InnlentStefán ánægður eftir vel heppnaða friðargöngu: „Lygilega mörg handtök í kringum svona aðgerð“23. desember 2023 Stefán Pálsson er þakklátur eftir vel heppnaða friðargöngu. Í kvöld var gengin hin árlega friðarganga í miðbæ Reykjavíkur en í ár var lögð nokkur áhersla á þjóðarmorðið sem Palestínumenn standa frammi fyrir. Stefán Pálsson, sagnfræðingur, friðarsinni og margt annað, er ánægður eftir gönguna. Skrifaði hann Facebook-færslu þar sem hann sagði lygilega marga taka þátt við undirbúning og framkvæmd slíkrar friðargöngu....
InnlentUngt par sem slasaðist alvarlega í bílslysi á batavegi: „Framundan er löng og ströng endurhæfing“23. desember 2023 Söfnun er hafin fyrir ungt par sem slasaðist alvarlega í bílslysi á dögunum. Íris, sem var farþegi í bílnum er á batavegi en kærasti hennar, Hagalín Ágúst, sem keyrði bílinn er enn á gjörgæslu en ekki í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum Mannlífs er ungt par sem lenti í árekstri við annan bíl á Vesturlandsvegi á dögunum, á batavegi, þó langt og...
InnlentVarðskipið Freyja siglir til Vestfjarða vegna snjóflóðahættu23. desember 2023 Lögreglan á Vestfjörðum bað Landhelgisgæsluna um aðstoð vegna slæmrar veðurspár og hugsanlegrar snjóflóðahættu um helgina. Lagði því áhöfnin á varðskipinu Freyju af stað úr höfn á Siglufirði að miðnætti í gær og er væntanlegt vestur á firði í morgunsárið. Almannavarnir vöruðu í gær við veðurspá helgarinnar, sem er slæm og að hætta væri á að færð myndi spillast og snjóflóðahætta...
InnlentÓsáttur við samanburð við Kröfluelda: „Ótrúlega líkt ferli segja kjaftaskarnir!“22. desember 2023 Björn Birgisson er afar ósáttur við vísindamenn sem líkja nýja gosinu á Reykjanesinu við Kröfluelda. Grindvíkingar eru farnir að vilja komast heim, þrátt fyrir nýafstaðið eldgos og nýja kvikusöfnun í nágrenninu. Vísindamenn hafa einhverjir líkt hinu nýja Sundhnúkagosi við Kröflueldanna, sökum þess að nú virðist sem kvikusöfnun sé hafin að nýju. Ekki eru allir sáttir við þá samlíkingu. Einn þeirra...
InnlentDæmdur vegna banaslyss – Talinn hafa sofnað undir stýri22. desember 2023 Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fyrr í mánuðinum karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi vegna banaslyss á Snæfellsnesvegi þann 17.júlí. Auk þess var maðurinn sviptur ökuréttindum í hálft ár. Maðurinn var ákærður fyrir að aka bifreið „án nægilegs tillits og varúðar” sem varð til þess að hann ók yfir á rangan vegarhelming. Maðurinn var einnig talinn hafa verið ófær um að stjórna...
InnlentDæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi – Reyndi að ýta barnsmóður og syni fram af svölum22. desember 2023 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundinn, fyrir ítrekuð ofbeldis og fíkniefnabrot á árunum 2021 og 2022. Mbl.is fjallaði um dóminn í dag en maðurinn var ákærður í 15 mismunandi liðum. Árið 2021 er honum gefið að sök að hafa ítrekað ógnað barnsmóður sinni og beitt hana ofbeldi. Hann er sagður hafa rifið...
InnlentÚtigangsfé í Þverárhlíð: „Alls staðar annars staðar betur komnar en heima hjá sér!“22. desember 2023 Kindur ganga enn úti í Þverárhlíð í Borgarbyggð, þrátt fyrir vetrarhörkur. Steinunn Árnadóttir, hestakona, organisti og baráttukona bendir enn og aftur á slæma meðferð á kindum á bænum Höfða í Borgarfirði. Undanfarið ár hefur Steinunn verið afar dugleg við að benda á slæman aðbúnað fjárins á Höfða, sem virðist lítið hafa skánað miðað við nýjustu færslu Steinunnar. Í færslunni birti...
InnlentFunda í dag vegna mögulegrar kviku22. desember 2023 Hundrað jarðskjálftar mældust í gær á Reykjanesi og dagurinn því heldur rólegur. Frá miðnætti hafa mælst 20 litlir skjálftar en fundað verður í dag vegna mögulegrar kvikusöfnunar undir Svartsengi. Sérfræðingar munu þar fara yfir málin en mögulegt þykir að kvikusöfnun sé hafin á ný á svæðinu. Að loknum fundi verður fundað að nýju með almannavörnum klukkan 13:00.
InnlentLögmaður og systir Eddu handtekin – Allir synir fundnir21. desember 2023 Tveir af þremur sonum Eddu Bjarkar Arnardóttur eru fundnir en mbl.is greinir frá þessu. Þá var systir Eddu handtekin en hún og synirnir voru í bíl systur Eddu þegar þeir fundust og hefur sonum Eddu verið komið í umsjá barnaverndar. Lögmaður Eddu var svo í framhaldinu handtekinn. Í sumar var farið fram á handtökuskipan yfir Eddu og að hún yrði...
InnlentStarfsfólk á Hrafnistu Boðaþingi fyllir frískápa fyrir jólin: „Höfum fengið alveg nóg af matarsóun“21. desember 2023 „Við starfsfólkið á Hrafnistu Boðaþingi höfum fengið aaalveg nóg af matarsóun og erum byrjuð í nýju verkefni,“ svo hljóðar upphafið af færslu sem Ágústa Klara Ágústsdóttir birti á Facebook fyrir hönd starfsfólksins Á Hrafnistu Boðaþingi í Kópavogi. Mynd/skjáskot FB „Í morgun var frískápurinn fylltur af allskonar sniðugu. Súpum, kjötbollum, beikonbúðingi, grautum, skonsum, kökum, meðlæti og fleiru. Þetta er allt eldað...
InnlentStrætó hækkar fargjöldin – Þetta munt þú þurfa að borga á næsta ári21. desember 2023 Þann 8.janúar næstkomandi mun Strætó hækka fargjöldin á ný. Miði í Strætó fyrir fullorðna innan höfuðborgarsvæðisins mun þá kosta 630 krónur en í dag kostar miðinn 570 krónur en Strætó hækkaði síðast fargjöld í júlí á þessu ári. Þrjátíu daga nemakort fer úr 4.500 krónum í 5.200 krónur en hækkunin er sögð nema að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Fargjöld...
InnlentEdda er viss um að hún fái dóm: „Ég er hérna út af strákunum“21. desember 2023 Edda Björk Arnardóttir er stödd í Noregi eftir að hafa verið ákærð fyrir að nema syni sína þrá á brott frá Noregi. Faðir drengjanna er búsettur í Noregi og fer með forsjá þeirra. „Þetta er svo sem ekkert nýtt sem er að koma fram hérna, maður hefur heyrt þetta allt áður,“ sagði Edda Björk í samtali við mbl.is. Edda hefur...