InnlentÞrír læknanemar sakaðir um alvarleg brot í starfi: „Þetta er alls ekki í lagi“13. nóvember 2023 Læknanemar sagðir hafa brotið trúnað í sundi. Þrír læknanemar læknadeildar Háskóla Íslands ræddu sjúkrasögu nafngreindra einstaklinga sín á milli í heitum potti í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu nú um helgina. Lýsti einn læknaneminn samskiptum sínum við nafngreinda eldri konu á niðrandi máta. Þar að auki ræddu læknanemarnir á niðrandi hátt um ónafngreinda sjúklinga ásamt þess að ræða um siðfræðikúrs sem einn...
InnlentÍbúar Grindavíkur beðnir að gefa sig fram við lögreglu klukkan 13:00 í dag13. nóvember 2023 Lögregluembættið á Suðurnesjum biður íbúa ákveðinna svæða á Grindavík að gefa sig fram á MÓT. Lögreglan á Suðurnesjum var rétt í þessu að senda viðbót við tilkynningu sína sem birtist í morgun. Íbúar eftirfarandi svæða mega gefa sig fram á MÓT við Suðurstrandarveg kl. 13:00 í dag: Skipastígur-Árnastígur-Glæsivellir-Ásvellir-Sólvellir-Blómsturvellir – Baðsvellir-Gerðavellir-Selsvellir-Litluvellir-Hólavellir-Höskuldavellir-Gerðavellir-Iðavellir-Efstahraun – Heiðarhraun -Hvassahraun -Staðarhraun – Borgarhraun -Arnarhraun-Víkurbraut.
InnlentGrindvíkingum hleypt inn með skipulögðum hætti: „Ítrekað er að þetta er ekki léttvæg ákvörðun“13. nóvember 2023 Ákveðið hefur verið að hleypa Grindvíkingum inn í Grindavíkurbæ með skipulögðum hætti, frá og með þessari stundu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu þar sem segir að ákvörðun var tekin um að hleypa íbúum inn í Grindavík frá og með þessari stundu. Það verði gert með skipulögðum hætti. Hér má sjá tilkynninguna: Íbúar og...
InnlentGrindvíkingur gagnrýnir viðveru sérsveitarinnar: „Komið fram við okkur eins og glæpamenn“13. nóvember 2023 Ekki eru allir Grindvíkingar sáttir við þær ströngu reglur sem eru í gildi hvað varðar bæinn þeirra og vilja fá nægan tíma til að athuga með eigur sínar og húsnæði. Kári Guðmundsson skrifaði færslu í Facebook-hópnum Íbúar í Grindavík og fer þar mikinn. Segir hann að þeir sem stjórni aðgerðum á Suðurnesjum séu búnir að „tapa sér“ og nefnir sem...
InnlentKvikan á leiðinni upp og örvæntingafullir íbúar upplifa mikla óvissu13. nóvember 2023 Særstu jarðskjálfar sem riðu yfir í nótt mældust við Eldey, suðvestan við Reykjanesið. Skjálfti að stærðinni 3,4 mældist klukkan korter í fjögur í nótt en samkvæmt heimildum mbl.is er það stærsti skjálftinn sem mælst hefur síðastliðna tólf klukkutíma. Þá herma heimildir að líklegt þyki að kvikan sé komin upp á aðeins nokkura tuga metra dýpi.Því má ætla að stutt sé...
InnlentAnna tók þátt í björgunaraðgerðum í Vestmannaeyjagosinu: „Grindvíkingar eiga samúð mína alla“12. nóvember 2023 Anna Kristjánsdóttir rifjar upp þegar hún tók þátt í björgunaraðgerðum þegar gos kom upp í Vestmannaeyjum árið 1973. Í nýjustu dagbókarfærslu vélstjórans Önnu Kristjánsdóttur, sem hún ritar á Facebook frá Tenerife eða Paradís eins og hún kallar eyjuna, er ástandi í Grindavík henni hugleikið. Segist hún hugsa um gosið í Vestmannaeyjum fyrir hálfri öld en að þá hafi mælitæki verið...
