin hátt á lofti. Byggðinni hefur stöðugt hnignað frá þeim tíma á síðustu öld þegar hundruð manna lifðu þar af sjósókn, fiskvinnslu og landbúnaði. Seinustu árin hafa ráðamenn hreppsins einblínt á virkjun...
SkoðunAðsend greinSumarið er ekki verri tími en hver annar til að sækja líkamsræktarstöðvar15. júní 2020 Höfundur / Björn Þór Sigurbjörnsson, einkaþjálfari Þegar heimurinn hálf lamaðist, þá mjakaðist hreyfing margra nokkuð hratt út af borðinu og jogging-gallinn varð á örfáum dögum besti vinur mannsins. Í einhverjum tilvikum varð hreyfing þó reglulegur partur af innilífinu, allavega í einhverri mynd. Fólk lagði það á sig að standa í röð fyrir utan verslanir til að ná sér í æfingagræjur....
SkoðunÓttarr ProppéSuðum saman14. júní 2020 Síðast en ekki síst Eftir / Óttarr Proppé Það eru komin lauf á birkið fyrir utan húsið. Um helgina mætti ég æstum þresti andartaki áður en ég gekk næstum á hreiður undir þakskeggi. Upp úr hreiðrinu teygðust svangir goggar. Þeir gerðu ekki greinarmun á mömmu sinni og ókunnugum risaskeggapa. Þeir eru nú meiri kjánaprikin þessir þrastarungar. Það er varla hjólandi...
SkoðunCovid-19Aðsend skoðunSkjólið felst í frelsinu13. júní 2020 Eftir / Hönnu Katrínu Friðriksson Það er skjól í hversdagsleikanum, í þessu venjulega. Ekki síst á átakatímum. Þá er þægilegt að falla inn í hópinn, ekki kalla á athygli, ekki vera til vandræða. Í þessum einfalda sannleika felast ýmsar hættur. Fyrir einstaklinga, fyrir hópa og fyrir samfélög. Jafnvel fyrir lýðræðið. Heimsbyggðin hefur tekist á við fjölmargar áskoranir í tengslum við...