InnlentTveir Pallar vöknuðu einir í heiminum á laugardaginn – Sváfu af sér rýmingu Grindavíkurbæjar12. nóvember 2023 Þegar Grindavíkurbær var rýmdur aðfaranótt laugardagsins urðu tveir menn eftir. Lögreglan sparkar ekki upp hurðum nema ástæða sé til að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Ríkisútvarpið segir frá því að annar mannanna sé íbúi í Grindavík en að hinn hafi gist einn á hótelherbergi. Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, Bjarney Annelsdóttir segir lögreglu hafa orðið vör við mennina á laugardagsmorgun en rýmingu lauk...
InnlentFullyrðir að ekkert í bókinni um sr. Friðrik sanni misnotkun:„Hvorki góð sagnfræði né blaðamennska“12. nóvember 2023 Jón Viðar Jónsson segir ekkert koma fram í bók Guðmundar Magnússonar um sr. Friðrik Friðriksson, sem bendi til þess að presturinn hafi misnotað drengi í KFUM. Leiklistargagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson segist á Facebook hafa nýverið lokið við að lesa bók Guðmundur Magnússonar um sr. Friðrik Friðriksson. Segir hann að hægt sé að segja margt um bókina, sumt gott en annað...
InnlentKvikugangur undir Grindavík: „Um mun öflugari og stærri atburð er að ræða en sést hefur áður“11. nóvember 2023 Mun öflugri og stærri atburð er um að ræða en sést hefur á Reykjanesinu síðustu ár en kvikugangur er undir Grindavík. Eldfjalla og náttúruvárhópur Suðurlands skrifaði Facebook-færslu fyrir hálftíma þar sem hópurinn segir að gríðarmikil skjálftavirkni sé enn við Grindavík en að virknin hafi bæði í nótt og í morgun verið mest suðvestur af Grindavíkurbæ. Telur hópurinn það til marks...
InnlentFyrrverandi ráðherra býður allt að 20 Grindvíkingum gistingu: „Þetta er þér líkt, öðlingur“11. nóvember 2023 Björgvin G. Sigurðsson býður Grindvíkingum gistingu fyrir allt að 20 manns. Eins og alþjóð veit var Grindavíkurbær rýmdur í gærkvöldi vegna mögulegs eldgoss og er bærinn nú tómur af íbúum. Íslendingar hafa komið saman frá því að ákveðið var að rýma Grindavík, og hafa margir þeirra boðið Grindvíkinga velkomna á heimili sín en Facebook-hópurinn Aðstoð við Grindvíkinga var búinn til...
HeimurDóttir Hafþórs fæddist andvana: „Orð fá ekki lýst þeim mikla sársauka“10. nóvember 2023 Dóttir Hafþórs Júlíusar fæddist andvana. Hjónin Hafþór Júlíus Björnsson og Kelsey Henson greindu frá því á samfélagsmiðlinum Instagram að dóttir þeirra hafi fæðst andvana í vikunni. „Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum að dóttir okkar, Grace Morgan Hafþórsdóttir, fæddist andvana þann 8. nóvember eftir 21 og hálfrar viku meðgöngu. Eftir að tekið var eftir því að hreyfingar höfðu...
HeimurSturlaður viðskiptavinur öskraði á starfsmenn McDonalds – SJÁÐU MYNDBANDIÐ10. nóvember 2023 Svangur maður sturlast af reiði. Í smábænum White Marsh, rétt fyrir utan Baltimore, sturlaðist maður í bílalúgu McDonalds. Hann var ekki sáttur með þá þjónustu sem honum var veitt. Maðurinn steig út úr bílnum sínum og fór að hóta starfsfólki staðarins og öskraði að hann vildi mat. Hann kastaði hlutum í starfsfólkið og henti niður hillu og skemmdi raftæki sem...